Safna fyrir málskostnaði Báru

Hópurinn „Takk Bára” efnir nú til söfn­unar til að greiða máls­kostnað Báru Hall­dórs­dóttur að fullu vegna mála­ferla Klaust­ur­þing­manna á hendur henni.

Bára Halldórsdóttir
Bára Hall­dórs­dóttir Mynd: Bára Huld Beck

Söfnun er hafin fyrir máls­kostn­aði Báru Hall­dórs­dóttur á Karolina­fund vegna mála­ferla Klaust­urs­þing­manna á hendur henni. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá „Takk Bára”-hópnum sem var stofn­aður til að slá skjald­borg um Báru eftir að hún kom fram sem upp­ljóstr­ar­inn Marvin eftir að hafa tekið upp sam­tal þing­manna á Klaustri bar í nóv­em­ber í fyrra og komið upp­tök­unni til fjöl­miðla.

Í til­kynn­ing­unni segir að Lög­manns­stofan Réttur reki málið fyrir Báru og veiti henni auk þess veru­legan afslátt. Það sem eftir stendur séu um 300.000 krónur sem sé um 10 pró­sent af raun­kostn­aði.

Greint var frá því í fjöl­miðlum þann 22. maí síð­ast­lið­inn að stjórn Per­sónu­verndar hefði ekki fall­ist á kröfu þing­manna Mið­flokks­ins um að Bára yrði sektuð vegna hljóð­rit­unar hennar á sam­skiptum þeirra sem fram fóru á Klaustur bar. Hins vegar tald­ist upp­takan ólög­leg sam­kvæmt per­sónu­vernd­ar­lögum og bæri Báru að eyða henni og senda Per­­són­u­vernd stað­­fest­ingu á að það hefði verið gert eigi síðar en 5. júní síð­ast­lið­inn. Bára eyddi Klaust­ur­upp­tök­unum með við­höfn þann 4. júní.

[links]Þá kemur enn fremur fram í til­kynn­ingu „Takk Bára“ að þau sem þegar hafi lagt söfn­un­inni lið eru lista­menn­irnir Hug­leikur Dagsson, Sara Oskars­son, Harald Bilson, Ragn­hildur Jóhanns­dóttir, Jóhann Ludwig Torfason, María Gísla­dóttir, Ragnar Jón Ragn­ar­son (Humi), Þrándur Þór­ar­ins­son, lista­fólkið á bak við sýn­ing­una Drag-Súgur, auk Mar­grétar Erlu Maack með sýn­ing­una Búkalú. Áhuga­samir geti enn lagt til verk í söfn­un­ina.

Málaferlum lokið í bili

„Hópurinn sem stendur að baki Báru hefur frá upp­hafi snú­ist um móralskan stuðn­ing við Báru sem og mögu­legan mögu­legan fjár­hags­legan stuðn­ing vegna kostn­aðar hennar við mála­ferli og annað umstang sem fylgir því að standa í eld­lín­unni. Margt fólk hefur lýst yfir áhuga sínum á að leggja Báru lið fjár­hags­lega þegar á að halda. Nú er svo komið að kostn­aður Báru liggur fyrir vegna rann­sóknar og úrskurðar Per­sónu­verndar sem Klaust­urs­þing­menn fóru fram á. Mála­ferlum er lokið – í bili alla­vega,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Jafn­framt kemur fram hjá hópnum að ýmis kostn­aður, beinn og óbeinn, hafi fallið á Báru vegna máls­ins annar en lög­fræði­kostn­aður, svo sem ferða­lög, auk­inn læknis­kostn­aður vegna álags, vinnu­tap kon­unnar hennar og fleira, og muni allt sem safn­ast í þessu átaki ein­fald­lega renna til Báru fyrir utan 10 pró­sent söfn­un­ar­kostnað sem fari til Karolina Fund.

Mark­miðið sé að safna fyrir lög­fræði­kostn­aðnum en allt umfram það nýt­ist Báru í að rétta sig af fjár­hags­lega. „Mörg ykkar hafa verið að bíða eftir því að geta sagt „Takk Bára” í formi fjár­fram­lags. Sá tími er kom­inn. Gerum þetta saman!“

Einnig er sam­kvæmt hópnum hægt að leggja inn á banka­reikn­ing í eigu Rann­veigar vin­konu Báru: 0303-26-2817 kt. 171279-5779.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár