Eignir maka ná ekki til hagsmunaskráningar borgarfulltrúa

Oddviti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík leit­aði til skrif­stofu borg­ar­stjórnar hvort henni bæri að skrá hlut eig­in­manns síns í félögum sem fjár­hags­lega hags­muni borg­ar­full­trúa. Skrif­stofan mat að ekki væri þörf á því.

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, fékk þær upplýsingar frá skrifstofu borgarstjórnar að hún þurfi ekki að skrá hluti eiginmanns síns í félögum sem fjárhagslega hagsmuni borgarfulltrúa.
Hildur Björns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, fékk þær upp­lýs­ingar frá skrif­stofu borg­ar­stjórnar að hún þurfi ekki að skrá hluti eig­in­manns síns í félögum sem fjár­hags­lega hags­muni borg­ar­full­trúa. Mynd: Bára Huld Beck

Hags­muna­skrán­ing borg­ar­full­trúa á fjár­hags­legum hags­munum ná ekki til eign­ar­hluta í félögum sem skráðir eru á maka. Þetta er mat skrif­stofu borg­ar­stjórnar. Hildur Björns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, leit­aði ráð­gjafar hjá skrif­stof­unni þess efnis hvort henni bæri að skrá hlut eig­in­manns síns í félögum. Nið­ur­staðan var að svo er ekki.

Uppfærð hags­mun­ar­skrán­ing Hildar hefur nú verið birt á vef Reykja­vík­ur­borgar og snýr breyt­ingin að því að hún hefur sagt sig úr stjórn Orku­veitu Reykja­víkur (OR) og tekið sæti í stjórn Faxa­flóa­hafna. Með því að færa sig milli stjórna vill Hildur koma í veg fyrir mögu­lega hags­muna­á­rekstra sem gætu tengst kjöri eig­in­manns hennar, Jóns Skafta­sonar, í stjórn Sýnar.

Jón var kjör­inn í stjórn Sýnar 31. ágúst síð­ast­lið­inn á hlut­hafa­fundi sem var boð­aður af kröfu félags­ins Gavia Invest, sem keypti í sumar rúm­lega 16 pró­senta hlut í Sýn, að mestu af félagi í eigu Heið­ars Guð­jóns­son­ar, sem lét af störfum sem for­stjóri Sýnar í lok júlí, sem átti 12,72 pró­senta hlut.

Ga­via Invest er nýstofnað fjár­­­­­fest­inga­­­fé­lag sem Jón er í for­svari fyr­­­ir. Gavia Invest er í eigu þriggja félaga, Capi­­­tal ehf., E&S 101 ehf. og AB 891 ehf. Eig­endur þess­­­­ara félaga eru, auk Jóns, Reynir Grét­­­­ar­s­­­­son, Hákon Stef­áns­­­­son, Jon­­at­han R. Rubini, Andri Gunn­­­­ar­s­­­­son og Mark Kroloff.

[links]Hildur sagði í sam­tali við Kjarnann í gær að hún væri að vinna í því að upp­færa upp­lýs­ingar um fjár­hags­lega hags­muni í hags­muna­skrán­ingu borg­ar­full­trúa í sam­starfi við skrif­stofu borg­ar­stjóra. Hún hafi þurft að leita ráð­gjafar með nokkur smá­at­riði.

Bjarni Þór­odds­son, verk­efna­stjóri og stað­geng­ill skrif­stofu­stjóra, segir í sam­tali við Kjarnann að spurn­ing Hildar hafi snúið að því hvort hún ætti að skrá hlut eig­in­manns síns í félögum. Skiln­ingur skrif­stofu borg­ar­stjórnar á reglum um hags­muna­skrán­ingu hafi verið að ekki ætti að skrá það.

Í reglum um skrán­ingu á fjár­hags­legum hags­munum borg­ar­full­trúa og trún­að­ar­störfum utan borg­ar­stjórnar, sem sam­þykktar voru í mars 2020, er hvergi minnst á skrán­ingu fjár­hags­legra hags­muna sem snúa að eignum eða stjórn­ar­setu maka. Reglunum er ætlað að veita almenn­ingi upp­lýs­ingar um fjár­hags­lega hags­muni borg­ar­full­trúa og vara­borg­ar­full­trúa hjá Reykja­vík­ur­borg og trún­að­ar­störf þeirra utan borg­ar­stjórn­ar. Regl­urnar eiga þannig að auka gagn­sæi í störfum borg­ar­stjórn­ar.

Hildur segir að það sé hins vegar ekk­ert leynd­ar­mál að eig­in­maður hennar eigi hlut í félag­inu Gavia Invest, líkt og fjallað hefur verið um í fjöl­miðlum. „Það er svo sífellt verk­efni stjórn­mála­manna að gæta að hæfi sínu, hvort sem er almennt eða við afgreiðslu ein­stakra mála.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarstjórn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár