Siðanefnd telur Gunnar Braga og Bergþór hafa brotið siðareglur Alþingis

Bergþór Ólason og Gunn­ar Bragi Sveins­son, þing­menn Mið­flokks­ins, brutu siða­regl­ur alþing­is­manna með um­mæl­um sín­um á barnum Klaustri sam­kvæmt áliti siða­nefnd­ar. For­sæt­is­nefnd fund­ar um málið í dag.

Bergþór Ólason og Gunnar Bragi Sveins­son, þing­menn Mið­flokks­ins, brutu siða­reglur alþing­is­manna með ummælum sem þeir létu falla á barnum Klaustri þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Þetta kemur fram í áliti Siða­nefndar.

Aðrir þing­menn sem tóku þátt í sam­tal­inu, Sig­mund­ur Davíð Gunn­laugs­son og Anna Kol­brún Árna­dótt­ir, þing­menn Mið­flokks­ins, og Karl Gauti Hjalta­son og Ólaf­ur Ísleifs­son, sem voru í Flokki fólks­ins þegar sam­talið átti sér stað en gengu síðar til liðs við Miðflokk­inn, brutu ekki gegn siða­regl­um að mati nefnd­ar­innar. Morg­un­blaðið greindi fyrst frá og hefur birt álit siða­nefndar auk and­svara þing­manna.

Vanvirðing í garð umræddra kvenna

Í áliti siða­nefnd­ar segir að Bergþór og Gunn­ar Bragi hafi gerst brot­leg­ir við siða­regl­ur alþing­is­manna með um­mæl­um sem þeir létu falla á Klaustri bar. Siða­nefnd fór yfir ummæli Bergþórs um Ingu Sæland, for­mann Flokks fólks­ins, Írisi Róberts­dóttur, bæj­ar­stjóra í Vest­manna­eyjum, Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur, þing­mann Sam­fylk­ing­ar­innar, og Lilja Alfreðs­dóttur, mennta­mála­ráð­herra.

Siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Bergþórs séu „öll af sömu rót­inni sprottin“. Þau séu ósæmi­leg og í þeim felist van­virð­ing er lýtur að kyn­ferði þeirra kvenna sem um er rætt. Einnig séu þau til þess fallin að kasta rýrð á Alþingi og skaða ímynd þess.

Nefndin fór einnig yfir ummæli Gunnars Braga um Albertínu og Lilju auk Ragn­heiðar Run­ólfs­dóttur, fyrr­ver­andi sund­konu. Komist er að sömu nið­ur­stöðu og í máli Bergþórs, að í ummæl­unum felist van­virð­ing í garð umræddra kvenna og þau séu til þess fallin að skaða ímynd Alþingis.

Anna Kolbrún fékk að njóta vafans

Um­mæli Sig­mund­ar Davíðs og Önnu Kol­brún­ar voru einnig tek­in til skoð­unar. Siða­nefnd taldi rétt að Anna Kolbrún nyti vafans vegna ummæla sinna um Freyju Har­alds­dóttur, fyrr­ver­andi vara­þing­mann Bjartrar fram­tíðar. Þótti siða­nefnd­inni að um­mæli Önnu gætu skaðað ímynd Alþing­is en erfitt væri að slá því föstu.

„Í ljósi af­mörk­un­ar for­sæt­is­nefnd­ar og hversu tak­mark­aðar upp­lýs­ing­ar liggja til grund­vall­ar þess­um um­mæl­um tel­ur siða­nefnd rétt að Anna Kol­brún Árna­dótt­ir njóti vaf­ans að þessu leyti,“ segir í álit­inu.

Þá telur siða­nefnd­in að um­mæli Sig­mund­ar Davíðs hafi ekki brotið gegn siða­regl­um.

Forsætisnefnd fundar um málið í dag

Siða­nefndin tók einnig til umfjöll­unar hvort að allir þing­menn­irnir á Klaustri hefðu brotið gegn siða­reglum með því að sitja undir ummælum ann­arra þing­manna athuga­semda­laust. Í áliti nefnd­ar­innar segir að þing­menn­irnir hafi ekki gerst brot­legir vegna athafna­leysis.

For­sæt­is­nefnd fund­ar um málið í dag en siða­nefnd skil­aði áliti sínu um Klaust­urs­málið í júlí. Þing­menn­irnir fengu viku­frest til að bregð­ast við álit­inu og skil­uðu Bergþór, Gunnar Bragi, Sig­mundur Davíð og Anna Kolbrún inn andsvörum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár