Þorsteinn Gunnarsson nýr borgarritari

Borg­ar­ráð hefur sam­þykkt að ráða Þorstein Gunn­ars­son í starf borg­ar­rit­ara Reykja­vík­ur­borgar.

Þorsteinn Gunnarsson
Þor­steinn Gunn­ars­son Mynd: Aðsend mynd

Borg­ar­ráð sam­þykki á fundi sínum í dag að ráða Þorstein Gunn­ars­son í starf borg­ar­rit­ara Reykja­vík­ur­borgar. Stefán Eiríks­son lét af emb­ætti þegar hann tók við sem útvarps­stjóri í byrjun mars síð­ast­lið­ins. Þor­steinn var met­inn hæf­astur allra umsækj­enda af ráð­gef­andi hæfn­is­nefnd sem skipuð var af borg­ar­ráði í febr­úar 2020.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg.

Borg­ar­rit­ari er æðsti emb­ætt­is­maður borg­ar­innar að und­an­skildum borg­ar­stjóra og einn af stað­genglum hans. Borg­ar­rit­ari hefur yfir­um­sjón með mið­lægri stjórn­sýslu og stoð­þjón­ustu á vegum Reykja­vík­ur­borgar og er tengiliður Reykja­vík­ur­borgar við byggða­sam­lög og B-hluta félög.

Starf borg­ar­rit­ara var aug­lýst laust til umsóknar þann 15. febr­úar síð­ast­lið­inn og var umsókn­ar­frestur fram­lengdur til 16. mars. Átján umsóknir bár­ust um starfið. Í hæfn­is­nefnd voru Regína Ásvalds­dóttir, sviðs­stjóri vel­ferð­ar­sviðs, sem jafn­framt var for­maður, Ásta Bjarna­dóttir, fram­kvæmda­stjóri mannauðs­mála hjá Land­spít­ala og Gylfi Magn­ús­son, dós­ent við Háskóla Íslands. Ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið Intellecta sinnti utan­um­haldi og stuðn­ingi við hæfn­is­nefnd­ina.

Í til­kynn­ing­unni segir að Þor­steinn sé með MPM gráðu í verk­efna­stjórnun frá Háskól­anum í Reykja­vík og diplómu í opin­berri stjórn­sýslu frá Háskóla Íslands.

„Þor­steinn hefur fjöl­breytta stjórn­un­ar­reynslu á sveit­ar­stjórn­ar­stigi. Hann gegndi starfi upp­lýs­inga- og þró­un­ar­full­trúa Grinda­víkur um fjög­urra ára skeið þar sem hann hafði umsjón með innra og ytra kynn­ingar- og upp­lýs­inga­starfi, mark­aðs­starfi, áætl­ana­gerð og fleiru. Þá gegndi hann starfi sviðs­stjóra frí­stunda- og menn­ing­ar­sviðs hjá Grinda­vík í þrjú ár þar sem hann bar ábyrgð á íþrótta-, frí­stunda- og menn­ing­ar­málum sveit­ar­fé­lags­ins.

Und­an­farin fjögur ár hefur Þor­steinn starfað sem sveit­ar­stjóri Skútu­staða­hrepps og hlotið umfangs­mikla reynslu af öllum verk­efnum sveita­stjórn­ar­stigs­ins, m.a. á sviði stjórn­sýslu, skipu­lags­mála og umhverf­is­mála. Áður starf­aði Þor­steinn meðal ann­ars sem íþrótta­f­rétta- og dag­skrár­gerða­maður hjá 365 miðlum í átta ár, fram­kvæmda­stjóri ÍBV og upp­lýs­inga­full­trúi Vinnslu­stöðv­ar­innar, kenn­ari og blaða­maður. Þor­steinn hefur gegnt ýmsum stjórn­ar­störfum í íþrótta­hreyf­ing­unni og er í dag aðal­maður í stjórn KSÍ. Hann hefur einnig verið í stjórn ferða­mála­sam­taka Reykja­ness og í stjórn Reykja­ness jarð­vangs,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár