Telur orðið „tík“ ekki ósiðlegt en klárlega skammarorð

Gunnar Bragi Sveins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, segir í and­svari sínu til for­sætis­nefndar það vera alís­lenskt að nota þau orð höfð voru uppi um mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og hafi ekki til þessa talist ósið­leg en klár­lega skammar­orð.

Gunnar Bragi Sveinsson
Gunnar Bragi Sveins­son Mynd: Bára Huld Beck

Fyrr­ver­andi ráð­herra og þing­maður Mið­flokks­ins, Gunnar Bragi Sveins­son, telur að það sem hann sagði um Lilju Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, á Klaust­ur­bar í nóv­em­ber síð­ast­liðnum eigi sér rætur í von­brigðum og reiði vegna per­sónu­legs máls. Þetta kemur fram í and­svari hans við áliti siða­nefndar Alþingis sem Mbl.is birti í morgun.

„Henni er bara fokk­ing sama um hvað við erum að gera. Hjólum í hel­vítis tík­ina. Það er bara málið. Af hverju erum við að hlífa henni? Ég er að verða brjál­aður! Af hverju erum við að hlífa henni?“ eru orðin sem þing­mað­ur­inn við­hafði á Klaust­ur­bar.

[links]Siða­nefnd Alþingis telur Gunnar Braga aftur á móti hafa brotið siða­reglur með orðum sínum um ráð­herr­ann og tvær aðrar konur, þær Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur, þing­mann Sam­fylk­ing­ar­innar, og Ragn­heiði Run­ólfs­dóttur, afreks­konu í sundi. Siða­nefndin telur ummælin um þær allar vera af sömu rót­inni sprottin. Þau séu ósæmi­leg og í þeim felist van­virð­ing er lýtur að kyn­ferði þeirra kvenna sem um er rætt. Siða­nefnd telur þau einnig til þess fallin að kasta rýrð á Alþingi og skaða ímynd þess, auk þess sem þau sýni Alþingi, stöðu þess og störfum ekki virð­ingu.

Hvað ef karlmaður hefði átt í hlut?

Gunnar Bragi telur hins vegar alís­lenskt að nota þau orð sem þarna voru höfð uppi og hafi ekki til þessa talist ósið­leg en klár­lega skammar­orð. „Spyrja má hvort minni­hluti siða­nefndar hefði kom­ist að sömu nið­ur­stöðu ef karl­maður hefði átt í hlut? Ef orðin hundur, asni, drullu­sokkur, gunga og drusla, skít­legt eðli eða eitt­hvað þaðan af verra hefði verið notað í staðin fyrir orðið „tík”. Á enskri tungu er orðið m.a. notað yfir ófor­skammaða mann­eskju. Hvort sem okkur líkar betur eða verr þá eru þessi orð og mörg önnur notuð til lýs­ingar á skoð­unum þegar þau eru sögð,“ skrifar hann í and­svari sínu.

Hann segir að velta megi því fyrir sér hvort siða­nefndin eða for­set­arnir hafi kynnt sér orð­færi þing­manna í þing­sal. „Er það mat nefnd­ar­innar og hinna ólög­lega kjörnu for­seta að það að kalla ráð­herra „gungu og druslu” sé í lagi nema það telj­ist til hefðar að nota slík orð? Mega þing­menn nota slíkt orð­færi? En þrátt fyrir að mennta­mála­ráð­herra hafi mis­notað orðið ofbeldi í póli­tískum til­gangi þá er mennta­mála­ráð­herra fyrst og fremst stjórn­mála­maður sem nýtir sín tæki­færi en er ágætis mann­eskja.“

Man ekki eftir að hafa skrifað undir siðareglurnar

Í bréfi Gunnars Braga seg­ist hann ekki muna eftir því að hafa und­ir­geng­ist þær siða­reglur með und­ir­skrift sinni. „Nú hefur komið í ljós í þessu máli, og öðrum, að fyr­ir­komu­lag það sem not­ast er við er í besta falli galið. Hvergi í lýð­ræð­is­ríki getur það talist eðli­legt að póli­tískir and­stæð­ingar fái vald til að „dæma” and­stæð­inga sína. Þá skal það enn og aftur tekið fram að und­ir­rit­aður eða aðrir sem hleraðir voru ólög­lega hafa ekki fengið ólög­legu upp­tök­urnar afhentar frá Alþingi þrátt fyrir að hafa óskað ítrekað eftir því. Einnig má benda á ósam­ræmi milli þess hand­rits sem Alþingi lét gera og þeirra bréfa sem borist hafa frá siða­nefnd.“

Gunnar Bragi fjallar jafn­framt um ummæli sín um hinar kon­urnar. „Siða­nefndin kemst að þeirri ótrú­legu nið­ur­stöðu að einka­spjall um hræsni þing­konu vegna MeToo-umræð­unnar sé brot á siða­reglum. MeToo-umræðan og sú hreyf­ing sem varð í kringum það varð til þess að opna loks augu margra fyrir alvar­leika máls­ins. Það gefur hins vegar engum leyfi til að baða sig í sviðs­ljósi á fölskum for­sendum. Í ólög­legu upp­tök­unum eru tveir ein­stak­lingar að segja frá miður góðum kynnum sínum af þing­kon­unni og hvernig hún áreitti þá. Allt það sem þar er sagt stend ég við en vil þó taka fram, líkt og ég gerði við við­kom­andi, að notkun á orð­inu „nauðgun” var of gróft og var hún beðin afsök­unar á þeirri orða notkun.

Það er hreint með ólík­indum að nefndin telji að frá­sögn af því sem verður ekki skýrt með orðum en sem lýs­ingu á áreiti sé brot á siða­reglum. Er nefndin að hvetja til þess að slík mál séu ekki rædd af þing­mönnum við vini eða kunn­ingja ef til­efni er til? Ég tel mik­il­vægt að hinir ólög­lega kjörnu for­setar kynni sér sam­talið til hlítar eins og það kemur fyrir í hand­riti því sem skrif­stofu­stjóri Alþingis lét gera,“ segir hann í bréf­inu.

„Ákveðið að krydda söguna nokkuð“

Varðandi orð Gunnars Braga um Ragn­heiði Run­ólfs­dóttur, sund­konu, segir hann að þau á Klaust­ur­bar hafi verið að ræða fyrr­ver­andi eig­in­mann hennar en sá starfi nú innan veggja Alþingis.

„Hún hafði sagt frá ömur­legri reynslu sinni í við­talið við Akureyri viku­blað árið 2017. Af hand­riti Alþingis er ljóst að til­efni umræð­unnar var ekki konan sjálf heldur fyrrum eig­in­maður hennar. Það er galið ef nefndin telur að gert hafi verið grín að slíku atviki.

Að lokum, virð­ist svo siða­nefndin eða minni­hluti hennar hafi áveðið að krydda sög­una nokkuð með því að breyta orða­lag­inu frá hand­riti Alþingis. Ákveður siða­nefndin eða minni­hluti hennar að nota orðið „sund­kerl­ing” í stað „sund­drott­ingar” sem er skv. hand­rit­inu. Er það aug­ljós­lega gert til að gera setn­ing­una meira krassandi,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár