Segir Gunnar Braga ekki geta kvartað yfir áliti siðanefndar

Þing­maður Pírata segir að Gunnar Bragi Sveins­son geti ekki kvartað yfir því að hann sé fund­inn brot­legur við siða­reglur Alþingis eftir að hafa tekið sér for­ystu­hlut­verk í HeForShe og sam­þykkt breyt­ingar á siða­reglum.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, segir að Gunnar Bragi Sveins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, geti ekki kvartað yfir því að hann sé fund­inn brot­legur við siða­reglur Alþingis eftir að hafa tekið sér for­ystu­hlut­verk í HeForShe og sam­þykkt breyt­ingar á siða­reglum.

Morg­un­blaðið birti álit siða­nefndar Alþingis í klaust­ur­mál­inu svo­kall­aða í morgun og andsvör þriggja þing­manna, þar á meðal Gunnars Braga. Samkvæmt álit­inu hefður hann brotið siða­­reglur alþing­is­­manna með ummælum sem þeir létu falla þann 20. nóv­­em­ber síð­­ast­lið­inn.

Í and­svari Gunn­ars Braga seg­ist hann ekki muna eftir því að hafa und­ir­geng­ist siða­reglur með und­ir­skrift sinni. „Nú hefur komið í ljós í þessu máli, og öðrum, að fyr­ir­komu­lag það sem not­ast er við er í besta falli galið. Hvergi í lýð­ræð­is­ríki getur það talist eðli­legt að póli­tískir and­stæð­ingar fái vald til að „dæma” and­stæð­inga sína. Þá skal það enn og aftur tekið fram að und­ir­rit­aður eða aðrir sem hleraðir voru ólög­lega hafa ekki fengið ólög­legu upp­tök­urnar afhentar frá Alþingi þrátt fyrir að hafa óskað ítrekað eftir því. Einnig má benda á ósam­ræmi milli þess hand­rits sem Alþingi lét gera og þeirra bréfa sem borist hafa frá siða­nefnd,“ segir í bréfi Gunnars Braga.

Siðamál í algjörri upplausn á þinginu

Björn Leví telur það vera kald­hæðn­is­legt að Gunnar Bragi muni ekki eftir því hvort hann hafi skrifað undir siða­reglur eða ekki. „Af aug­ljósum ástæðum er það farin að verða dálítið þreytt afsökun af hans hálfu. Ef afsök­unin er hins vegar raun­veru­leg þá er málið kannski enn alvar­legra en ann­ars ...“ skrifar hann.

[links]Þing­maður Pírata segir enn fremur að siða­málin séu í algjörri upp­lausn á Alþingi. „Póli­tískir and­stæð­ingar sitja í dóm­ara­sæti, vísa málum frá eða skipta sér af for­sendum mál­anna til þess að forð­ast rann­sóknir. Það sem átti að efla traust á stjórn­málum hefur verið fótum troðið í sjálfs­varn­ar­star­femi til að verja eigin rass eða fyrir sam­trygg­ing­una. Þrátt fyrir það allt hanga þeir sem eru ábyrgir alltaf inni á þingi, þannig að varn­ar­starf­semin geti haldið áfram.

Eina leiðin sem ég sé er að þurrka þetta lið alveg af þingi þannig að það sé hægt að kom­ast fram hjá varn­ar­þvæl­unni og fara í alvöru upp­gjör. Þar á ég ekki við siða­regl­urnar heldur alvöru ábyrgð mtt líf um ráð­herra­á­byrgð og þess háttar. Við erum til dæmis með ráð­herra sem lugu að þjóð­inni í aðdrag­anda kosn­inga, földu upp­lýs­ingar og þess háttar. Þau hafa kom­ist upp með að gera lítið úr Lands­dómi, sem er stjórn­ar­skrár­lega leiðin til þess að leiða ráð­herra­á­byrgð til lykta. Það, þrátt fyrir að Lands­dómur hafi skilað mjög góðum nið­ur­stöðum, þá sem fyrr, klúðr­uðu þing­menn,“ skrifa hann.

Garnaflækja af samtryggingu á öllum stigum kerfisins

Björn Leví segir að Íslend­ingar séu með ein­hvers­konar garna­flækju af sam­trygg­ingu á öllum stigum kerf­is­ins þannig að ekk­ert ger­ist þegar fólkið „sem skiptir máli“ gerir eitt­hvað af sér en ef ein kona sem ekki er í klíkunni segir „rök­studdur grunur“. Þá sé það brot á siða­reglum en karl­inn sleppi.

Þarna vísar hann nið­ur­stöðu for­sætis­nefndar frá því í lok júní síð­ast­lið­ins þar sem Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir var talin hafa brotið siða­reglur með ummælum sínum um akstur Ásmundar Frið­riks­sonar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár