Samningar náðust eftir 20 klukkustunda setu í Karphúsinu

VR, Lands­sam­band íslenskra versl­un­ar­manna og sam­flot iðn­aðar- og tækni­fólks hefur náð samn­ingi við Samtök atvinnu­lífs­ins um nýja kjara­samn­inga. Rík­is­stjórnin kynnir yfir­lýs­ingu vegna kjara­samn­inga í dag.

Setið var á fundum fram undir morgun í Karphúsinu og náðust samningar eftir fund sem hafði staðið í um 20 klukkustundir.
Setið var á fundum fram undir morgun í Karp­hús­inu og náð­ust samn­ingar eftir fund sem hafði staðið í um 20 klukku­stundir. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Til stendur að VR, Lands­sam­band íslenskra verzlunarmanna og sam­flot stétt­ar­fé­laga iðn­arðar- og tækni­fólks und­ir­riti nýjan kjara­samn­ing við Samtök atvinnu­lífs­ins kl. 13 í dag, í kjöl­far þess að setið var á fundum fram undir morgun á skrif­stofum rík­is­sátta­semj­ara í Borg­ar­túni.

Elísabet S. Ólafs­dóttir aðstoð­ar­rík­is­sátta­semj­ari segir í sam­tali við Kjarnann að samn­ingar hafi náðst undir morgun, eftir um 20 klukku­stunda langan fund.

Í kjöl­farið hafi við­ræðu­nefnd­irnar sem voru í húsi á þeim tíma­punkti svo þurft að bera samn­ing­inn undir alla sem sátu við borðið og fá umboð samn­inga­nefnda til und­ir­rit­unar.

[adspot]

Í því ljósi var ákveðið að bíða með und­ir­ritun samn­ing­anna þar til núna eftir hádegið, til þess að vera ekki að ræsa fólk sem hafði haldið heim til hvíldar upp að nýju snemma í morgun, segir Elísabet.

Samn­ing­arnir sem verða und­ir­rit­aðir kl. 13 í dag snerta kjör nærri 60 þús­und starfs­manna á almennum vinnu­mark­aði.

Elísabet seg­ist ekk­ert geta tjáð sig um efni þeirra vegna trún­aðar og því getur hún ekki heldur stað­fest að um sé að ræða skamm­tíma­samn­inga af svip­uðum meiði og Starfs­greina­sam­bandið gerði við Samtök atvinnu­lífs­ins fyrr í mán­uð­inum.

En svör við þeim spurn­ingum fást kl. 13, þegar fjöl­miðlar verða boðnir vel­komnir í Karp­húsið í Borg­ar­túni til þess að vera við­staddir und­ir­ritun kjara­samn­ing­anna.

Ríkisstjórnin með yfirlýsingu í dag

Fleiri tíð­inda er að vænta í dag. Leið­togar rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja hafa boðað til blaða­manna­fundar í Ráð­herra­bú­staðnum í dag kl. 14:30, en þar stendur til að kynna yfir­lýs­ingu stjórn­valda í tengslum við kjara­samn­inga á almennum vinnu­mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár