Bára mun eyða Klausturupptökunum með viðhöfn

Báru Hall­dórs­dóttur hefur verið gert að eyða Klaust­ur­upp­tök­unum og mun hún gera slíkt með við­höfn á Gauknum þriðju­dags­kvöldið 4. júní næst­kom­andi.

Bára Halldórsdóttir
Bára Hall­dórs­dóttir Mynd: Bára Huld Beck

Bára Hall­dórs­dóttir mun eyða svoköll­uðum Klaust­ur­upp­tökum með við­höfn annað kvöld á skemmti­staðnum Gauknum, þriðju­dag­inn 4. júní. Frá þessu er greint í við­burði sem kall­ast Bára­móta­brennan á Facebook. Her­leg­heitin hefj­ast upp úr klukkan 21:00.

Greint var frá því í fjöl­miðlum þann 22. maí síð­ast­lið­inn að stjórn Per­sónu­verndar hefði ekki fall­ist á kröfu þing­manna Mið­flokks­ins um að Bára Hall­dórs­dóttir yrði sektuð vegna hljóð­rit­unar hennar á sam­skiptum þeirra sem fram fóru á veit­inga­staðnum Klaustri. Hins vegar tald­ist upp­takan ólög­leg sam­kvæmt per­sónu­vernd­ar­lögum og bæri Báru að eyða henni og senda Per­sónu­vernd stað­fest­ingu á að það hefði verið gert eigi síðar en 5. jan­úar næst­kom­and­i.

Samkvæmt við­burð­inum á Facebook munu lög­fræð­ingar Báru sjá um að skrá­setja við­burð­inn en Halldór Auðar Svansson, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Pírata, mun flytja opn­unará­varp fyrir hönd stuðn­ings­hóps­ins Takk Bára.

Þá verða valdir kaflar upp­tök­unnar kvaddir sér­stak­lega og upp­tökum svo eytt með við­höfn. Í kjöl­farið er fólki frjálst að grípa í míkró­fón­inn, fyrst til að segja eitt­hvað upp­byggi­legt og svo breyt­ist Gauk­ur­inn í alls­herjar kara­oke-partý.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár