Segir ríkið taka til sín 73 prósent af eingreiðslu vegna hækkunar lífeyrisréttinda

Pró­fessor emer­ítus og sér­fræð­ingur hjá Eflingu segir að af þeim 76 þús­und krónum sem sjóðs­fé­lagar í Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna geti vænst að fá að með­al­tali í ein­greiðslu muni ríkið taka til sín 55.700 krónur. Eftir sitji 20.300 krónur.

Stefán Ólafsson.
Stefán Ólafsson. Mynd: Skjáskot/RÚV

Stefán Ólafsson, pró­fessor emeritus við Háskóla Íslands og sér­fræð­ingur hjá Efl­ing­u-­stétt­ar­fé­lagi, segir að rík­is­sjóður muni taka til sín 73 pró­sent af þeirri ein­greiðslu sem sjóðs­fé­lagar í Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna munu fá síðar í mán­uð­inum vegna tíu pró­sent aukn­ingar á rétt­indum þeirra.

Sjóð­ur­inn til­kynnti í morgun að stjórn hans hefði ákveðið að hækka áunnin líf­eyr­is­rétt­indi í sam­eign­ar­deild sjóðs­ins um tíu pró­sent, sem leiði til sam­svar­andi hækk­unar líf­eyr­is­greiðslna. Hækk­unin mið­ast við síð­ast­liðin ára­mót og er til­komin vegna góðrar ávöxt­unar eigna und­an­farin ár sem hefur styrkt trygg­inga­fræði­lega stöðu sjóðs­ins. Með­al­raun­á­vöxtun eigna síð­ustu 10 ára er 6,7 pró­sent, síð­ustu 20 ára 4,5 pró­sent og síð­ustu 30 ára 5,4 pró­sent.

[adspot]Sjóð­ur­inn mun greiða í ein­greiðslu út upp­safn­aða hækkun á árinu og mun sú greiðsla ger­ast í nóv­em­ber. Hún nær til um tutt­ugu og eitt þús­und sjóð­fé­laga, nemur rúmum 1,6 millj­örðum króna eða að með­al­tali um 76 þús­und krónum fyrir hvern líf­eyr­is­þega.

Stefán segir í stöðu­upp­færslu á Facebook að ein­greiðslan, sem er líkt og áður sagði 76 þús­und krónur að með­al­tali á sjóðs­fé­laga, muni glögg­lega sýna virkni líf­eyr­is­kerf­is­ins, því þá taki við skerð­ingar hjá TR og skatt­greiðsla til rík­is­ins af þess­ari upp­bót.

[links]

Ríkið muni þannig, sam­kvæmt útreikn­ingum Stefáns, taka til sín 55.700 krónur af þessum 76.000 krónum „þannig að sjóð­fé­lagi sem er elli­líf­eyr­is­þegi fær í vas­ann rétt rúmar 20.300 krónur af þessum 76.000 krónum sem hann hefur áunnið sér auka­lega í líf­eyr­is­sjóði. Þar er miðað við sjóð­fé­laga sem hefur að jafn­aði 200.000 krónur úr líf­eyr­is­sjóði á mán­uði.

Þetta segir Stefán að sýni „svart á hvítu hvernig ríkið leyfir fólki ekki að njóta þess ávinn­ings sem það hefur af skyldu­sparn­að­inum í líf­eyr­is­sjóðum, heldur tekur um 73 pró­sent af því í lækkun útgjalda vegna almanna­trygg­inga (TR) og í tekju­skatt. Skerð­ingar nema 43.244 krónum og tekju­skattur 12.430, eða sam­tals 55.674.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár