„Galið að vera útmálaður í hlutverki geranda“

Þing­maður Mið­flokks­ins segir í and­mælum sínum til for­sætis­nefndar hann ekki vera ger­anda vegna ummæla um þing­konu Sam­fylk­ing­ar­innar.

Bergþór Ólason
Bergþór Ólason Mynd: Bára Huld Beck

Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins, segir í and­mæl­unum sem bár­ust til for­sætis­nefndar Alþingis vegna svo­kall­aðs Klaust­ur­máls galið að vera útmál­aður í hlut­verki ger­anda vegna ummæla hans um Albertínu Elí­as­dóttur, þing­konu Sam­fylk­ing­ar­innar. Viljinn greinir frá í kvöld.

Samkvæmt Viljanum segir Bergþór stöð­una vera þver­öf­uga og að það sé ástæðan fyrir því að hann hafi hvorki dregið til baka orð sín um hana sem féllu á Klaust­ur­bar, né beðist afsök­unar á þeim.

For­sætis­nefnd hefur þegar kom­ist að niður­stöðu um af­stöðu sína í mál­inu, sem bygg­ir á niður­stöðu siða­nefnd­ar og at­huga­semd­um frá hlut­að­eig­andi, en nið­ur­staðan verður ekki kynnt fyrr en í fyrsta lagi á morgun, fimmtu­dag.

„Við eigum sem sagt MeToo-­sögu“

Gunnar Bragi Sveins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, og Berg­þór sögðu báðir á Klaust­ur­bar að Albertína hefði gengið á þá með kyn­líf. Berg­þór lýsti því að í hans til­viki hefði það gerst á herra­kvöldi íþrótta­fé­lags­ins Vestra en Gunnar Bragi sagði sinn atburð hafa átt sér stað í sam­komu­hús­inu í Hnífs­dal.

„Við eigum sem sagt MeToo sög­u,“ sagði Berg­þór á einum tíma­punkti í sam­tal­inu.

„Léstu þig hafa það?“ spurði ein­hver í kjöl­far­ið.

„Nei, ég gerði það sem betur fer ekki,“ sagði Berg­þór.

„Það voru ýmsir sem sögðu „take one for the team“ en Beggi var ekki til,“ sagði Sig­mundur Davíð og upp­skar hlát­ur.

„Ég var orð­inn þreyttur á herra­kvöldi Vestra,“ sagði Berg­þór.

„Hversu hart gekk hún fram?“ var spurt í kjöl­far­ið.

„Hún var að tosa bux­urnar af hæl­unum á mér [...] Ég vakna úr nær­bux­un­um.“

MeToo-hætta af hálfu nokk­urra ein­stak­linga

Í fram­hald­inu deildi Gunnar Bragi sinni sögu. „Það var svip­að. Ég var nýlega orð­inn ráð­herra og þetta var í kringum kosn­ing­ar, 2009-10 […] Það er ein­hver hátíð í sam­komu­hús­inu í Hnífs­dal. Ég mæti þarna sem fram­bjóð­andi ásamt fleir­um. Ég er allt í einu far­inn að dansa við þessa stúlku […] Ég sagði bara nei […] en það var bara suð­að. Þá var bara eins og ein­hver hefði verið líf­lát­inn. Hún var brjál­uð, hún tryllt­ist, hún grenj­aði og öskr­aði. Ég bara hugs­aði, hvað, á ég að ríða henni? Það var algjör­lega kreisí.“ Við­staddir hlógu að lok­inni frá­sögn­inni.

„Þetta er sú þing­kona sem hélt lengstu MeToo ræð­una. Og við sátum bara „what the fuck is going on“,“ bætti Berg­þór við.

„Þessir menn munu aldrei ná bata nema þeir opni sig, og það í opnu­við­tali,“ sagði Sig­mundur Davíð og upp­skar hlát­ur.

„Það getur vel verið að við ákveðnar aðstæð­ur, ég ætla ekki að segja hvað aðstæð­ur, að ég þurfi að labba að henni og segja: Ertu búin að gleyma því þegar þú reyndir að nauðga mér?“ sagði Gunnar Bragi og aftur var hleg­ið.

„Ég mun segja, ertu búin að gleyma því þegar þú reyndir að nauðga mér í alvöru?“ bætti Berg­þór við. „Ég er búinn að sjá það að það er MeToo-hætta af hálfu nokk­urra ein­stak­linga. Ég er bara búinn að sirkúlera út þau ein­tök sem mesta MeToo-hættan er af og þetta ein­tak er á þeim lista.“

Kjaftstopp yfir lygasögum þingmanna

Albertína sagði í sam­tali við Stund­ina á sínum tíma að Gunnar Bragi hefði hringt í sig og beðið hana afsök­unar og sagt að ekk­ert af því sem fram hefði komið í sam­tal­inu hefði verið satt. Hún sagð­ist jafn­framt vera kjafstopp yfir orðum Gunn­ars Braga og Berg­þórs um meintar sögur þeirra af henni. Hún sagði það mjög óþægi­legt að láta ljúga svona sögum upp á sig.

„Hann gaf mér leyfi til að segja ykkur að hann væri til­bú­inn til að bera þetta til baka og bað mig afsök­un­ar,“ sagði Albertína. „Það er hrika­legt að vera ásak­aður um eitt­hvað sem gerð­ist ekki.“

Aðspurð um við­burð­ina sem menn­irnir tala um seg­ist hún ekki kann­ast við atvik­in. „Ég er eig­in­lega bara kjaft­stopp. Mér er rosa­lega illt í hjart­anu yfir öllum þessum sam­tölum sem þeir áttu þarna. Ég er hrein­lega orð­laus. Þetta er bara ekki rétt.“

Segist hafa verið að lýsa erfiðri reynslu

Í frétt Viljans kemur fram að Bergþór geri mjög alvar­legar athuga­semdir við þá ætlan for­sætis­nefndar að vinna álit úr ólög­lega fengnum upp­tökum. Auk þess undrist hann þá ætlan þeirra Stein­unn Þóra Árna­dóttir og Har­aldur Bene­dikts­­­son, vara­­­­for­­­­setar for­­­­sæt­is­­­­nefndar Alþingis, að leggja blessun sína yfir það að karl­menn skuli grjót­halda kjafti ef á þá er sótt með harka­legum kyn­ferð­is­legum hætti, en sé slíku haldið fram úr gagn­stæðri átt, þá skuli karl­inn helst ekki bera hönd fyrir höfuð sér.

Bergþór seg­ist, sam­kvæmt heim­ildum Viljans, hafa verið að lýsa erf­iðri reynslu sem hann hafi orðið fyrir í einka­sam­tali á meðal vina. Þingkona Sam­fylk­ing­ar­innar hafi gengið svo nærri sér kyn­ferð­is­lega að hann hafi verið lengi að átta sig á því hvað hafði gerst. Og nú virð­ist hann ekki mega ræða það í einka­sam­tölum.

Hann hafi ekki haft neina ástæðu til að ætla að aðrir heyrðu til og óhug veki að það sem hann ræði í trún­aði í öruggu umhverfi eigi að nota gegn sér í póli­tískum rétt­ar­höldum með þeim hryll­ingi sem slíku fylgi fyrir sig, vini sína og vanda­menn.

Bergþór segir jafn­framt að það hryggi sig ósegj­an­lega, að for­sætis­nefnd Alþingis ætli sér að nýta þann glæp til að refsa þolendum brots­ins og um leið þolendum kyn­ferð­is­brota almennt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár