Bergþór Ólason orðinn nefndarformaður á ný

Nýr for­maður umhverfis- og sam­göngu­nefndar var kjör­inn í dag með tveimur atkvæðum.

Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins, er orð­inn for­maður umhverfis- og sam­göngu­nefndar að nýju. Hann hlaut tvö atkvæði, frá sjálfum sér og sam­flokks­manni sínum Karli Gauta Hjalta­syni, í kosn­ingu á for­manni nefnd­ar­innar fyrr í dag. Aðrir nefnd­ar­menn sátu hjá við atkvæða­greiðsl­una sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Fresta þurfti fundi nefnd­ar­innar í gær eftir að gerð hafði verið til­laga um að Karl Gauti yrði frekar for­maður hennar en Bergþór, án þess að Karl Gauti sækt­ist eftir því. Aðrir stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn í nefnd­inni voru mót­fallnir því að Bergþór yrði for­maður nefndar í ljósi þess að hann er einn þeirra sem fór mest fyrir á Klaust­ur­bar í nóv­em­ber 2018 og siða­nefnd Alþingis taldi hann hafa brotið siða­reglur þings­ins með fram­ferði sínu.

Bergþór steig til hliðar sem for­maður umhverfis- og sam­göngu­nefndar í febr­úar síð­ast­liðnum vegna Klaust­urs­máls­ins og tók Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, við for­mennsku tíma­bundið. Nefndin hafði þá verið óstarf­hæf um tíma en sam­kvæmt sam­komu­lagi stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna átti nefnd­ar­for­mennska í þess­ari nefnd að koma í hlut Mið­flokks­ins. Aðrir stjórn­ar­and­stöðu­flokkar en Mið­flokk­ur­inn vildu hins vegar ekki að Bergþór yrði for­maður hennar að nýju vegna Klaust­ur­máls­ins og að ein­hver annar úr Mið­flokknum sem hefði ekki gerst brot­legur við siða­reglur Alþingis myndi taka hana að sér. Á það féllst Mið­flokk­ur­inn ekki.

Kastaði rýrð á Alþingi og skaðaði ímynd þess

­Siða­nefnd fór yfir ummæli Berg­þórs um Ingu Sæland, for­mann Flokks fólks­ins, Írisi Róberts­dótt­ur, bæj­ar­stjóra í Vest­manna­eyj­um, Albertínu Frið­björgu Elí­as­dótt­ur, þing­mann Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, og Lilja Alfreðs­dótt­ur, mennta­mála­ráð­herra.

Í áliti siða­nefndar Alþingis um fram­ferði Bergþórs á Klaustri sagði að ummæli sem hann við­hafði þarf væru „öll af sömu rót­inni sprott­in“. Þau væru ósæmi­­leg og í þeim fælist van­virð­ing er lyti að kyn­­ferði þeirra kvenna sem um er rætt. Einnig væru þau til þess fallin að kasta rýrð á Alþingi og skaða ímynd þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár