„Engin svör frá borgarstjóra“

Verk­falls­að­gerðir félags­manna Eflingar í Reykja­vík halda áfram og ekki verður af tveggja daga hléi eftir að ekk­ert heyrð­ist frá borg­ar­stjóra varð­andi boð Eflingar í dag.

Viðar Þorsteinsson
Viðar Þor­steins­son Mynd: RÚV

Ekkert hefur heyrst frá Degi B. Egg­erts­syni borg­ar­stjóra varð­andi boð Eflingar um að fresta verk­falls­að­gerðum í tvo sól­ar­hringa gegn því að Dagur veiti skrif­lega stað­fest­ingu á kast­ljós­stil­boð­in­u svoköll­uðu. Erindi þess efnis var sent til borg­ar­stjóra með afriti á rík­is­sátta­semj­ara í morgun.

Þetta stað­festir Viðar Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri Eflingar, við Kjarnann. Hann segir að rík­is­sátta­semj­ari hafi stað­fest mót­töku erind­is­ins en það hafi aðstoð­ar­maður borg­ar­stjóra aftur á móti ekki gert.

[links]Viðar segir að verk­falls­að­gerðir félags­manna Eflingar í borg­inni haldi því áfram, sem og bar­átta þeirra. „Við teljum okkur vera að vinna þetta af alvöru og heil­indum til að ná lend­ingu í mál­inu,“ segir hann og bætir því við að ákveðið „alvöru­leysi“ sé í við­brögðum borg­ar­innar. Þá eigi hann við að ekki fari saman yfir­lýs­ingar borg­ar­stjóra í fjöl­miðlum og það sem boðið sé við samn­inga­borðið. Hann segir þetta vera ein­staka stöðu í kjara­við­ræðum.

Fram­kvæmda­stjór­inn segir að félags­menn Eflingar sem starfa hjá Reykja­vík­ur­borg hafi haldið frá­bæran fund fyrr í dag en á honum var sam­þykkt ein­róma eft­ir­far­andi ályktun:

Við erum ófag­lærðir starfs­menn Reykja­vík­ur­borgar, í fjöl­breyttum störfum við sorp­hirðu, við­hald, umönnun og menntun barna, aldr­aðra og fatl­aðra, þrif, elda­mennsku og fleira.

Við sinnum grunn­þjón­ustu sem borg­ar­búar geta ekki lifað án. Þetta hafa verk­falls­að­gerð­irnar okkar sýnt.

Við erum með lægstu heild­ar­laun allra á íslenskum vinnu­mark­aði.

Með því að ganga í störf fag­lærðra spörum við Reykja­vík­ur­borg árlega um millj­arð á ári, ein­göngu í leik­skóla­kerf­inu.

Við krefj­umst þess að borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­inn og Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri standi við orð sín um að leið­rétta kjör lág­launa­fólks og sögu­lega van­met­inna kvenna­stétta.

Samn­inga­nefnd okkar hefur hvað eftir annað lagt fram vel útfærðar og skyn­sam­legar til­lögur um hvernig eigi að fram­kvæma þetta. Það er með öllu óskilj­an­legt hvers vegna borgin hafnar þeim til­lögum hverjum á fætur annarri.

Við höfnum þeim leik borg­ar­innar að borg­ar­stjóri fari með fag­ur­gala í fjöl­miðlum en að samn­inga­nefnd borg­ar­innar bjóði svo samn­inga­nefnd Efl­ing­ar­fé­laga lausnir sem ein­ungis taka til brots okkar félags­manna og með kvöðum og skil­yrðum.

Það er kom­inn tími fyrir borg­ina að sýna að henni sé alvara.

Á borð­inu liggur til­laga að sam­komu­lagi sem er í sam­ræmi við yfir­lýs­ingar borg­ar­stjóra sjálfs. Við styðjum samn­inga­nefnd Eflingar í því að bjóða að fresta verk­falli í tvo sól­ar­hringa gegn því að sam­komu­lagið verði und­ir­ritað.

Við stöndum saman og styðjum samn­inga­nefndin okkar alla leið.

Borgin er í okkar höndum!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár