Klausturgate – ári síðar

Bára Hall­dórs­dóttir hefur skipu­lagt mál­þing með það að mark­miði að gefa þolendum „Klaust­ur­gate“ rödd og rými til að tjá sig og til þess að ræða Klaust­ur­málið og eft­ir­mál þess fyrir sam­fé­lagið.

Bára Halldórsdóttir
Bára Hall­dórs­dóttir Mynd: Bára Huld Beck

Bára Hall­dórs­dóttir hefur skipu­lagt mál­þing með það að mark­miði að gefa þolendum „Klaust­ur­gate“ rödd og rými til að tjá sig og til þess að ræða Klaust­ur­málið og eft­ir­mál þess fyrir sam­fé­lagið, einkum og sér í lagi hvað það mál þýðir fyrir öryrkja, fatl­aða og hinsegin fólk. Mál­þingið mun fara fram þann 20. nóv­em­ber næst­kom­andi í húsa­kynnum Íslenskrar erfða­grein­ingar klukkan 16:00.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Báru og við­burði á Facebook.

„Nú er ár síðan að þing­menn Mið­flokks sátu á Klaust­ur­bar þar sem þeir opin­ber­uðu mis­beit­ingu á valdi og vógu gróf­lega að sam­starfs­konum með niðr­andi og kyn­ferð­is­legum meið­yrðum. Málið, sem er núna þekkt undir nafn­inu Klaust­ur­gate, er orðið eitt af þekktasta hneyksl­is­máli í íslenskri stjórn­mála­sögu.

Þeir þing­menn sem áttu aðild að Klaust­ur­gate mál­inu, þar á meðal maður sem var í for­svari kven­rétt­inda­bar­átt­unnar #heforshe, hafa engir þurft að sæta afleið­ingum og sitja í þessum skrif­uðum orðum á þingi – þar sem þolendur grófrar kyn­ferð­is­legrar orð­ræðu þeirra þurfa enn að vinna með þeim. Í til­efni þess að eitt ár er liðið frá því að upp­tök­urnar voru gerðar og síðan birtar i fjöl­miðlum, hefur Bára skipu­lagt mál­þing til að ræða eft­ir­mál Klaust­ur­gate. Nú gefst til­efni að gefa borg­ar­búum og þolendum ofbeldis orðið vegna niðr­andi umræðu af hálfu Mið­flokks­ins,“ segir í til­kynn­ing­unni.

[adspot]

Á mál­þing­inu verður meðal ann­ars fjallað um eft­ir­far­andi spurn­ingar: Hvert er reglu­verk Alþingis til að vernda kjörna full­trúa frá áreiti og tryggja þeim öruggt starfs­um­hverfi? Hvað merkir það fyrir íslensku þjóð­ina ef fólk í valda­stöðum þarf ekki að taka afleið­ingum gjörða sinna og hvernig verndum við upp­ljóstr­ara?

[links]Í til­kynn­ing­unni segir: „Jafn­framt því sem Kolbrún Hall­dórs­dóttir, verk­efn­is­stýra í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu fyrir úrbætur varð­andi kyn­ferð­is­legt ofbeldi, verður fund­ar­stjóri mál­þings­ins hefur Bára fengið í lið með sér Evrópu ráðið fyrir rétt­indi upp­ljóstr­ara (European Centre for Whistleblower Rights), Alþjóð­legt sam­starf þinga í Genf (Interpar­li­ament­ary Union) og Open Society Ini­ta­tive for Europe: Protecting the Right to hold Govern­ments to Account sem hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu til stuðn­ings mál­stað Báru og þjóð­ar­innar.

Auk þess sem þolend­urnir í umræðum alþing­is­manna Mið­flokks­ins munu tjá sig, þar á meðal Freyja Har­alds­dóttir fyrrum alþing­is­kona og akti­vísti fyrir fólk með fatl­anir, munu einnig taka til máls full­trúi frá UN Women og Caroline Hunt-Matthes, heims­þekktur upp­ljóst­ari hylm­ingar Sam­ein­uðu Þjóðanna um kyn­ferð­is­legt ofbeldi. Caroline kemur einnig fram sem full­trúi fyrir Alþjóð­legt sam­starf þinga en á vegum þess er rekin sér­deild sem fjallar um ofbeldi gegn alþing­is­konum. Mark Worth mun fjalla um mál­þingið á alþjóð­legum vett­vangi. Worth er verð­laun­aður rann­sókn­ar­blaða­maður og einn af helstu sér­fræð­ingum um stefnu­mót­anir og rétt­indi er varða upp­ljóstr­ara. Hann er einnig fram­kvæmd­ar­stjóri European Center for Whistleblower Rights.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár