Kalla eftir því að SA og SAF fordæmi framgöngu Play

Í ályktun for­manna­fundar ASÍ er þess kraf­ist að Play gangi til kjara­samn­inga við það launa­fólk sem á að vinna sam­kvæmt þeim kjara­samn­ingum. Samtökin segja Play fara gegn skipu­lagðri verka­lýðs­hreyf­ingu með samn­ingum við Íslenska flug­stétt­ar­fé­lagið.

Drífa Snædal er forseti ASÍ.
Drífa Snædal er for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

For­manna­fundur ASÍ for­dæmir með öllu til­raunir til nið­ur­brots á skipu­lagðri verka­lýðs­hreyf­ingu og varar sterk­lega við upp­gangi gulra stétt­ar­fé­laga. Þetta kemur fram í nýrri ályktun for­manna­fundar ASÍ um til­raunir til nið­ur­brots á verka­lýðs­hreyf­ing­unni.

„Nýjasta dæmið um til­raunir til að fara gegn skipu­lagðri verka­lýðs­hreyf­ingu eru samn­ingar milli Play og hins Íslenska flug­stétt­ar­fé­lags sem ætlað er að móta ramma utan um kjör flug­freyja- og flug­þjóna hjá flug­fé­lag­inu Play. Samn­ing­arnir kveða á um lak­ari kjör og rétt­indi en hafa þekkst á íslenskum vinnu­mark­aði og enn er á huldu hvort þeir hafa verið sam­þykktir af vinn­andi fólki sem á allt sitt undir þeim, líkt og lög og leik­reglur á vinnu­mark­aði gera ráð fyrir,“ segir í álykt­un­inni.

For­manna­fund­ur­inn kallar eftir því að Samtök atvinnu­lífs­ins og Samtök aðila í ferða­þjón­ustu for­dæmi fram­göngu Play og sendi út skýr skila­boð um að þessi hátt­semi verði ekki liðin á íslenskum vinnu­mark­aði.

Kjara­samn­ing­ur­inn skuli sam­þykktir af starfs­fólki. „Krafan er skýr: að Play gangi til kjara­samn­inga við það launa­fólk sem á að vinna sam­kvæmt þessum kjara­samn­ingum, sá samn­ingur verði lagður í dóm starfs­fólks og þar með verði leik­reglur á íslenskum vinnu­mark­aði virtar.“

Gul stéttarfélög geri lakari kjarasamninga

Í álykt­un­inni segir að gul stétt­ar­fé­lög ein­kenn­ist af því að vera undir áhrifa­valdi atvinnu­rek­enda, beint eða óbeint og að slík félög sæki sér ekki styrk til heild­ar­sam­taka launa­fólks heldur standi utan þeirra. „Slík félög eru þekkt fyrir að gera lak­ari kjara­samn­inga en frjáls og skipu­lögð verka­lýðs­hreyf­ing og grafa þannig undan almennum launa­kjörum í land­inu.“

ASÍ og aðild­ar­fé­lög þess muni standa gegn hvers konar til­raunum til að brjóta á bak aftur skipu­lagðri verka­lýðs­hreyf­ingu enda sé gríð­ar­legur munur á lífs­kjörum almenn­ings „í löndum þar sem skipu­lögð verka­lýðs­hreyf­ing hefur verið brotin á bak aftur ann­ars vegar og í löndum þar sem verka­lýðs­hreyf­ingin stendur styrkum fótum hins vegar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár