Barnaleg tiltrú Samfylkingarinnar á Vinstri-Græn hafi orðið henni að falli

Sam­fylk­ingin ætl­aði sér stóra hluti fyrir síð­ustu alþing­is­kosn­ing­arnar en hafði ekki erindi sem erf­iði, og fór Logi ekki leynt með von­brigðin sem því fylgdu í ræðu sinni á flokks­stjórn­ar­fundi í dag.

Þetta kom fram í máli Loga á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í dag.
Þetta kom fram í máli Loga á flokks­stjórn­ar­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar í dag. Mynd: Bára Huld Beck

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir að þegar á hólm­inn hafi verið komið í síð­ustu Alþing­is­kosn­ingum hafi fólk ekki treyst sér til þess að kjósa breyt­ingar. Þá hafi barna­leg til­trú flokks­ins á að Vinstri-Græn hefði raun­veru­legan áhuga á rík­is­stjórn­ar­sam­starfi til vinstri reynst þeim ein þeirra stærstu mis­tök.

Þetta kom fram í máli Loga á flokks­stjórn­ar­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar í dag. Logi fór um víðan völl í ræðu sinni, en lá áherslan þó helst á kosn­ingum, bæði síð­ustu alþing­is­kosn­ingum sem og kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Sagði Logi ljóst að aldrei feng­ist nægur slag­kraftur til að hrinda í fram­kvæmd nauð­syn­legum umbóta­málum fyrir almenn­ing nema með miklu nán­ara sam­starfi umbóta­flokk­anna í stjórn­ar­and­stöðu og að þar megi sér­stak­lega líta til sam­starfs jafn­að­ar­manna á sveit­ar­stjórn­ar­stig­inu, sem Logi telur til mik­illar fyr­ir­myndar og sýni að hægt sé að vinna saman að mik­il­vægum málum í þágu almenn­ings. Á sveit­ar­stjórn­ar­stig­inu ætli Sam­fylk­ingin að því að verða áfram í far­ar­broddi og í í nánu sam­starfi við aðra umbóta­flokka eftir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar, sem eru á dag­skrá í maí.

Aðild Íslands að Evrópusambandinu verði sett rækilega á dagskrá

Þá snerti Logi einnig á inn­rás Rúss­lands í Úkraínu í ræðu sinni og við­brögðum við henni. Segir hann inn­rás Rúss­lands ekki ein­ungis árás gegn Úkraínu heldur árás gegn sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétti þjóða og ógn við lýð­ræði, frið og öryggi til langs tíma og segir mik­il­vægt að auk þess að taka þátt í sam­stilltum þving­ung­ar­að­gerðum gegn Rúss­landi og stuðn­ing við Úkraínu verði leiða leitað til þess að tryggja öryggi og styrkja varnir Íslands.

Telur Logi að aðild Íslands að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu dugi ekki ein og sér, og að í ljósi þess að Evr­ópu­sam­bandið hafi tekið sér vax­andi hlut­verk í varnar- og örygg­is­málum í kjöl­far inn­rás­ar­innar, í þeim til­gangi að tryggja betur lýð­ræði og frið í Evrópu, sé enn meiri ástæða en áður til þess að Ísland ger­ist full­gildur aðili að þessu sam­starfi lýð­ræð­is­ríkja. Um væri að ræða grund­vall­ar­hags­muni þjóð­ar­innar og að tími væri kom­inn til þess að setja aðild­ar­um­sókn að Evr­ópu­sam­band­inu ræki­lega á dag­skrá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sveitarstjórnarkosningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár