Líf: Samningar nást ekki fyrir milligöngu fjölmiðlamanna

Borg­ar­full­trúi Vinstri grænna segir að samn­ingar í kjara­deilu náist með sam­tali og við samn­inga­borðið en ekki í gegnum sam­fé­lags­miðla eða fjöl­miðla.

Líf Magneudóttir
Líf Magneu­dóttir Mynd: Aðsend

Líf Magneu­dóttir, borg­ar­full­trúi VG í borg­ar­stjórn, hefur tjáð sig um kjara­deilur borg­ar­innar og félags­manna Eflingar á sam­fé­lags­miðlum en hún segir að samn­ingar náist við samn­inga­borðið en ekki með stöðu­upp­færslum á Facebook.

Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, for­maður Efl­ing­ar, sagð­ist á Facebook í morgun vera til­búin að hitta Dag B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóra í Reykja­vík, á fundi en þó með tveimur skil­yrð­um.

Í fyrsta lagi að hann birti opin­ber­lega það til­boð sem samn­inga­nefnd Efl­ingar var kynnt á samn­inga­fundi þann 19. febr­úar síð­ast­lið­inn, dag­inn sem hann mætti í Kast­ljós­svið­talið, þannig að allir geti borið til­boðið saman við ummæli hans í Kast­ljós­inu. Í öðru lagi að hann fall­ist á að mæta sér eða öðrum full­trúa Efl­ingar í setti í útvarps- eða sjón­varps­við­tali áður en vikan er úti.

[links]Líf segir í stöðu­upp­færslu sinni að fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar hafi þau í Vinstri grænum haft kjara­málin að kosn­inga­máli. „Við sögðum að það væri löngu orðið tíma­bært að hækka laun lág­launa­fólks í borg­inni og sér í lagi stórra kvenna­stétta í umönn­un­ar­störfum og á leik­skólum. Það þyrfti veru­legar krónu­tölu­hækk­anir til þess­ara hópa og einnig bæta starfs­um­hverfi þeirra m.a. með stytt­ingu vinnu­vik­unnar sem við Vinstri græn stóðum fyrir að inn­leiða á sínum tíma og er til úrlausnar nú við samn­ings­borðið. Við hefðum aldrei myndað meiri­hluta með þremur öðrum flokkum nema að fá þetta inn í meiri­hluta­sátt­mál­ann. Eitt af okkar brýn­ustu for­gangs­málum. Sama áhersla end­ur­spegl­að­ist í lífs­kjara­samn­ing­unum þar sem mest var lagt á að hækka laun tekju­lægri hópa og jafna kjörin almennt,“ skrifar hún.

Samningar nást með samtali

Hún bendir enn fremur á að nú hafi verk­fall staðið yfir í rúmar tvær vikur. „Við finnum öll fyrir því. Ef fólk hefur ekki leitt hug­ann að mik­il­vægi þess­ara starfa þá gerir það það eflaust núna.“

Borg­ar­full­trú­inn telur að samn­ingar náist hins vegar ekki með facebookstatusum og fyrir milli­göngu fjöl­miðla­manna. Samn­ingar náist við samn­inga­borðið. Þeir náist með sam­tal­inu. „Við sem komum að málum eigum öll að sýna íbúum Reykja­víkur og félags­mönnum Eflingar þá virð­ingu að gera okkar ítrasta og besta til að funda og ljúka samn­ingum. Verk­falls­vopn­inu er aldrei beitt af léttúð og þetta er mikið rétt­læt­is­mál sem við von­andi leysum far­sæl­lega sem fyrst,“ skrifar hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár