Sjálfstæðisflokkur og Framsókn vinna saman í Múlaþingi

Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur hafa kom­ist að sam­komu­lagi um myndun meiri­hluta í Múla­þingi, nýja sam­ein­aða sveit­ar­fé­lag­inu á Aust­ur­landi.

Gauti Jóhannesson (D) og Stefán Bogi Sveinsson (B) leiða flokkana tvo sem mynda meirihluta.
Gauti Jóhann­es­son (D) og Stefán Bogi Sveins­son (B) leiða flokk­ana tvo sem mynda meiri­hluta.

Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur hafa kom­ist að sam­komu­lagi um meiri­hluta­sam­starf í Múla­þingi, nýju sveit­ar­fé­lagi á Aust­ur­landi. Oddvitar flokk­anna munu und­ir­rita og kynna mál­efna­samn­ing á raf­rænum fundi klukkan 14:30 í dag.

Viðræður á milli flokk­anna tveggja hafa staðið yfir frá því 22. sept­em­ber, en kosið var til sveit­ar­stjórnar í nýja sveit­ar­fé­lag­inu 19. sept­em­ber. Sjálf­stæð­is­flokkur fékk mest fylgi í kosn­ing­unum, tæp 29 pró­sent atkvæða og fjóra full­trúa í ell­efu manna bæj­ar­stjórn, en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fékk tæp 19 pró­sent og tvo full­trúa í bæj­ar­stjórn. Saman eru flokk­arnir því með eins manns meiri­hluta og um 48 pró­sent atkvæða á bak við sig.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafði tvo val­kosti til mynd­unar tveggja flokka meiri­hluta í sveit­ar­fé­lag­inu, að ræða við Framsókn eða Aust­ur­list­ann, fram­boð félags­hyggju­fólks í nýja sveit­ar­fé­lag­inu, sem fékk tæp 27 pró­sent atkvæða og þrjá full­trúa í bæj­ar­stjórn.

[links]Framboð Vinstri grænna og Mið­flokks­ins náðu svo hvort um sig einum full­trúa inn í bæj­ar­stjórn, með rúm 13 og tæp 11 pró­sent atkvæða. Mið­flokks­menn hafa sagt að Klaust­ur­málið hafi spillt fyrir sér í kosn­inga­bar­átt­unni, eins og Kjarninn sagði frá í gær.

Kynjahlutföll innan meirihlutans gagnrýnd

Nokkur kergja hefur verið í her­búðum Aust­ur­list­ans vegna þeirrar ákvörð­unar sjálf­stæð­is­manna að ganga til við­ræðna við Fram­sókn­ar­flokk­inn.

Hildur Þór­is­dóttir odd­viti Aust­ur­list­ans sagði í sam­tali við Aust­ur­frétt eftir að sú ákvörðun lá fyrir að verið væri að snið­ganga vilja kjós­enda með því að tvö stærstu fram­boðin ræddu ekki saman og gagn­rýndi einnig að ein­ungis ein kona yrði í meiri­hluta sveit­ar­stjórnar ef raunin yrði sú að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Framsókn mynd­uðu meiri­hluta.

Fréttir af sam­stjórn allra flokka á Akureyri urðu einnig til þess að Aust­ur­list­inn viðr­aði þá hug­mynd að sama fyr­ir­komu­lag yrði tekið upp í sveit­ar­fé­lag­inu, en það náði ekki upp á pall­borðið.

Sveit­ar­fé­lagið Múlaþing varð til með sam­ein­ingu Borg­ar­fjarð­ar­hrepps, Djúpa­vogs­hrepps, Fljóts­dals­hér­aðs og Seyð­is­fjarð­ar­kaup­staðar og mun ný sveit­ar­stjórn sitja fram til vors­ins 2022, er nýja sveit­ar­fé­lagið dettur inn í hinn hefð­bundna kosn­inga­takt sveit­ar­stjórn­ar­stigs­ins.

Enn á eftir að stað­festa að Múlaþing verði form­lega nafn sveit­ar­fé­lags­ins, en það nafn varð hlut­skarp­ast í ráð­gef­andi íbúa­kosn­ingu í sveit­ar­fé­lag­inu sem fram fór með­fram for­seta­kosn­ing­unum í sumar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sveitarstjórnarkosningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár