Átján sækja um starf borgarritara

Átján manns sóttu um starf borg­ar­rit­ara en Reykja­vík­ur­borg aug­lýsti þann 14. febr­úar síð­ast­lið­inn starfið laust til umsóknar.

Átján manns sóttu um starf borg­ar­rit­ara en Reykja­vík­ur­borg aug­lýsti þann 14. febr­úar síð­ast­lið­inn starfið laust til umsóknar. Umsókn­ar­frestur var til og með 16.mars síð­ast­lið­inn. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg.

Stefán Eiríks­son, fyrr­ver­andi borg­ar­rit­ari, sagði upp störfum fyrr á árinu en hann var ráð­inn sem útvarps­stjóri og tók við því starfi þann 1. mars síð­ast­lið­inn.

Umsækj­endur um starf borg­ar­rit­ara eru:

  • Artis Arturs Freimanis – Vél­stjóri
  • Árdís Rut Hlíf­ar­dótir – Fram­kvæmda­stjóri
  • Birna Ágústs­dóttir – Skrif­stofu­stjóri
  • Elín Björg Ragn­ars­dóttir – Verk­efna­stjóri
  • Friðjón Már Guð­jóns­son – Bók­halds­full­trúi
  • Guðbjörg Ómars­dóttir – Gæða­stjóri
  • Gunn­steinn R. Ómarsson – Lána­stjóri
  • Hans Benja­míns­son – Aðstoð­ar­maður fram­kvæmda­stjóra
  • Jón Þór Sturlu­son – Dósent
  • Jónas Skúlason – Skrif­stofu­stjóri
  • Kristín Þor­steins­dóttir – MBA
  • Margrét Hall­gríms­dóttir – Þjóð­minja­vörður
  • Óli Örn Eiríks­son – Deild­ar­stjóri
  • Ólöf Hildur Gísla­dóttir – Lög­fræð­ingur
  • Salvör Sigríður Jóns­dóttir – Félags­liði
  • Sólveig Dagmar Þór­is­dóttir – Fram­kvæmda­stjóri
  • Steinunn Hólm Guð­bjarts­dóttir – Lög­fræð­ingur
  • Þor­steinn Gunn­ars­son – Sveit­ar­stjóri

[adspot]

Í til­kynn­ing­unni segir að nú fari í gang ráðn­ing­ar­ferli sem Intellecta haldi utan um í sam­vinnu við hæfn­is­nefnd sem borg­ar­ráð skip­aði. Hæfn­is­nefndin er skipuð í sam­ræmi við reglur um ráðn­ingu borg­ar­ráðs í æðstu stjórn­enda­stöður hjá Reykja­vík­ur­borgar, sem eru frá 24. jan­úar 2019.

Hæfn­is­nefnd­ina skipa Regína Ásvalds­dóttir, sviðs­stjóri vel­ferð­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borgar sem jafn­framt er for­maður, Ásta Bjarna­dóttir, mannauðs­stjóri Land­spít­al­ans og Gylfi Magn­ús­son, dós­ent við Háskóla Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár