Einar Þorsteinsson vill leiða lista Framsóknar í Reykjavík

Fyrr­ver­andi frétta­mað­ur­inn Einar Þor­steins­son er kom­inn undan feldi og hefur hann ákveðið að gefa kost á sér í 1. sæti fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn í Reykja­vík í kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum.

Einar Þorsteinsson
Einar Þor­steins­son Mynd: Skjáskot/RÚV

Einar Þor­steins­son fyrrum stjórn­andi Kast­ljóss á RÚV greindi frá því í Vikunni hjá Gísla Marteini í kvöld að hann hefði ákveðið að gefa kost á sér í 1. sæti fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn í Reykja­vík fyrir næstu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar.

Fram kom í fjöl­miðlum í febr­úar að hann íhug­aði fram­boð fyrir Framsókn. „Ég er að íhuga það alvar­lega,“ sagði hann en nú liggur ákvörð­unin fyrir.

„Maður kemur alveg löðr­andi sveittur undan þessum feldi hérna. Nei, þetta er svo­lítið skrítið að taka þetta skref en mér líður mjög vel með það. Og ég finn ein­hvern veg­inn – nú fer maður beint í fra­sana – að það hafa margir komið að máli við mig og allt það.

En ég ein­hvern veg­inn fann það strax að þegar fólk fór að tala um þetta að ég hef svosem verið að tala um stjórn­mál og það allt saman en ég hef ekki verið í neinum flokki,“ sagði Einar við Gísla Martein í kvöld.

[adspot]

Var tvítugur með skrítnar skoðanir en búinn að skipta um þær flestar

Þegar Einar var spurður hvort hann hefði ekki verið Sjálf­stæð­is­maður þá sagði hann að þegar hann var tví­tugur hefði hann verið með rosa­lega margar skrítnar skoð­anir og væri búinn að skipta um þær flestar.

„Þegar maður er í fréttum þá afteng­ist maður algjör­lega þess­ari flokkspóli­tísku hugsun,“ sagði hann og bætti því við að þegar „maður er frétta­maður fer maður að skoða báðar hliðar mál­anna“. Eins og að vera í 30.000 fetum og greina kjarn­ann frá hism­inu. „Maður er að þjóna almenn­ingi og áhorf­endum sem eru að horfa. Og svo þegar ég fór að máta mig við stjórn­mála­flokka þá var það ein­hvern veg­inn bara aug­ljóst mál að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er eini flokk­ur­inn sem ég get verið í af því að þar er verið að skoða hlut­ina frá báðum hliðum – og öfga­laust.“

Hann sagði að eftir að hafa verið í almanna­þjón­ustu á RÚV hefði það legið beint við að fara í Framsókn. Fram kom í þætt­inum að Einar hefði talað við upp­still­ing­ar­nefnd en kjör­dæm­is­þing er í næstu viku og mun þá vera greint frá listum flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár