„Búið að markaðsvæða þátttöku í frístundastarfi“

Borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins telur að frí­stunda­kortin taki ekki til­lit til und­ir­liggj­andi þátta á borð við fátækt og skort. Hún segir að frí­stunda­heim­ilin ættu að vera gjald­frjáls.

Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins.
Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins, segir að oft kosti að fá aðgang að pen­ingum og að frí­stunda­kort Reykja­vík­ur­borgar sé eitt dæmið um það. Þetta kom fram í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu hennar í vik­unni.

Frí­stunda­kortið er styrkja­kerfi í frí­stunda­starfi fyrir 6 til 18 ára börn og ung­linga með lög­heim­ili í Reykja­vík. Á vef­síðu borg­ar­innar kemur fram að styrk­ur­inn sé 50.000 krónur á barn á ári. Ekki sé um bein­greiðslur til for­ráða­manna að ræða, heldur hafi þeir rétt til að ráð­stafa til­greindri upp­hæð í nafni barns síns til nið­ur­greiðslu á þátt­töku- og æfinga­gjöldum.

Sanna telur að þessi leið virki ekki til þess að tryggja að öll börn og ung­menni geti æft það sem þau vilja. „Yfirlýst mark­mið Reykja­vík­ur­borgar með frí­stunda­kort­inu er að tryggja að börn geti tekið þátt í upp­byggi­legu frí­stunda­starfi óháð efna­hag eða félags­legum aðstæðum. Ég var enn í grunn­skóla þegar frí­stunda­kortið kom til sög­unnar og ég man ekki eftir því. Mér finnst lík­legt að við mæðgur höfum hugsað að þetta myndi hvað sem er ekki dekka neitt að fullu og því engin ástæða til þess að taka þátt í ein­hverju ef þú átt ekki fyrir öllu nám­skeið­inu.“

Frístundaheimilin ættu að vera gjaldfrjáls

End­ur­skoðun á reglu­verki um frí­stunda­kortið var til umræðu á borg­ar­stjórn­ar­fundi í vik­unni og ræddu borg­ar­full­trúar skýrslu þar sem þessi mál voru tekin til skoð­unar. „Í henni voru lagðar fram nið­ur­stöður könn­unar sem var send til for­eldra/for­ráða­manna allra grunn­skóla­barna í Reykja­vík og svörun var um 40 pró­sent. 16 pró­sent nýttu frí­stunda­kortið á frí­stunda­heim­ili því ann­ars hefðu þau ekki efni á því að hafa börnin á frí­stunda­heim­ili og 9 pró­sent nýttu kortið á frí­stunda­heim­ili þar sem þau höfðu ekki efni á að setja barnið í annað frí­stunda­starf,“ skrifar Sanna.

Telur hún í fyrsta lagi að frí­stunda­heim­ili borg­ar­innar ættu að vera gjald­frjáls. Í raun sé búið að mark­aðsvæða þátt­töku í frí­stunda­starfi, þar sem meira fjár­magn veiti aðgang að fjöl­þætt­ari þjón­ustu og meira fram­boði. „For­eldrar sem hafa ein­ungis þessar 50.000 krónur þurfa að hugsa innan þess ramma og það nær skammt. Ef barn er að æfa íþrótt og er í tón­list­ar­skóla þá geta gjöldin verið rúm­lega 200.000 krónur á ári.

Ef mark­miðið er að tryggja að öll börn og ung­menni geti tekið þátt í því sem þau vilja óháð efna­hag, þurfum við þá ekki að tryggja að kostn­að­ur­inn við þátt­tök­una verði sem minnstur? Væri ekki betra að efla þau félög sem halda úti skipu­lögðu íþrótta- og frí­stunda­starfi? Nú er ég ekki með svörin og lausn­irnar á hreinu en viljum við ekki efla tón­list­ar­skól­ana og íþrótta­fé­lögin og aðra sem veita mik­il­væga þjón­ustu á sviði tóm­stunda svo að kostn­aður fyrir þátt­töku sé ekki hindrun?“ spyr hún.

Man sjálf eftir því að hafa viljað taka þátt og hafa neitað sér um hluti

Þá bendir borg­ar­fúll­trú­inn á að inn­eign­ar­kerfi „sem byggir á því að þú getir valið hvert þú ferð með þitt (tak­mark­aða) fjár­magn er ekki að fara að tryggja að öll börn geti tekið þátt í frí­stunda­starfi óháð efna­hag. Slíkt tekur ekki til­lit til und­ir­liggj­andi þátta líkt og fátæktar, skorts, stað­reynd­ar­innar um að börn séu svöng og ófær um að fara að brenna hita­ein­ingum hlaup­andi um á æfingum. Að gefa öllum börnum smá inn­eign til að taka þátt í frí­stundum tekur heldur ekki til­lit til vænt­inga barna. Vænt­ingar sem þau hafa skrúfað niður og leyfa sér að ekki að verða spennt fyrir hlutum opin­ber­lega, þar sem þau vita að þau geta ekki tekið þátt í nám­skeiði sem kostar of mikið og segj­ast því ekki hafa áhuga á neinu, þó að innst inni þau vilji bara fara á þetta á dans­nám­skeið með öllum skemmti­legu hip-hop lög­unum.“

Sanna seg­ist sjálf ekki muna eftir frí­stunda­kort­inu en hún man eftir því að hafa viljað taka þátt og hafa neitað sér um hluti. Það sé senni­lega ekki heil­brigt að börn læri að neita sér um hluti. „Tryggjum að öll börn geti tekið þátt.“

Þá vill hún að málin séu skoðuð „hinum megin frá“ og að horfið verði frá „nýfrjáls­hyggju-ávís­ana­kerfi um að allir hafi val til að velja það besta fyrir börnin sín (þó að valið sé raun­veru­lega ekki til staðar). Eflum tóm­stunda­starf, það á ekki að vera svona dýrt að vera krakki. Skipu­leggjum frí­stundir sem öfl­ugar félags­legar stofn­anir og hverfum út úr þess­ari mark­aðs­hugsun,“ segir hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár