Segir „opinbera smánunarherferð“ vera margfalt verri refsingu

Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins, segir í and­svari sínu til for­sætis­nefndar að hann hafi sjálfur tekið við þeim skömmum sem hann taki mest mark á vegna klaust­urs­máls­ins frá móður sinni fyrir tæpum átta mán­uðum,

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins.
Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins, segir að sú „opin­bera smán­un­ar­her­ferð“ sem keyrð hafi verið áfram sé refs­ing sem sé marg­falt verri fyrir þá sem í lenda, en „hinar hefð­bundnu refs­ingar sem siðuð sam­fé­lög telja for­svar­an­legar“. Þetta kemur fram í and­svari Bergþórs við áliti siða­nefndar Alþingis sem Mbl.is birti í morg­un. Hann segir jafn­framt að setn­ingar siða­nefndar beri ekki með sér hlut­leysi og að hann telji að skoða ætti alvar­lega að leggja nefnd­ina niður.

Vanvirðing er lýtur að kynferði þeirra kvenna sem um er rætt

[links]Siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að Berg­þór Óla­son og Gunnar Bragi Sveins­son, þing­menn Mið­flokks­ins, hafi brotið siða­reglur alþing­is­manna með ummælum sem þeir létu falla á barnum Klaustri þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Siða­nefnd fór yfir ummæli Berg­þórs um Ingu Sæland, for­mann Flokks fólks­ins, Írisi Róberts­dótt­ur, bæj­ar­stjóra í Vest­manna­eyj­um, Albertínu Frið­björgu Elí­as­dótt­ur, þing­mann Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, og Lilja Alfreðs­dótt­ur, mennta­mála­ráð­herra.

Í áliti nefnd­ar­innar kemur fram að ummæli Berg­þórs séu „öll af sömu rót­inni sprott­in“. Þau séu ósæmi­leg og í þeim felist van­virð­ing er lýtur að kyn­ferði þeirra kvenna sem um er rætt. Einnig séu þau til þess fallin að kasta rýrð á Alþingi og skaða ímynd þess.

Í and­svari sínu til for­sætis­nefndar um álit siða­nefndar segir Bergþór að sú ákvörðun siða­nefndar um að telja ekki þörf á að greina hvert atriði í ummælum und­ir­rit­aðs beri ekki með sér hlut­leysi í mati. „Án þess að reikna með svari, þá verð ég að spyrja; hvernig kemst siða­nefnd að þeirri nið­ur­stöðu að óhefluð og gagn­rýn­is­verð ummæli mín um Ingu Sæland séu af sömu rót sprottin og frá­sögn mín af því þegar ég varð fyrir kyn­ferð­is­legu áreiti? Eru það að mati siða­nefndar bara konur sem geta orðið fyrir kyn­ferð­is­legu áreiti?“ segir í and­svar­inu.

Í and­svar­inu gerir Bergþór efn­is­legar athuga­semdir um álit siða­nefndar þar sem hann segir að annað hvort sé farið rangt með eða rangar álykt­anir dregnar um ummæli hans um kon­urnar fjórar.

Segir ummælin um Lilju sögð í „stríðnistón“

Í áliti siða­nefndar segir að Bergþór hafi látið eft­ir­far­andi tvö ummæli falla um Lilju Alfreðs­dóttur:

  • „Það hefur engin gugga teymt mig meira á asna­eyr­unum en hún, sem ég hef ekki fengið að ríða“
  • „Þarna loks­ins kom skrokkur sem typpið á mér dugði í“

Um fyrri ummælin segir Bergþór að þau séu aug­ljós­lega sögð í stríðn­is­tón, þar sem gert er grín að góðum vinum sem hafa látið stjórn­mála­menn teyma sig á asna­eyrum að mati und­i­r­it­aðs.

„Við þetta tæki­færi sagði und­ir­rit­aður að við­mæl­end­urnir (SDG og GBS) yrðu að kalla blöffið. Í þessu sam­hengi var not­ast við tungu­tak þekktrar sjón­varps­fígúru, sem á flesta mæli­kvarða er tal­inn full­kom­inn auli og það gert til að und­ir­strika stríðn­is­tón­inn í ummæl­unum. Í Bret­landi væri þetta kallað „to have a banter“, sem net­orða­bók skil­greinir sem „play­ful and fri­endly exchange of teasing remarks“, “ segir í and­svari Bergþórs.

Hann segir jafn­framt að erfitt sé fyrir hann að tjá sig um síð­ari ummælin um Lilju þar sem þau birt­ist ekki í hand­riti Alþingis. „Ummælin eru í meira lagi und­ar­leg og alger­lega úr takti (og raunar alveg úr sam­bandi) við það sam­tal sem á sér stað á þessum tíma. Samkvæmt hand­riti Alþingis virð­ist setn­ing frá mér, á þessum tíma sam­tals­ins, raunar vera sögð á ensku, sem gerir þessa und­ar­legu setn­ingu enn skrítn­ari.“

Bergþór vísar þar að öllum lík­indum til þegar hann segir í upp­tök­unum: „Who the fuck is that bitch“ en siða­nefnd tóku þau ummæli ekki til með­ferðar.

Féllu einnig „mörg og góð hrósyrði um téða stjórnmálakonu“

Bergþór segir jafn­framt að hlut­irnir séu slitnir úr sam­hengi í tengslum við umrædd ummæli hans um Írisi Róberts­dóttur. Hann segir að það þurfi sér­stakan vilja til að heyra aðeins kyn­ferð­is­legan und­ir­tón í þessum ummælum.

„Nú ætla ég að segja eitt sem er nátt­úru­lega mjög dóna­legt, en það fellur hratt á hana. Hún er miklu minna hot í ár en hún var bara fyrir tveimur árum síðan. Það er ótrú­legur munur,“ eru ummælin sem þing­mað­ur­inn við­hafði um Írisi á Klaust­ur­bar.

Í and­svar­inu bendir Bergþór jafn­framt á að bæði á undan og á eftir til­vitn­uðum ummælum falli mörg og góð hrósyrði um téða stjórn­mála­konu. „Sem dæmi má nefna að Írisi er lýst með orð­unum: hel­víti öflug, hel­víti sæt, orðið eld­klár er notað fjórum sinnum um hana, hún er rögg­söm o.s.frv. Þetta nefni ég til að draga fram hvað raun­veru­legt eðli og efni umræðu um hana er frá­brugðin því sem birt­ist í fjöl­miðlum, slitið úr sam­hengi og skrum­skælt. Jafn­framt falla á sama tíma ummæli um að mögu­legur karl keppi­nautur hennar um topp­sætið, sé ekki nógu „sexy“. Ekkert er gert með það orða­lag gagn­vart karl­inum,“ segir Bergþór.

Í áliti siða­nefndar segir að ummæli Bergþórs Ólasonar um Írisi Róberts­dóttur lýsi til­teknum við­horfum til ungra kvenna í stjórn­málum. Í and­svari sínu segir Bergþór þetta hins vegar „full­komna dellu“.

„Ummæli mín hafa ekk­ert með við­horf mín til ungra kvenna í stjórn­málum að gera, heldur er ég þarna að lýsa þeim áhrifum sem sér­fram­boð sem hún leiddi, gegn Sjálf­stæð­is­flokknum í Vest­manna­eyjum, hafði á póli­tíska stöðu hennar innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Siða­nefnd­ar­fólk þarf að vera með sér­stak­lega van­stilltan kompás ef þessi aug­ljósi hlutur nær ekki í gegn hjá þeim, enda er hér um aug­ljósa rökvillu að ræða. Ummæli um eina per­sónu geta ekki lýst almennu við­horfi til hóps af fólki. Mætti þá ekki eins segja að ummæli mín lýstu „til­teknu við­horfi“ til Vest­manna­ey­inga?,“ segir Bergþór.

„Nýta þann glæp til að refsa þolendum brotsins“

Um ummæli sín um Albertínu segir Bergþór að ástæða sé fyrir því að hann hafi hvorki dregið sín orð til baka né beðist afsök­unar á þeim sér­stak­lega. „Ástæðan er sú að þarna var í engu orðum aukið það sem átti sér stað og í raun alveg galin staða að vera útmál­aður í hlut­verki ger­anda í þessu máli, þegar raunin er þver­öfug,“ segir Bergþór.

Um ummæli hans um Ingu Sæland segir hann að hann hafi beðið hana fyr­ir­gefn­ingar og Inga af stór­mennsku veitt honum hana. „Svona á maður ekki að tala um fólk. Ekki einu sinni póli­tíska and­stæð­inga.“

Vill að skoðað verði alvarlega að leysa upp siðanefnd

Í nið­ur­lagi álits­ins segir Bergþór að „gild­is­hlað­inn tónn“ í áliti siða­nefndar sé athygl­is­verður um leið og hann sé áhyggju­efni. Hann segir að ef það sé með­vituð eða ómeð­vituð áætlun siða­nefndar að koma til móts við þá hörðu gagn­rýni sem nefndin varð fyrir í kjöl­far afstöðu sinnar til mál Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur, þing­manns Pírata, þá sé slíkt ótækt með öllu og stand­ist engar kröfur sam­tím­ans um með­ferð mála.

Bergþór segir jafn­framt í áliti sínu að hann telji að skoða eigi hvort að leysa eigi upp siða­nefnd Alþingis. „Í kjöl­far þeirra tveggja mála sem for­sætis-og siða­nefnd hafa klárað og kannski sér­stak­lega vegna þeirra mála sem for­sætis­nefnd hefur ekki klárað, tel ég rétt að það verði skoðað alvar­lega að leysa upp siða­nefnd Alþingis og þann feril sem nefnd­inni fylgir,“ segir Bergþór.

Hann segir að allt ferlið í öllum þeim málum sem hann þekkir til að vísað hafi verið til for­sætis-/siða­nefnda, hafi „klúðr­ast“ með einum eða öðrum hætti. „Slíkt kastar rýrð á Alþingi og skaðar ímynd þess. Auk þess að slíkt sleif­ar­lag sýnir Alþingi, stöðu þess og störfum ekki virð­ingu.“

Tekur mest mark á skömmum frá móður sinni

Að lokum segir Bergþór að hann hafi sjálfur tekið við þeim skömmum sem hann taki mest mark á vegna máls­ins frá móður sinni fyrir tæpum átta mán­uðum síðan.

„Sú opin­bera smán­un­ar­her­ferð sem keyrð hefur verið áfram er refs­ing sem er marg­falt verri fyrir þá sem í lenda, en hinar hefð­bundnu refs­ingar sem siðuð sam­fé­lög telja for­svar­an­legar. Það eru ekki bara stjórn­mála­menn­irnir sjálfir sem verða fyrir, heldur fjöl­skyldan og nærum­hverfið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár