Markmiðið „að taka yfir borgina“

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í Reykja­vík þarf að vera „opinn í báða enda“ þegar kemur að meiri­hluta sam­starfi. Mark­miðið er að „taka yfir borg­ina,“ segir Hildur Björns­dóttir sem sæk­ist eftir for­ystu­sæti þar sem fyrir er „vinur hennar“, Eyþór Arnalds.

Eyþór Arnalds og Hildur Björnsdóttir sækjast bæði eftir því að leiða Sjálfstæðisflokkinn í næstu borgarstjórnarkosningum.
Eyþór Arnalds og Hildur Björns­dóttir sækj­ast bæði eftir því að leiða Sjálf­stæð­is­flokk­inn í næstu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum.

„Ég býð mig fram til for­ystu og við sækj­umst bæði eftir sama sæti,“ sagði Hildur Björns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þegar Egill Helgason, umsjón­ar­maður Silf­urs­ins, sagði hana vera að bjóða sig fram gegn Eyþóri Arnalds núver­andi odd­vita flokks­ins í borg­inni. „Það er styrk­leika­merki hjá stórum flokki að fleiri en einn sæk­ist eftir að leiða.“

Ekki hefur enn verið ákveðið hvenær próf­kjör flokks­ins í Reykja­vík fer fram en miðað er við að það verði í lok febr­úar. Kosn­ing­arnar fara svo fram um miðjan maí.

„Ætlarðu að berj­ast fyrir sæti þínu?“ spurði Egill svo Eyþór sem var einnig gestur Silf­urs­ins. „Verðu maður ekki að gera það?“ svar­aði Eyþór. Hann seg­ist hafa staðið fyrir ákveðnum sjón­ar­miðum í borg­ar­mál­unum og seg­ist skynja núna að það sé kom­inn fram „miklu breið­ari kór“ sem sé sam­mála um það að margt þurfi að laga í borg­inni. „Ég tel að ég hafi náð þar hljóm­grunni meðal margra aðila í þjóð­fé­lag­inu.“ Hann sagði að nú væri „komið að því að breyta í vor“. Fólk væri komið með „óþol“ og að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn væri „eina hreyfi­aflið sem getur breytt“.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hlaut 31 pró­sent atkvæða í síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum en end­aði í minni­hluta. Ef svipuð nið­ur­staða yrði upp á ten­ingnum þyrfti flokk­ur­inn að leita samt­arfs, vilji hann kom­ast til valda. Eyþór seg­ist ekki úti­loka sam­starf við neinn en nefnt hefur verið að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, kæmi hann sterkt inn í kosn­ingum í vor líkt og hann gerði í þing­kosn­ing­unum nýverið, gæti orðið fyrsta val. Eyþór sagði að sjá yrði til hver yrði í fram­boði til hvers flokks til að sjá „hverjir geta dansað saman“.

Egill spurði Hildi hver væri mein­ing­ar­mun­ur­inn á henni og Eyþóri. „Telur þú þig geta fiskað betur en hann?“

Hildur sagð­ist telja að það þyrfti ekki að vera „ein­hver stór­kost­legum mein­ing­ar­munur“ þótt fólk væri að sækj­ast eftir sama sæti. „Það sem fólk þarf þá að gera upp við sig er hvor aðil­inn er með meiri aðlað­andi fram­tíð­ar­sýn, hvor sé lík­legri til að vinna kosn­ingar og hvor aðil­inn sé lík­legri til að leiða okkur inn í meiri­hluta­sam­starf.“

Egill spurði þá hvort hún teldi sig lík­legri til alls þessa en Eyþór.

„Ég býð mig fram vegna þess að ég tel mig geta gert allt þetta,“ svar­aði Hildur. „Ég er ekki komin hingað til að hall­mæla vini mínum Eyþóri, við erum sam­herjar í Sjálf­stæð­is­flokknum. En við sækj­umst eftir sama for­ystu­sæti og um það snýst málið. Heila málið er auð­vitað að vinna kosn­ingar og kom­ast í meiri­hluta.“

Hún sagði að eftir síð­ustu kosn­ingar hafi aðrir flokkar lokað á sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk í borg­ar­stjórn, jafn­vel þótt flokk­ur­inn hafi unnið kosn­inga­sigur. „Það er staða sem við getum ekki fundið okkur aftur í. Við þurfum að vera opin í alla enda. Við þurfum að geta myndað meiri­hluta með fólki sem á með okkur mál­efna­legan grund­völl og að við getum tekið yfir borg­ina. Það er auð­vitað mark­mið okkar sjálf­stæð­is­manna. Okkur finnst kom­inn tími á það fyrir löngu síðan að við höfum ein­hver áhrif í þess­ari borg.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarstjórn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár