Breyttar reglur gætu hækkað leigu á félagslegu húsnæði

Í umsögn fjár­mála­skrif­stofu Reykja­vík­ur­borgar um til­lögur að breyt­ingum á reglum um félags­legt leigu­hús­næði segir að Félags­bú­staðir gætu þurft að hækka húsa­leigu. Áhrifin séu þó ekki ljós.

Breyt­ingar á reglum um félags­legt leigu­hús­næði í Reykja­vík munu að óbreyttu leiða til þess að hækka þurfi leigu. Þetta kemur fram í umsögn fjár­mála­skrif­stofu Reykja­vík­ur­borgar um regl­urnar, sem sam­þykktar voru á borg­ar­ráðs­fundi 2. maí síð­ast­lið­inn.

Hækkunin komi til vegna þess að breyttar úthlut­un­ar­reglur geti leitt af sér að fleiri eigi rétt á félags­legu leigu­hús­næði.

Breyt­ing­arnar fel­ast í því að teknar eru upp heild­stæðar reglur um úthlutun á félags­legu hús­næði á vegum Reykja­vík­ur­borgar. Þær munu leysa af hólmi reglur um félags­legt leigu­hús­næði, þjón­ustu­í­búðir aldr­aðra og verk­lag um úthlutun á sér­tæku hús­næði fyrir fatlað fólk og heim­il­is­lausa sem hafa miklar þjón­ustu­þarfir.

Í bókun meiri­hlut­ans á borg­ar­ráðs­fundi segir að með þessum reglum séu tekju- og eign­ar­við­mið rýmkuð og félags­legt mat skýrt, sem geri íbúum kleift að meta betur stöðu sína.

Fjár­mála­skrif­stofan gerir ráð fyrir að mögu­legur kostn­að­ar­auki vegna ein­stak­linga sem kunna að bæt­ast við á biðlista falli til hjá Félags­bú­stöðum. Reikna megi með að kostn­aður við öflun hús­næðis geti numið allt að 4,3 millj­örðum króna og kostn­aður vegna þeirra 150 millj­ónum. Þetta segir fjár­mála­skrif­stofan að muni að óbreyttu skila sér í því að nauð­syn­legt verði fyrir Félags­bú­staði að hækka húsa­leigu.

Fjár­mála­skrif­stofan segir þó að þarna sé um mat á hámarks­á­hrifum að ræða og að lík­ast til muni áhrifin verða mun minni.

Í umræðum um breyt­ing­ar­til­lög­urnar í vel­ferð­ar­ráði lagði full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks fram bókun þar sem stefnu­leysi borg­ar­innar í mála­flokknum er gagn­rýnt. Í bók­un­inni segir að fjölgun íbúða í félags­lega kerf­inu hafi ekki skilað sér í fækkun á biðlistum heldur hafi biðlistar lengst ár frá ári. Hann segir að marka þurfi stefnu þar sem fólki er hjálpað við að kom­ast út úr félags­lega kerf­inu, hann segir að eignar- og tekju­mörk núver­andi kerfis vera fátækt­ar­gildru sem hafi letj­andi áhrif á fólk.

Full­trúar Sam­fylk­ingar, Pírata og Vinstri grænna neit­uðu því að umsækj­endum færi fjölg­andi, þeim hafi fækkað um rúm sjö pró­sent á milli ára og að það hafi gerst með­fram fjölg­unum á íbúðum í félags­lega kerf­inu. Einnig hafi verið farið í sér­stakt átak til að koma til móts við barna­fjöl­skyldur og keyptar hafi verið 49 íbúðir fyrir það verk­efni. Fulltrúi Sós­í­alista­flokks­ins lét bóka að almenn skil­yrði um að umsækj­andi hafi þurft að eiga lög­heim­ili í Reykja­vík síð­ustu tólf mán­uði geri það að verkum að töl­urnar end­ur­spegli ekki þann fjölda Reyk­vík­inga sem séu í raun­veru­legri þörf fyrir félags­legt leigu­hús­næði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarstjórn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár