Sanna leiðir Sósíalistaflokkinn

Í til­kynn­ingu vegna fram­boðs­ins segir að fram­boð sós­í­alista til borg­ar­stjórnar sam­an­standi af bar­áttu­fólki með víð­tæka reynslu af kerfum og stofn­unum borg­ar­innar.

Sósíalistaflokkurinn fékk 6,2 prósent atkvæða í síðustu borgarstjórnarkosningum.
Sós­í­alista­flokk­ur­inn fékk 6,2 pró­sent atkvæða í síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Mynd: Bára Huld Beck

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir borg­ar­full­trúi leiðir lista Sós­í­alista­flokks­ins fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Flokk­ur­inn fékk 6,2 pró­sent atkvæða í síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, en sam­kvæmt fyrstu kosn­inga­spá Kjarnans og Dr. Bald­urs Héð­ins­sonar er flokknum spáð 7 pró­sent atkvæða.

Í öðru og þriðja sæti lista Sós­í­alista­flokks­ins í borg­inni eru Trausti Breið­fjörð Magn­ús­son og Andrea Jóhanna Helga­dóttir.

Í til­kynn­ingu vegna fram­boðs­ins segir að fram­boð sós­í­alista til borg­ar­stjórnar sam­an­standi af bar­áttu­fólki með víð­tæka reynslu af kerfum og stofn­unum borg­ar­innar. „Sós­í­alista­flokk­ur­inn vill að valdið sé hjá fólk­inu, þannigað ákvarð­anir sem hafa áhrif á líf fólks séu teknar af íbúum borg­ar­innar. Reykja­vík­ur­borg áað vera byggð upp út frá þörfum og vænt­ingum fólks­ins sem þar býr en ekki á for­send­umfjár­magns­ins, sem allt of oft fær að ráða för. Byrja þarf á þörfum þeirra sem búa við verstu kjörin og byggja síðan upp, þannig búum við til gott sam­fé­lag sem er hannað fyrir okkur öll.“

Listi Sósíalistaflokksins fyrir borgarstjórnarkosningar 2022:

  1. Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi
  2. Trausti Breið­fjörð Magn­ús­son, stuðn­ings­full­trúi og nemi
  3. Andrea Jóhanna Helga­dóttir, starfs­maður leik­skóla í Rvk
  4. Ásta Þ. Skjald­dal Guð­jóns­dóttir, sam­hæf­ing­ar­stjóri Pepp Ísland, gras­rótar fólks í fátækt
  5. Halldóra Haf­steins­dóttir, frí­stunda­leið­bein­andi
  6. Geirdís Hanna Krist­jáns­dóttir, öryrki
  7. Sturla Freyr Magn­ús­son, línu­kokkur
  8. Thelma Rán Gylfa­dóttir, sér­kenn­ari
  9. Guðrún Vil­hjálms­dóttir, fram­reiðslu­maður
  10. Ævar Þór Magn­ús­son, deild­ar­stjóri
  11. Claudia Overesch, nemi
  12. Heiðar Már Hild­ar­son, nemi
  13. Krist­björg Eva Andersen Ramos, nem­andi í félags­ráð­gjöf við HÍ
  14. Ian McDonald, fram­leiðslu­tækni­maður
  15. Guðrún Hulda Fossdal, leigj­andi
  16. Omel Svavarss, fjöl­lista­kona
  17. Bjarki Steinn Bragason, nemi og skóla­liði
  18. Bogi Reyn­is­son, tækni­maður
  19. Hildur Odds­dóttir, umsjón­ar­kona Peppara
  20. Laufey Líndal Ólafss­dóttir, stjórn­mála­fræð­ingur
  21. Björgvin Þór Þór­halls­son, fyrr­ver­andi skóla­stjóri
  22. Signý Sig­urð­ar­dóttir, háskóla­mennt­aður mynd­lista­leið­bein­andi í leik­skóla
  23. Þórdís Bjarn­leifs­dóttir, nemi
  24. Bára Hall­dórs­dóttir, lista­kona og athafnasinni
  25. Atli Gíslason, for­maður ungra Sós­í­alista
  26. Ása Lind Finn­boga­dóttir, fram­halds­skóla­kenn­ari
  27. Silva Á. Skjald­dal Egg­erts­dóttir, afgreiðslu­kona
  28. Dúa Þor­finns­dóttir, lög­fræð­ingur
  29. Joe W Walser III, sér­fræð­ingur í manna­beina­safni
  30. Anita Da Silva Bjarna­dóttir, ein­stæð móðir og leigj­andi
  31. Sindri Eldon Þórsson, plötu­sali
  32. Oddný Eir Ævars­dóttir, rit­höf­undur
  33. Atli Ant­ons­son, dokt­or­snemi
  34. Eyjólfur Guð­munds­son, eðl­is­fræð­ingur
  35. Ásgrímur G. Jör­unds­son, áfengis- og vímu­efna­ráð­gjafi
  36. Ragn­heiður Esther Briem, heima­vinn­andi
  37. Tóta Guð­jóns­dóttir, leið­sögu­maður
  38. Símon Vestarr, tón­list­ar­maður
  39. Védís Guð­jóns­dóttir, skrif­stofu­stjóri
  40. Elísabet María Ást­valds­dóttir, leik­skóla­kenn­ari og list­greina­kenn­ari barna
  41. Einar Valur Ingi­mund­ar­son, verk­fræð­ingur
  42. Sigrún Jóns­dóttir, sjúkra­liði og leigj­andi
  43. Hall­fríður Þór­ar­ins­dóttir, mann­fræð­ingur
  44. Jóna Guðbjörg Torfa­dóttir, fram­halds­skóla­kenn­ari
  45. Sigrún Unn­steins­dóttir, atvinnu­laus
  46. Anna Wojtynska, doktor í mann­fræði
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarstjórn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár