Vill að Líf víki sem stjórnarmaður borgarinnar í Sorpu

Borg­ar­full­trúi Flokks fólks­ins hefur lagt fram til­lögu þess efnis að Líf Magneu­dóttir, stjórn­ar­maður Reykja­vík­ur­borgar í Sorpu og borg­ar­full­trúi VG, víki úr stjórn­inni og í reynd að öll stjórnin segi af sér.

Kolbrún Baldursdóttir
Kolbrún Bald­urs­dóttir Mynd: Bára Huld Beck

Flokkur fólks­ins leggur til að stjórn­ar­maður Reykja­víkur í Sorpu víki sæti úr stjórn og telur hann í raun öll að stjórnin segði af sér. Henni hafi mis­tek­ist hlut­verk sitt.

Kolbrún Bald­urs­dóttir, borg­ar­full­trúi Flokks fólks­ins, lagði fram til­lögu þess efnir í borg­ar­ráði í morgun en henni var frestað.

Í stjórn Sorpu sitja Birkir Jón Jónsson fyrir Kópa­vogsbæ, sem einnig er for­maður, Líf Magneu­dóttir fyrir Reykja­vík­ur­borg, en hún er vara­for­maður, Ágúst Bjarni Garð­ars­son fyrir Hafn­ar­fjarð­arbæ, Jóna Sæmunds­dóttir fyrir Garðabæ, Kolbrún G. Þor­steins­dóttir fyrir Mos­fellsbæ og Bjarni Torfi Álf­þórs­son fyrir Sel­tjarn­ar­nesbæ.

[links]Stjórn Sorpu ákvað á stjórn­­­ar­fundi í gær að afþakka vinn­u­fram­lag Björns H. Hall­dórs­son­ar, fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, á meðan mál hans eru til með­­­ferðar innan stjórn­­­ar, að því er fram kemur í til­­kynn­ingu sem stjórn Sorpu sendi frá sér vegna skýrslu innri end­­ur­­skoð­unar Reykja­vík­­­ur­­borgar um ástæður fram­úr­keyrslu sem varð á áætl­­uðum fram­­kvæmda­­kostn­aði vegna bygg­ingar gas- og jarð­­gerð­­ar­­stöðvar í Álfs­­nesi og mót­­töku­­stöðvar í Gufu­­nesi.

Stjórnin reyni að fría sig ábyrgð

Í til­lögu Flokks fólks­ins segir að enn ein svört skýrsla innri end­ur­skoð­unar hafi birst á þessu kjör­tíma­bili sem varla er hálfnað og snúi nú að stjórn­ar­háttum Sorpu.

„Í skýrsl­unni koma fram ástæður fram­úr­keyrslu sem varð á áætl­uðum fram­kvæmda­kostn­aði vegna bygg­ingar gas- og jarð­gerð­ar­stöðvar í Álfs­nesi og mót­töku­stöðvar í Gufu­nesi. Fram­kvæmd­ar­stjórn, undir stjórn stjórnar Sorpu hafði lagt til að tæpum 1,4 millj­örðum króna yrði bætt við fjár­hags­á­ætlun fyr­ir­tæk­is­ins vegna næstu fjög­urra ára. Innri end­ur­skoðun Reykja­vík­ur­borgar gerði jafn­framt úttekt á stjórn­ar­háttum félags­ins og fann þar margt athuga­vert og jafn­vel ámæl­is­vert. Að sögn fram­kvæmda­stjóra höfðu hvorki stjórn­ar­for­maður né aðrir stjórn­ar­menn frum­kvæði að því að afla upp­lýs­inga um heild­ar­kostnað á hverjum tíma til að gera við­eig­andi sam­an­burð við áætl­an­ir,“ segir í til­lög­unni.

Þá spyr Kolbrún hvort stjórn­ar­maður Sorpu hljóti ekki að víkja úr stjórn í kjöl­far áfell­is­dóms sem stjórnin fái. Varla sé hægt að henda allri ábyrgð­inni á fram­kvæmd­ar­stjór­ann. Ábyrgðin hljóti fyrst og fremst að vera stjórn­ar­innar í þessu máli. Stjórn Sorpu reyni að fría sig ábyrgð meðal ann­ars með því að segja að hún hafi kallað eftir úttekt innri end­ur­skoð­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár