Efling býðst til að fresta verkfallsaðgerðum í tvo sólarhringa

Efling hefur boð­ist til að fresta verk­falls­að­gerðum í tvo sól­ar­hringa gegn því að Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri veiti skrif­lega stað­fest­ingu á svoköll­uðu kast­ljós­stil­boði.

Sólveig Anna Jónsdóttir og Dagur B. Eggertsson.
Sólveig Anna Jóns­dóttir og Dagur B. Egg­erts­son. Mynd: Samsett

Efling hefur boð­ist til að fresta verk­falls­að­gerðum í tvo sól­ar­hringa gegn því að Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri veiti skrif­lega stað­fest­ingu á „Kast­ljós­stil­boð­inu“. Erindi þessa efnis hefur verið sent til borg­ar­stjóra með afriti á rík­is­sátta­semj­ara.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá stétt­ar­fé­lag­inu í dag.

„Í Kast­ljósi 19. febr­úar síð­ast­lið­inn ræddi borg­ar­stjóri um 110 þús­und króna grunn­launa­hækkun á samn­ings­tíma fyrir ófag­lærðan Efl­ing­ar­starfs­mann. Heild­stætt til­boð í þá veru hefur ekki komið fram á samn­inga­fundum þrátt fyrir athuga­semdir og óskir samn­inga­nefndar Eflingar,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Enn fremur kemur fram hjá Eflingu að með erindi þeirra til borg­ar­stjóra fylgi til­laga að skrif­legu sam­komu­lagi milli samn­ings­að­ila. Í því sé fast­bundið að grunn­laun Efl­ing­ar­fé­laga hækki á bil­inu 100 til 110 þús­und á samn­ings­tím­anum, mest hjá lægst laun­uðum og minnst hjá þeim hæst laun­uðu.

Verkfalli yrði frestað miðvikudag og fimmtudag

Í sam­komu­lag­inu segir að með þessu hafi sátt náðst um grunn­launa­hækk­anir á samn­ings­tím­anum og þá sé hægt að hefja vinnu við að ná saman um önnur atriði. Sam­komu­lagið taki ein­göngu til grunn­launa en ekki ann­arra atriða, svo sem álaga, sér­greiðslna og upp­bóta.

Verk­falli yrði frestað í tvo sól­ar­hringa, frá því klukkan 00:01 á mið­viku­dag til klukkan 23:59 á fimmtu­dag næst­kom­andi.

Frestur til klukkan fjögur í dag

Erindið var sent til borg­ar­stjóra klukkan 11:00 og er gef­inn frestur til svars til klukkan 16:00 í dag, 3. mars.

„Þetta sam­komu­lag myndi stað­festa það sem borg­ar­stjóri hefur sjálfur lagt fram í umræð­unni, það er að segja að Efl­ing­ar­fé­lögum á lægstu launum standi til boða 20 þús­und grunn­launa­hækkun umfram Lífs­kjara­samn­ing­inn. Við höfum sagt að slíkt til­boð myndi færa okkur í sam­komu­lags­átt og viljum með þessu sýna að okkur er alvara með því. Við göngum út frá því að borg­ar­stjóra hafi líka verið alvara og sé til­bú­inn að sýna það í verki. Svo verður að koma í ljós hvernig gengur að ná saman um önnur atriði,“ segir Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár