Dagur: Nauðsyn­legt að hætta skot­grafa­hernaði varðandi ferðamáta

Borg­ar­stjór­inn segir að nauð­syn­legt sé að kom­ast „út úr þeim skot­grafa­hern­aði að líta á að ein­hver einn ferða­máti skuli ráða“. Hann vill að Borg­ar­lín­unni verði flýtt.

Dagur B. Eggertsson
Dagur B. Egg­erts­son Mynd: Birgir Þór

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri telur að horfa ætti til þess að flýta fram­kvæmd­um við Borg­ar­línu og aðrar sam­göngu­bæt­ur. Við nú­ver­andi aðstæður í efna­hags­líf­inu sé slíkt kjörið. Þetta kemur fram í við­tali í Morg­un­blað­inu í dag.

Mikill tími fór í það að ræða ýmis þing­mál tengd sam­göngum á Alþingi síð­ustu vikur þess í júní. Þingmenn Mið­flokks­ins leiddu þá umræðu með mál­þófi og sáu þeir sér­stak­lega athug­vert við fyr­ir­hug­aða Borg­ar­línu.

Þann 29. júní var þó sam­þykkt þing­mál sem færir Borg­ar­línu nær því að verða að veru­leika, en 46 þing­menn allra flokka nema Mið­flokks­ins og Flokk fólks­ins sam­þykktu lög sem heim­ila stofnun opin­bers hluta­fé­lags um upp­bygg­ingu sam­göngu­inn­viða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem verður í sam­eign rík­is­ins og sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Borg­ar­stjór­inn segir í sam­tali við Morg­un­blaðið að með því að auka vægi al­menn­ings­sam­gangna í um­ferð­inni þá rýmk­ist um aðra um­ferð á sam­göngu­æðum höf­uð­borg­ar­svæðis­ins. Einka­bíll­inn fái meira rými, en einnig sé skapað svig­rúm fyr­ir þá sem ganga, hlaupa eða fara leiða sinn­ar á reið­hjóli. Deili­bíl­ar eigi sömu­leiðis að vera sjálf­sagður sam­göngu­kost­ur.

Í fram­tíð­inni verði ferða­venj­ur flestra meiri blanda ólíkra kosta en nú. „Því er okk­ur nauð­syn­legt að kom­ast út úr þeim skot­grafa­hern­aði að líta á að ein­hver einn ferða­máti skuli ráða,“ seg­ir Dag­ur.

­Borg­ar­línan er heiti á sam­starfs­verk­efni sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um afkasta­mikið almenn­ings­sam­göngu­kerfi. Búið er að kort­leggja helstu sam­göngu­ása á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem þetta nýja sam­göngu­kerfi mun liggja. Borg­ar­línan mun teygja sig í gegnum öll sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og vera allt að 57 kíló­metrar að lengd. Ekki verða allir kíló­metr­arnir lagðir í einu heldur verður verk­efnið áfanga­skipt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár