Framkvæmdastjóri Sorpu látinn víkja eftir svarta skýrslu innri endurskoðunar

Alvar­legur mis­brestur var á upp­lýs­inga­gjöf fram­kvæmda­stjóra Sorpu til stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins. Afleið­ingin var að fram­kvæmda­kostn­aður vegna gas- og jarð­gerð­ar­kostn­aðar fór langt fram úr áætl­unum.

Gas- og jarðgerðarstöðin sem á að rísa í Gufunesi.
Gas- og jarð­gerð­ar­stöðin sem á að rísa í Gufunesi. Mynd: Sorpa

Stjórn Sorpu ákvað á stjórn­ar­fundi í dag að afþakka vinnu­fram­lag Björns H. Hall­dórs­sonar, fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, á meðan að „mál hans eru til með­ferðar innan stjórnar.“ Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem stjórn Sorpu sendi frá sér vegna skýrslu innri end­ur­skoð­unar Reykja­vík­ur­borgar um ástæður fram­úr­keyrslu sem varð á áætl­uðum fram­kvæmda­kostn­aði vegna bygg­ingar gas- og jarð­gerð­ar­stöðvar í Álfsnesi og mót­töku­stöðvar í Gufunesi (GAJA).

Skýrslan var unnin að beiðni stjórnar Sorpu eftir að fram­kvæmda­stjór­inn hafði lagt til að tæpum 1,4 millj­örðum króna yrði bætt við fjár­hags­á­ætlun fyr­ir­tæk­is­ins vegna næstu fjög­urra ára og var Innri end­ur­skoðun Reykja­vík­ur­borgar jafn­framt falið að gera úttekt á stjórn­ar­háttum félags­ins.

Í til­kynn­ing­unni segir að skýrslan hafi verið afhent stjórn Sorpu þann 30. des­em­ber sl. „Þann sama dag var fram­kvæmda­stjóra Sorpu einnig afhent ein­tak af skýrsl­unni og þann 6. jan­úar sl. var honum gef­inn frestur til að skila til stjórnar and­mælum sínum og athuga­semdum. Úttektin var tekin til efn­is­legrar með­ferðar á stjórn­ar­fundi í dag og í kjöl­farið sett á vef Sorpu þar sem hún er öllum aðgengi­leg. Á fund­inum var sam­þykkt að afþakka vinnu­fram­lag fram­kvæmda­stjóra félags­ins á meðan mál hans er til með­ferðar innan stjórnar.“

[adspot]Stjórn Sorpu segir að hún muni á næstu mán­uðum rýna efni úttekt­ar­innar og leita leiða til þess að efla yfir­sýn, stjórn­ar­hætti og eft­ir­lits­þætti félags­ins í sam­ráði við eig­endur sína, en félagið er rekið sem byggða­sam­lag sex sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. „For­svars­menn félags­ins munu ekki tjá sig um efni skýrsl­unnar eða frek­ari við­brögð við henni á meðan and­mæla­frestur fram­kvæmda­stjór­ans er í gildi og stjórn­inni hefur gef­ist tími til að gaum­gæfa athuga­semdir hans.“

Margháttaðar athugasemdir

Á meðal þess sem fram kemur í skýrsl­unni stýri­hópur eig­enda­vett­vangs og rýni­hópur stjórnar Sorpu, sem áttu að hafa eft­ir­lit með verk­efn­inu, hafi reynst lítt virkir. Þá hafi fram­vindu­skýrslur fram­kvæmda­stjóra til stjórnar vegna bygg­ingar GAJA verið ómark­vissar og stundum með röngum upp­lýs­ingum, auk þess sem skýrslu­gjöf hefði átt að vera reglu­bundn­ari. „full­nægj­andi upp­lýs­inga­gjöf og mis­vísandi orða­notkun í skýrslum til stjórnar var sér­stak­lega óheppi­leg þar sem stjórn Sorpu var að meiri­hluta skipuð nýjum full­trúum eftir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar 2018 auk þess sem nýr for­maður stjórnar hafði ekki verið áður í stjórn. Að sögn fram­kvæmda­stjóra höfðu hvorki stjórn­ar­for­maður né aðrir stjórn­ar­menn frum­kvæði að því að afla upp­lýs­inga um heild­ar­kostnað á hverjum tíma til að gera við­eig­andi sam­an­burð við áætl­anir. Lengri skip­un­ar­tími full­trúa í stjórn myndi auka og festa í sessi þekk­ingu á rekstri félags­ins svo eft­ir­lits­hlut­verk verði mark­viss­ara.“

Í skýrsl­unni segir einnig að innri end­ur­skoðun telji að alvar­legur mis­brestur hafi orðið í upp­lýs­inga­gjöf fram­kvæmda­stjóra Sorpu til stjórnar þegar Mannvit lagði fram nýja kostn­að­ar­á­ætlun aðeins mán­uði eftir að fimm ára áætlun Sorpu 2019- 2023 var sam­þykkt af stjórn í októ­ber 2018. Sú áætlun var 500 millj­ónum krónum hærri sem er 500 milj­ónum krónum hærri en stjórn hafði ráð­gert. „Stjórn var aldrei upp­lýst um hina nýju áætlun né kom hún til umfjöll­unar á vett­vangi hennar. Að mati Innri end­ur­skoð­unar bar fram­kvæmda­stjóra að leggja þessa áætlun Mannvits fyrir stjórn svo hún gæti tekið ákvörðun um hvort þörf væri á að leggja fram við­auka við fjár­hags­á­ætlun sem borg­ar­stjórn Reykja­víkur tæki til afgreiðslu.“

Hægt er að lesa skýrsl­una í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár