Ragnar Þór: „Ég tel seðlabankastjóra algjörlega ómarktækan“

Stýri­vaxta­hækk­anir Seðla­bank­ans „refsa stórum hópi fólks sem er ekki að fara til Tenerife og eyða um efni fram heldur er bara að reyna að kom­ast af milli mán­aða,“ segir Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Bára Huld Beck

„Ég tel seðla­banka­stjóra algjör­lega ómark­tækan og trú­verð­ug­leiki Seðla­bank­ans er löngu fok­inn,“ segir Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, spurður hvort hann taki til sín orð Ásgeirs Jóns­sonar seðla­banka­stjóra um þörf á aðhaldi. Hann segir Seðla­bank­ann bera ábyrgð á þeirri stöðu sem upp er komin að stóru leyti, þ.e. því hvernig hús­næð­is­mark­að­ur­inn hefur þró­ast.

„Þetta áhlaup sem varð á hús­næð­is­mark­að­inn er vegna mjög brattrar lækk­unar vaxta án mót­væg­is­að­gerða,“ sagði Ragnar Þór í við­tali í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2. „Þarna gerði bara Seðla­bank­inn stór­kost­leg mis­tök. Stór hag­stjórnar mis­tök.“ Afleið­ingin sé sú að verð­bólgan mælist 9,2 pró­sent. Ef hús­næð­islið­ur­inn væri tek­inn út væri verð­bólgan hins vegar með því lægsta sem þekk­ist í Evrópu. „Þannig að Seðla­bank­inn ber einn ábyrgð á því hvernig staðan er hvað þetta varðar.“ Ragnar sagði yfir­vald sem ekki geti við­ur­kennt að hafa gert mis­tök ekki hafa viðr­ingu sína „og mjög skadd­aðan trú­verð­ug­leika“.

Aðgerðir Seðla­bank­ans að und­an­förnu með hækkun stýri­vaxta „refsa stórum hópi fólks sem er ekki að fara til Tenerife og eyða um efni fram heldur er bara að reyna að kom­ast af milli mán­aða.“ Stýri­vaxta­hækk­an­irnar bíti hins vegar lítið á þeim tekju­hæstu sem mestu eyði.

VR, Lands­sam­band verzlunarmanna og iðn­að­ar­manna reynir nú að ná kjara­samn­ingum við Samtök atvinnu­lífs­ins. Í gær var fundur hjá rík­is­sátta­semj­ara og sá næsti verður á morgun, föstu­dag.

Ragnar segir stjórn­völd hafa lofað aðgerðum til þess að mæta vanda þeirra sem standa illa á hús­næð­is­mark­aði. Til dæmis koma á leigu­þaki og þrengja að verð­tryggðum lánum. Það sé skiln­ingur að eitt­hvað þurfi að gera, en lítið hafi verið gert. „Nú er tími aðgerða kom­inn. Hér verður eitt­hvað að fara að ger­ast. Vegna þess að staðan er grafal­var­leg og versnar með degi hverjum.“

Hann seg­ist ekki geta svarað því hvort að samn­ingar muni nást á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár