Svigrúm til launahækkana sé „takmarkað“ eða jafnvel „á þrotum“

Tveir hag­fræð­ingar sem Þjóð­hags­ráð fékk til þess að leggja mat á stöðu mála á vinnu­mark­aði núna í aðdrag­anda kjara­samn­inga­lotu segja að lítið svig­rúm sé til launa­hækk­ana, ef það eigi að vera mögu­legt að verja kaup­mátt lands­manna.

Tveir hag­fræð­ingar, sem Þjóð­hags­ráð fékk til þess að vinna grein­ar­gerðir um stöðu og horfur á vinnu­mark­aði núna í aðdrag­anda kjara­samn­inga, komust að þeirri nið­ur­stöðu að um þessar mundir sé svig­rúm í hag­kerf­inu til nafn­launa­hækk­ana „tak­markað“ eða jafn­vel „á þrotum“, ef tryggja eigi að kaup­máttur laun­anna sem lands­menn fá í vas­ann haldi sér.

Grein­ar­gerðir þeirra Katrínar Ólafs­dóttur dós­ents í hag­fræði við HR og Arnórs Sig­hvats­sonar hag­fræð­ings voru birtar á vef stjórn­ar­ráðs­ins í dag, sam­hliða til­kynn­ingu um starf­semi Þjóð­hags­ráðs á árinu.

Ætti ekki að gefa hugmyndafræði norræna líkansins upp á bátinn

Katrín segir í skýrslu sinni að hætt sé við að nafn­launa­hækk­anir í þeirri kjara­samn­inga­lotu sem stendur fyrir dyrum fari „að mestu út í verð­lag“ í því flókna efna­hags­á­standi sem nú blasi við. „Því er æski­leg­ast í þess­ari samn­inga­lotu að leita leiða til að tryggja kaup­mátt þeirra sem verst standa á vinnu­mark­aði fremur en að leggja áherslu á nafn­launa­hækk­anir,“ skrifar hún í inn­gangi grein­ar­gerðar sinnar, en í skýrsl­unni kemur fram það mat Katrínar að einna mik­il­væg­ast sé að „setja ramma utan um samn­inga­við­ræð­urnar svo að ekki hefj­ist nýtt höfr­unga­hlaup í næstu samn­ingum“.

„Þótt ekki hafi tek­ist að finna leið til að taka upp ein­hverja útgáfu af nor­ræna lík­an­inu í gegnum Salek-sam­starfið ætti ekki að gefa það upp á bát­inn að hug­mynda­fræði nor­ræna lík­ans­ins verði gefið meira pláss í kjara­samn­ingum fram­tíð­ar­innar,“ segir Katrín í skýrslu sinni.

Auk þess bendir hún á að leggja mætti áherslu á ein­stök atriði við kjara­samn­ings­gerð­ina sem lúta að öðru en beinum launa­hækk­unum.

[adspot]

Þar lítur Katrín meðal ann­ars til áhrifa styttri vinnu­viku, brú­unar umönn­un­ar­tíma­bils­ins frá fæð­ing­ar­or­lofi til leik­skóla, hug­mynda um að setja þak á yfir­vinnu­greiðslur og tryggja að tíma­bundnum vinnu­toppum sé mætt með því að yfir­vinna gefi auk­inn frí­tíma, aðgerðir sem tengj­ast kulnun og end­ur­komu á vinnu­markað, sí- og end­ur­menntun, fram­hald fjar­vinnu eftir COVID-far­ald­ur­inn og sér­staks átaks til að jafna launa­mun kynj­anna.

Þá nefnir Katrín einnig að bæta mætti eft­ir­lit með fákeppn­is­fyr­ir­tækjum og efla Sam­keppn­is­eft­ir­litið, þar sem fyr­ir­tæki í fákeppni hafi meiri mögu­leika á að mynda hagnað en þau sem eru í sam­keppni. Ástæða sé til að „hafa eft­ir­lit með þessum fyr­ir­tækjum svo að þau nýti ekki stöðu sína á mark­aði til að auka hagnað og tryggja að aukin skil­virkni í rekstri skili sér til neyt­enda“.

„Það gæti orðið öllum neyt­endum í hag að bæta almennt eft­ir­lit með fyr­ir­tækjum í fákeppni, ekki síst þeim sem eru á mörk­uðum þar sem stórum hluta tekna ein­stak­linga er varið, t.d. dag­vöru­fyr­ir­tækjum, bens­ín­fyr­ir­tækjum, bönkum og trygg­inga­fyr­ir­tækjum,“ segir Katrín í skýrslu sinni.

Þar nefnir hún einnig að bæta mætti stöðu ein­stakra hópa, til dæmis þeirra sem eru undir lág­tekju­mörkum og leigj­endum á hús­næð­is­mark­aði sem búa við íþyngj­andi hús­næð­is­kostnað.

Óvissa önnur og meiri en oftast áður

Í skýrsl­unni fer Katrín yfir það að nú sé verið að fara í kjara­við­ræður við mikla óvissu.

„Fram­tíðin er alltaf óviss, en óvissan nú er önnur og meiri en oft­ast áður. Það dregur úr hag­vexti í heims­bú­skapnum og þótt stríðið í Úkraínu hafi minni áhrif hér á landi en víða ann­ars staðar er útlit fyrir að þau verði nokkuð lang­vinn. Áhrifa Covid-19 mun einnig gæta áfram. Fleiri afbrigði veirunnar gætu skotið upp koll­inum. Á alþjóða­mark­aði hafa líkur auk­ist á skorti á elds­neyti og ein­stökum mat­vælum og sumir spá hung­ursneyð meðal þeirra er veikast standa. Sér­fræð­ingar eru langt frá því að vera sam­mála um hvernig skuli bregð­ast við aðstæðum. Alþjóð­legar verð­bólgu­spár hafa hækkað mikið síð­ustu mán­uði og hag­vaxt­ar­spár lækkað. Líkur á skar­pri nið­ur­sveiflu hafa auk­ist til muna, þótt fáir séu enn til­búnir að spá slíku. Það er mik­il­væg­ara en oft áður að fjár­mála­stjórn og pen­inga­mála­stjórn styðji hvor aðra og stefni að sama mark­miði í þeirri erf­iðu stöðu sem uppi er í þjóð­ar­bú­skapnum. Þá er mik­il­vægt að hag­stjórn bregð­ist skjótt og vel við breyttum aðstæðum, en búast má við breyt­ingum á næstu miss­erum. Jafn­framt sam­vinna við aðila vinnu­mark­að­ar­ins að vera góð til að tryggja raun­veru­lega kjara­bót í næstu kjara­samn­ingum í stað þess að samið verði um háar nafn­launa­hækk­anir sem fara beint út í verð­lag og úr verði gam­al­kunnar víxl­hækk­anir verð­lags og launa,“ segir í skýrslu Katrínar.

Óvenjulegar hagstæðar aðstæður síðasta áratugar ekki lengur fyrir hendi

Arnór Sig­hvats­son, sem er fyrr­ver­andi aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri, fjallar í grein­ar­gerð sinni um „marg­brotið sam­spil vinnu­mark­aðar, hag­kerfis og hag­stjórnar á Íslandi sem veldur því að erfitt getur reynst að við­halda stöð­ug­leika á vinnu­mark­aði og öðrum sviðum þjóð­ar­bú­skap­ar­ins“.

Hann segir um að mat á vexti fram­leiðni, sem svig­rúm til launa­hækk­ana er gjarnan metið út frá, sé háð mik­illi óvissu, einkum þegar tekið sé mið af nýlegum gögnum. Þannig geti mæl­ingar á lands­fram­leiðslu t.d. tekið umtals­verðum breyt­ingum í ára­tug eftir að fyrstu áætl­anir birt­ast, auk þess sem mat á heild­ar­vinnu­stundum sé mik­illi óvissu háð. Því segir hann að það „virð­ist skyn­sam­legt að horfa yfir langt tíma­bil fremur en nýlegar breyt­ingar þegar lagt er mat á svig­rúm til launa­breyt­inga, með fyr­ir­vara um að lang­tíma­leitni getur verið í vexti fram­leiðni“.

Undir lok grein­ar­gerðar sinnar svarar hann þeirri spurn­ingu sem Þjóð­hags­ráð lagði fyrir, um sjálft svig­rúmið, og segir að árin eftir fjár­mála­hrunið 2008 hafi mynd­ast „ákveðið svig­rúm fyrir launa­breyt­ingar eftir að hlut­fall launa af verð­mæta­sköpun lækk­aði veru­lega í kjöl­far krepp­unnar.“

En nú segir hann að önnur mynd blasi við:

„Á und­an­förnum árum hefur launa­hlut­fallið verið að fær­ast upp í eða yfir lang­tíma­með­al­tal. Veru­legur afgangur hafði mynd­ast á við­skiptum við útlönd sem nú hefur a.m.k. tíma­bundið snú­ist í halla. Ferða­manna­bylgjan og við­skipta­kjara­bati leiddi til geng­is­hækk­unar sem ásamt lít­illi alþjóð­legri verð­bólgu varð til þess að laun gátu hækkað veru­lega án þess að það hefði sýni­leg áhrif á inn­lenda verð­bólgu. Þetta svig­rúm er nú á þrotum og erlendir kostn­að­ar­liðið sem áður lækk­uðu til mót­vægis við auk­inn inn­lendan kostnað eru nú sjálf­stæður verð­bólgu­valdur. Launa­breyt­ingar sem samið verður um í næstu kjara­samn­ingum þyrftu að taka mið af því að hinar óvenju­legu hag­stæðu aðstæður eru ekki lengur fyrir hendi. Verði það gert má binda vonir við að hægt verði að varð­veita bæði ytra og innra jafn­vægi í þjóð­ar­bú­skapnum og verja kaup­mátt þeirra kjara­samn­inga sem und­ir­rit­aðir verða,“ skrifar Arnór.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár