Reykjavíkurborg greiddi rúman milljarð króna fyrir birtingu auglýsinga á árunum 2010-2019. Alls keypti borgin birtingar af um 500 birgjum, þar af keypti hún birtingar beint af fjölmiðlum fyrir 460 milljónir.
Þetta kemur fram í svari Fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur, borgarfulltrúa Miðflokksins.
[adspot]Mest keypti Reykjavíkurborg af Fréttablaðinu, fyrir 191 milljónir króna, en 61 milljón króna af Árvakri og 59 milljónir króna af Ríkisútvarpinu. Samtals greiddi Reykjavíkurborg tæpar 12 milljónir króna fyrir birtingar á auglýsingum á Facebook.
Birtingar verkfræðistofu
Athygli vekur að borgin keypti auglýsingar af fyrirtækinu H.Pálssyni fyrir rúmar 57 milljónir á tímabilinu. Í svari Fjármálaskrifstofunnar segir að H. Pálsson sé verkfræðiskrifstofa sem sjái um auglýsingar á aðal- og deiliskipulagi borgarinnar. Samkvæmt heimasíðu sér það hinsvegar um þjónustu við ljósmyndara og prentiðnað.
Í frétt Kjarnans frá 2014 sagði Hákon Pálsson, framkvæmdastjóri H. Pálsson, að viðskipti borgarinnar við fyrirtækið byggi á langri hefð. Þar sagði hann fyrirtækið sé hefðbundið fyrirtæki í prentiðnaði og sjái um lögbundnar auglýsingar fyrir Reykjavíkurborg. Hann segir þar að fyrirtækið sinni auglýsingagerð og birtingaþjónustu fyrir nokkra aðra viðskiptavini, en þeir séu ekki margir.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir