Þetta blettótta lýðræði

Einar Ólafsson fjallar um nið­ur­stöðu for­sætis­nefndar og spyr hann hvaða afleið­ingar við ætl­umst til að fram­ferði þing­manna hafi fyrir þá.

Það hefur orðið mér umhugs­un­ar­efni um nokk­urt skeið hversu margt upp­lýst, frjáls­lynt og gagn­rýnið fólk lætur sér stundum góða stjórn­sýslu og grunn­at­riði lýð­ræð­is­ins í léttu rúmi liggja. Ástæðan kann að vera virð­ing­ar­verð svo langt sem það nær þegar fólkið missir sig í heil­agri vand­læt­ingu um stundar sakir vegna órétt­lætis eða sið­ferð­is­brests stjórn­mála­manna.

Þetta hefur birst meðal ann­ars í við­brögðum við Klaust­urs­málið svo­kall­aða, nú síð­ast við nið­ur­stöðu siða­nefndar og for­sætis­nefndar vegna máls­ins. Kvartað er undan því að fram­ferði við­kom­andi þing­manna hafi engar raun­veru­legar afleið­ingar. Alþingi og flokk­arnir sem þar eiga sæti beri ábyrgð að hafa ekki ráðið við verk­efnið og þeir séu allir hluti af vanda­mál­inu.

Hvaða afleið­ingar ætl­umst við til að fram­ferði þing­mann­anna hafi fyrir þá? Eðlilega finnst þeim, sem for­dæma þetta fram­ferði, að fylgi þeirra ætti að hrynja. En því ráða engir aðrir en kjós­endur sjálfir. Hvað er ann­ars hægt að gera? Heyrst hefur að þeir ættu að víkja eða fara í tíma­bundið leyfi. En þing­menn eru kjörnir en ekki ráðnir. Á meiri­hluti Alþingis að hafa vald til að víkja kjörnum full­trúm frá? Hver er réttur kjós­enda þeirra? Í lýð­ræð­is­legu sam­fé­lagi hafa dónar og sið­blind­ingjar rétt til að bjóða sig fram, meðan þeir hafa ekki misst kjör­gengi við dóm fyrir glæp, og kjós­endur hafa rétt á að kjósa þá.

Bent hefur verið á að siða­regl­unum ætti að fylgja mögu­leiki á við­ur­lögum eins og að senda brot­lega þing­menn í tíma­bundið leyfi. Það er svo sem umræðu­vert en þó umhugs­un­ar­efni hversu lýð­ræð­is­legt sé að siða­nefndin geti vísað rétt­kjörnum þing­mönnum af Alþingi þótt í ljós hafi komið að þeir séu dónar. Það má segja að með því yrði nefnd­inni fengið vald sem væri ofar rétti kjós­enda. Ég fæ ekki séð að hægt sé innan ramma þess lýð­ræðis sem við búum við að beita öðrum við­ur­lögum en snið­ganga þá og svipta trún­að­ar­störfum á Alþingi eftir því sem þing­sköp leyfa, svo sem með því að fela þeim ekki for­mennsku í nefndum.

Það fylgir lýð­ræð­inu að hvers kyns rumpu­lýður hefur rétt á að bjóða sig fram til þings eða sveit­ar­stjórna og kjós­endur hafa rétt á að kjósa þá. Það er ekki á ábyrgð Alþingis og ann­arra stjórn­mála­flokka ef ein­hver rumpu­lýður fær kosn­ingu. Slíkt getur jafn­vel gerst þótt allir aðrir flokkar hafi staðið sig með ágætum, þeir geta ekki komið í veg fyrir að ein­hver hluti kjós­enda vilji þennan rumpu­lýð.

Menn kvarta undan því að þing­menn Mið­flokks­ins standi með pálmann í hönd­unum eftir það sem á undan er gengið. En það má segja að þeim sé færður þessi pálmi í hendur þegar for­dæm­ingin á fram­ferði þeirra er breidd yfir á alla stjórn­mála­flokk­ana og Alþingi sjálft og fram­ferðið smættað niður í að vera bara hluti af stærra vanda­máli.

Höfundur er fyrr­ver­andi bóka­vörður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár