Verið að undirbúa dómsmál á hendur Báru vegna Klausturupptöku

Konunni sem tók upp sam­töl þing­manna Mið­flokks­ins á Klaust­ur­bar hefur borist bréf frá hér­aðs­dómi vegna beiðni um gagna­öflun. Þar segir að beiðnin verði „ekki skilin öðru­vísi en svo að dóms­mál kunni að verða höfðað á hendur þér“.

Bára Halldórsdóttir steig fram í síðasta tölublaði Stundarinnar.
Bára Hall­dórs­dóttir steig fram í síð­asta tölu­blaði Stund­ar­innar. Mynd: Skjáskot/Stundin

Lögmaður fjög­urra ein­stak­linga, sem að öllum lík­indum eru fjórir þing­menn Mið­flokks­ins, hefur lagt fram beiðni um vitna­leiðslur og öflun sýni­legra sönn­un­ar­gagna fyrir dómi vegna upp­töku á sam­tölum sem áttu sér stað á Klaust­ur­bar 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Beiðnin byggir á ákvæði laga um með­ferð einka­mála sem fjallar um öflun sönn­un­ar­gagna án þess að mál hafi verið höfðað. Til­gangur þess er að koma í veg fyrir að mögu­leg sönn­un­ar­gögn spillist.

Þetta kemur fram í bréfi sem Báru Hall­dórs­dóttur, kon­unnar sem tók upp sam­ræður þing­mann­anna á Klaust­ur­barnum 20. nóv­em­ber, hefur borist frá hér­aðs­dóm­ara og Bára hefur birt á Facebook. Í stöðu­færslu með bréf­inu segir Bára: „Hefst þá dans­inn“.

Í bréf­inu segir enn fremur að beiðnin verði „ekki skilin öðru­vísi en svo að dóms­mál kunni að verða höfðað á hendur þér í kjöl­far umbeð­innar gagna­öfl­unar.“

[adspot]Hún hefur því verið boðið í þing­hald vegna beiðn­innar sem fram fer í hér­aðs­dómi Reykja­víkur 17. des­em­ber næst­kom­andi, eða á mánu­dag í næstu viku.

Fengu sér lögmann og höfðu samband við Persónuvernd

Greint var frá því á RÚV í gær að þeir fjórir þing­menn Mið­flokks­ins sem voru teknir upp við að láta niðr­andi og nið­ur­lægj­andi ummæli falla um fjölda fólks á Klaust­ur­bar 20. nóv­em­ber hefðu ráðið sér lög­mann. Sá hefði haft sam­band við Per­sónu­vernd og kraf­ist þess að stofnuni rann­sak­aði hver hefði staðið að því að taka upp sam­töl þing­mann­anna og komið upp­tök­unni til fjöl­miðla.

Þing­menn­irnir fjórir eru Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, Gunnar Bragi Sveins­son, vara­for­maður hans, Anna Kolbrún Árna­dóttir, rit­ari flokks­ins, og Bergþór Ólason, þing­maður.

Um sól­ar­hring eftir að beiðni lög­manns­ins barst Per­sónu­vernd gaf Bára Hall­dórs­dóttir sig fram í við­tali við Stundina og opin­ber­aði að hún væri sá ein­stak­lingur sem hefði tekið upp sam­tölin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár