Efling fer fram á samningafund í dag

Samn­inga­nefnd Eflingar mun „krefj­ast efnda á lof­orðum borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­ans um leið­rétt­ingu á launum kvenna­stétta“.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd: Bára Huld Beck

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, hefur farið fram á við rík­is­sátta­semj­ara að hald­inn verði samn­inga­fundur í kjara­deilu félags­ins við Reykja­vík­ur­borg. Er þess óskað að fund­ur­inn verði hald­inn eigi síðar en í dag, eins og það er orðað í frétta­til­kynn­ingu frá Eflingu. Var óskinni komið á fram­færi sím­leiðis við Ástráð Har­alds­son aðstoð­ar­rík­is­sátta­semj­ara í morgun.

Í til­kynn­ing­unni segir að með þessu vilji Efling „reyna til þrautar að þok­ast nær sam­komu­lagi í deil­unni. Samn­inga­nefnd Eflingar mun krefj­ast efnda á lof­orðum borg­ar­stjóra um grunn­launa­hækk­anir en heild­stæð útfærsla á þeim hefur aldrei verið lögð fram við samn­inga­borðið. Einnig mun nefndin krefj­ast efnda á lof­orðum borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­ans um leið­rétt­ingu á launum kvenna­stétta.“

[adspot]

[links]Efling hefur áður lagt fram eft­ir­far­andi til­lögur til lausnar og mála­miðl­ana í deil­unni:

Efling kynnti á samn­inga­fundum 16. og 31. jan­úar tvær ólíkar útgáfur af til­boði um launa­leið­rétt­ingu byggð á fyr­ir­mynd frá 2005 í tíð Stein­unnar Valdísar Ósk­ars­dóttur borg­ar­stjóra.

Efling kynnti á samn­inga­fundi 18. febr­úar til­boð um sam­setta leið til launa­leið­rétt­ingar byggð á ann­ars vegar jöfnun launa­bila í töflu að til­lögu Reykja­vík­ur­borgar og hins vegar á álags- og upp­bót­ar­greiðslum.

Efling kynnti á samn­inga­fundi 27. febr­úar til­boð um sam­setta leið til launa­leið­rétt­ingar byggð á ann­ars vegar grunn­launa­hækk­unum sem Dagur B. Egg­erts­son lýsti í Kast­ljós­svið­tali og hins vegar á bland­aðri leið upp­bóta vegna eldri sér­greiðslna og starfstengdu jöfn­un­ar­á­lagi.

Efling bauð borg­ar­stjóra þann 3. mars að ganga til sam­komu­lags um að hann stað­festi „Kast­ljós­stil­boðið“ gegn því að verk­falli verði frestað í tvo sól­ar­hringa.

Reykja­vík­ur­borg hefur hafnað öllum ofan­greindum til­lögum Eflingar.

Í til­kynn­ing­unni er haft eftir Sólveigu Önnu að samn­inga­nefndin Eflingar muni nú „í enn eitt skiptið gera til­raun til þess að fá fram sam­komu­lag um lausnir á því verk­efni að leið­rétta lægstu laun Efl­ing­ar­fé­laga hjá borg­inni sem og kjör sögu­lega van­met­inna kvenna­stétta.“

Sólveig Anna segir að borgin hafi lýst sig vilj­uga til að gera þetta „og Efling hefur lagt fram fjölda leiða að þessu marki, sem hafa verið vand­aðar, heild­stæðar og nákvæm­lega útfærðar. Borgin hefur verið á allt annarri veg­ferð, en ég vona inni­lega að nú verði breyt­ing á.“

Uppfært: Samkvæmt frétt RÚV hefur rík­is­sátta­semj­ari boðað deilu­að­ila til fundar klukkan 16 í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár