Persónuvernd segir Báru hafa brotið gegn lögum með upptöku

Stjórn Per­sónu­verndar hefur kom­ist að því að Bára Hall­dórs­dóttir hafi brotið gegn lögum um per­sónu­vernd, með upp­töku sinni á spjalli Alþing­is­manna á Klaustur bar.

Bára Hall­dórs­dóttir braut gegn per­sónu­vernd­ar­lögum þegar hún tók upp sam­tal þing­manna Mið­flokks­ins á Klaustur bar.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, Bergór Ólason, Anna Kolbrún Árna­dóttir, Gunnar Bragi Sveins­son, sátu að drykkju á barnum, en Karl Gauti Hjalta­son og Ólafur Ísleifs­son voru einnig á barnum. Þeir voru þá í Flokki fólks­ins en voru reknir úr flokknum eftir að upp­tökur af sam­ræð­unum birt­ust á vefnum, og fjöl­miðlar fjöll­uðu um.

Samkvæmt umfjöllun RÚV var henni ekki gert að greiða sekt. Úrskurð­ur­inn hefur ekki verið birtur enn á vef Per­sónu­verndar, en hann verður birtur á morgun, sam­kvæmt beiðni lög­manns Mið­flokks­manna, að því er segir í umfjöllun RÚV.

Per­sónu­vernd hefur haft Klaust­ur­málið til umfjöll­unar síðan um miðjan des­em­ber, en Mið­flokks­menn settu málið strax í hendur lög­manns, Reimars Pét­urs­sonar hrl., sem hefur síðan sótt það fyrir þá fyrir dóm­stólum og hjá Per­sónu­vernd.

Hér­aðs­dómur og Lands­réttur hafa hafnað kröfur Mið­flokks­manna á Klaustur bar, að rann­sakað verði hver hefði staðið að upp­töku á staðnum. Þá hefur einnig komið fram krafa frá Mið­flokks­mönnum að Bára birti upp­lýs­ingar um greiðslur inn á banka­reikn­inga, auk þess að upp­lýs­ingar um sms og fleira komi upp á yfir­borðið. Bára svar­aði því til að hún gæti alveg birt yfir­lit um reikn­inga, en þá þyrftu Mið­flokks­menn að gera slíkt hið sama.

Í stjórn Per­sónu­verndar sitja Björg Thoraren­sen, pró­fessor, for­maður, Aðal­steinn Jónasson, dóm­ari við Lands­rétt, vara­for­maður, Ólafur Garð­ars­son, hæsta­rétt­ar­lög­maður, Vil­helm­ína Har­alds­dóttir, læknir, og Þor­varður Kári Ólafsson, fag­stjóri skil­ríkja­mála hjá Þjóðskrá Íslands.

Uppfært: Stundin hefur úrskurð­inn undir höndum, og segir í umfjöllun að Per­sónu­vernd hafi ekki séð ástæðu til að sekta Báru og að eng­inn „sam­verkn­aður“ hafi verið leiddur fram. Þá hafi málið leitt til umræðu um „hátt­semi kjör­inna full­trúa“. Engu að síður ber Báru að eyða upp­tök­unni og senda Per­sónu­vernd stað­fest­ingu á að það hafi verið gert eigi síðar en 5. jan­úar næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár