Borgarstjóri í veikindaleyfi vegna sýkingar

„Þetta núna teng­ist ekki ein­hverjum fjöl­miðla­málum. Það er verra að vera ekki í hring­iðunni þegar svona er,“ segir Dagur B. Egg­erts­son um núver­andi veik­inda­leyfi sitt.

Dagur B. Eggertsson
Dagur B. Egg­erts­son Mynd: Birgir Þór Harðarson

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri, er í veik­inda­leyfi í nokkra daga á meðan hann nær sér af sýk­ingu. Hann greind­ist með alvar­legan gigt­ar­sjúk­dóm eftir að hafa fengið sömu sýk­ingu síð­asta haust, en sú var alvar­legri. Í sam­ráði við lækna var Dagur settur á með­ferð í fyrra­dag til að sýk­ingin í kvið­ar­holi gangi ekki jafn langt og síð­ast. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Dagur greind­ist með svo­kall­aða fylgi­gigt í sumar, sem skerðir hreyfi­getu hans og getur flakkað á milli liða og lagst á líf­færi. „Ég tók þá ákvörðun að ég þyrfti að jafna mig og fékk stað­gengla til þess að sinna mínum skyldum á meðan. Ég bý svo vel að eiga góða sam­starfs­menn. Ég von­ast til að til að vera orð­inn betri eftir helgi, en þarf að meta það með mínum læknum.“ segir Dagur.

Mikið hefur mætt á meiri­hluta borg­ar­stjórnar síð­ustu daga að svara fyrir Bragga­málið svo­kall­aða, þar sem fram­kvæmdir á vegum borg­ar­innar fóru hund­ruð millj­ónir króna fram úr áætlun. Það mál ásamt starfs­manna­máli Orku­veit­unnar hafa vakið hörð við­brögð og fjallað hefur verið mikið um bæði málin í fjöl­miðlum. Á báðum stöðum stendur yfir úttekt á því hvað að var sem fór úrskeiðis. Það er því mikið álag á borg­ar­stjór­anum þessa dag­ana en Dagur segir þessi fjöl­miðla­mál þó ekki hafa áhrif á veik­indin. „Þetta núna teng­ist ekki ein­hverjum fjöl­miðla­málum. Það er verra að vera ekki í hring­iðunni þegar svona er,“

„Ég tók það skref í sumar að segja frá því að ég væri með þennan sjúk­dóm og vissi ekki hvernig fram­haldið yrði. Það var kannski til þess að það kæmi ekki á óvart ef ég væri oftar með stað­gengla eða legði lín­urnar öðru­vísi. Það eru von­brigði að í fyrsta sinn sem ég hef þurft að taka frí, fari strax á loft sam­sær­is­kenn­ingar. Ég vona að lær­dóm­ur­inn sé ekki sá að manni hefn­ist fyrir að vera opinn. Ég vil ekki að það gangi trölla­sögur um að ég liggi fyrir dauð­anum.“ segir Dagur B. Egg­erts­son í sam­tali við Frétta­blaðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarstjórn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár