Ósanngjarnt að „þurfa að svara fyrir fyllerísröfl Gunnars Braga Sveinssonar“

Mið­flokks­menn í Múla­þingi, nýju sam­ein­uðu sveit­ar­fé­lagi á Aust­ur­landi, telja að Klaust­ur­málið hafi spillt fyrir sér í nýaf­stað­inni kosn­inga­bar­áttu. Odd­vit­inn segir vax­andi guð­leysi í þjóð­fé­lag­inu leiða til auk­innar dóm­hörku, sem sé að verða stór­vanda­mál.

Framboðslisti Miðflokksins í Múlaþingi. Sigurður er í aftari röð, þriðji frá vinstri, en Þröstur er í fremri röð, þriðji frá hægri..
Fram­boðs­listi Mið­flokks­ins í Múla­þingi. Sigurður er í aft­ari röð, þriðji frá vinstri, en Þröstur er í fremri röð, þriðji frá hægri.. Mynd: Miðflokkurinn

Mið­flokks­menn í Múla­þingi, nýja sam­ein­aða sveit­ar­fé­lag­inu á Aust­ur­landi, telja að Klaust­ur­málið hafi spillt fyrir sér í nýaf­stöðnum sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Flokk­ur­inn fékk 11 pró­sent atkvæða, minnst fylgi þeirra fimm fram­boða sem buðu fram og náði einum full­trúa inn í nýkjörna ell­efu manna sveit­ar­stjórn.

Sigurður Ragn­ars­son fram­kvæmda­stjóri á Héraði, sem sat í 7. sæti á fram­boðs­lista flokks­ins, segir í aðsendri grein á vef Aust­ur­fréttar að hann sé bæði bitur og miður sín yfir úrslitum kosn­ing­anna. Hann segir að það sé ekki vegna þess að fólk hafi haft aðrar skoð­anir en mið­flokks­menn, enda sé það bara lýð­ræð­is­legt að fólk hafi mis­jafna sýn á málin.

„En mér finnst afar ósann­gjarnt að ég og aðrir sem unnum af heil­indum í aðdrag­anda þess­arra kosn­inga skyldum enda­laust þurfa að svara fyrir fyll­er­ís­röfl Gunnars Braga Sveins­sonar á bar suður í Reykja­vík, og allar þær hug­myndir og hug­sjónir sem við hefðum væru einskis virði þess vegna,“ skrifar Sigurður.

Hann bætir við að Gunnar Bragi og aðrir Klaust­ur­þing­menn hafi „sann­ar­lega fengið að iðr­ast þess­arra gjörða sinna“, en seg­ist efast um að þeir sem létu „fúk­yrði og sví­virð­ingar“ dynja á þing­mönn­unum á sam­fé­lags­miðlum hafi gert hið sama.

„Sá ykkar sem syndlaus er, kasti fyrsta steininum“

Grein Sigurðar birt­ist á föstu­dag. Í gær steig Þröstur Jónsson, odd­viti Mið­flokks­ins í sveit­ar­fé­lag­inu, fram í athuga­semd undir grein­inni og tók undir það að „þetta bar-mál“ hefði þvælst fyrir mið­flokks­mönnum í kosn­inga­bar­átt­unni. Hann sagði marga hafa komið að máli við sig og spurt hvort hann tæki undir skrif Sigurðar.

Þröstur seg­ist ekki hafa tölu á því hversu oft hann fékk til sín setn­ingar þess efnis að fólk myndi kjósa fram­boðs­lista Mið­flokks­ins ef hann væri ekki tengdur „þessum xxxxx“ og bætir við að með „xxxxx“ vísi hann til „orða­leppa sem eru vart á prent setj­andi“.

Odd­vit­inn seg­ist biðja Guð um náð og fyr­ir­gefn­ingu fyrir sjálfan sig og því hljóti hann að fyr­ir­gefa öðrum, vit­andi það að allir geri mis­tök.

„Því miður virð­ist margt fólk ekki hugsa eins, heldur dæmir fólk nán­ast til dauða að eilífu, á sama tíma og það ætl­ast sjálft til að fá fyr­ir­gefn­ingu synda sinna, eða ein­fald­lega telur sig synd­laust. Dómharka fylgir vax­andi guð­leysi í þjóð­fé­lagi okkar og er að verða stór­vanda­mál útaf fyrir sig,“ skrifar Þröstur í athuga­semd sinni.

Þar endar hann svo á að vísa í 8. kafla Jóhann­es­ar­guð­spjalls: „Sá ykkar sem synd­laus er, kasti fyrsta stein­inum.“

Gunnar Bragi Sveins­son vís­aði einmitt til sömu orða úr ritn­ing­unni í yfir­lýs­ingu sem hann sendi frá sér 30. nóv­em­ber 2018, er hann til­kynnti að hann myndi taka sér leyfi frá þing­störfum vegna Klaust­ur­máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár