Uppljóstrarinn á Klaustri: „Ég varð bara svo sár og trúði varla því sem ég heyrði“

Bára Hall­dórs­dóttir er konan sem tók upp sam­töl þing­mann­anna sex á barnum Klaustur. Henni blöskr­aði svo að þarna væru valda­miklir menn sam­an­komnir að „spúa hatri“ yfir minni­hluta­hópa á almanna­vett­vangi að hún ákvað að taka sam­ræður þeirra upp.

„Ég er fötluð, hinsegin kona og mér blöskr­aði,“ segir upp­ljóstr­ar­inn sem tók upp þing­menn­ina á Klaustur bar. Upp­ljóstr­ar­inn heitir Bára Hall­dórs­dóttir en hún var fyrir til­viljun stödd á Klaustur bar þann 20. nóv­em­ber þegar hún varð vitni að sam­ræðum þing­mann­anna sex. Hún stígur fram og segir frá atburða­rásinni í við­tali við Stundina í dag.

„Mér bara brá svo þegar ég heyrði hvernig þing­menn­irnir töl­uðu. Satt best að segja trúði ég ekki mínum eigin skiln­ing­ar­vitum. Svo ég byrj­aði bara að taka upp, án þess að hugsa það neitt lengra. En því meira sem ég hlust­aði, því reið­ari varð ég, því þarna voru saman komnir valda­miklir menn að spúa hatri yfir minni­hluta­hópa á almanna­vett­vangi. Ég held að það hafi verið rétt að upp­lýsa almenn­ing um það sem þarna fór fram og eftir á að hyggja er ég stolt af því,“ segir Bára.

Forseti Alþingis hefur beðið fatl­aða, hinsegin fólk og konur afsök­unar á ummælum þing­manna en Bára til­heyrir öllum þremur hóp­unum.[adspot]

Er þetta í alvörunni eðlileg hegðun af hálfu þjóðkjörinna fulltrúa, þingmannanna okkar?

Bára var aðeins búin hafa kveikt á upp­tök­unni í smá stund þegar þing­menn­irnir fóru að tala um að „ríða ein­hverju skrokkum“. Hún segir þau hafa verið stödd í opnu rými, á stað sem er opinn almenn­ing og að þau hafi talað svo hátt að það heyrð­ist um allt. „Ég hugs­aði með mér: Er þetta í alvör­unni eðli­leg hegðun af hálfu þjóð­kjör­inna full­trúa, þing­mann­anna okkar? Er þetta ekki akkúrat sú orð­ræða sem við erum nýbúin að vera að berj­ast gegn með MeToo og svo fram­vegis, og er bara í lagi að valda­miklir menn sitji og tali svona, hátt og skýrt á kaffi­húsi eins og ekk­ert sé?“

„Helst lang­aði mig bara að standa upp og spyrja: Heyriði ekki í sjálfum ykkur? Vitiði ekki að það er fleira fólk hérna inni?“ Bára spil­aði upp­tök­una fyrir kon­una sína þegar hún kom heim en hún var orð­laus. „Það sem okkur fannst svo ótrú­legt er að þau skyldu ná að pakka öllu þessu hatri og ógeði inn á aðeins örfáar klukku­stundir. Og á maður að trúa því að þetta hafi verið algert und­an­tekn­ing­ar­til­vik? Að venju­lega tali þau ekki svona? Að stefnan þeirra og póli­tíkin þeirra sé ótengd þessum við­horfum sem birt­ust þarna á barnum?“

Ánægð með viðbrögð almennings, fjölmiðla og stjórnmálamanna

Bára seg­ist vera ánægð með við­brögð almenn­ings, fjöl­miðla og stjórn­mála­manna við Klaust­urs­upp­tök­unum. „Fólk tók þessu alvar­lega og sá þarna kýli sem það vildi stinga á. Þing­menn­irnir sem eiga í hlut hafa reyndar dregið málið á lang­inn með því að afneita vand­anum, þræta og drepa mál­inu á dreif í stað þess að vera partur af lausn­inni. En það hefur verið ótrú­legt að fylgj­ast með við­brögð­unum. Siða­nefnd Alþingis er kölluð til, fólk er rekið úr flokki og aðrir fara í frí, for­seti Alþingis biðst afsök­unar, alvöru umræður eiga sér stað og ég fer bara að hall­ast að því að þetta hafi verið dálítið þarft.“

Hún seg­ist vera stolt af því að hafa sett þessa atburða­rás af stað og stolt af þing­mönnum, almenn­ingi og bar­áttu­fólki sem hefur gripið tæki­færið til að breyta umræð­unni. „Fólkið sem sat þarna á Klaustri er barn síns tíma að miklu leyti, en engu að síður þýðir þessi upp­á­koma og umræðan í kringum hana að næst þegar menn tala svona þá er lík­legra en áður að ein­hver segi stopp.“

Sjaldan séð þetta skilningsleysi jafn skýrt

Í við­tal­inu við Stundina segir Bára einnig frá því hvernig það er að vera öryrki á Íslandi, til­heyra tveimur minni­hluta­hópum og mæta stöðugt skiln­ings­leysi valda­mik­illa afla í sam­fé­lag­inu. Hún segir að sjaldan hafi þetta skiln­ings­leysi birst sér jafn skýrt og þegar hún hlust­aði á mál­flutn­ing þing­mann­anna á Klaustri. Bára er öryrki en hún glímir við gigt­ar­sjúk­dóm sem leggst á æða­kerfi lík­am­ans. Und­an­farin ár hefur hún sinnt fræðslu og rétt­inda­bar­áttu fyrir lang­veika, fátæka og fatl­aða í gegnum félaga­sam­tökin Tabú og Pepp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár