Kjarasamningur SGS samþykktur hjá öllum 17 aðildarfélögunum

Yfir 85 pró­sent þeirra félags­manna sem greiddu atkvæði um nýjan kjara­samn­ing SGS og SA sögðu já. Samn­ing­ur­inn var sam­þykktur með afger­andi hætti hjá öllum þeim 17 félögum sem eiga aðild að samn­ingnum.

Vilhjálmur Birgisson er formaður SGS.
Vil­hjálmur Birg­is­son er for­maður SGS. Mynd: Bára Huld Beck

Kjara­samn­ing­ur­inn á milli Starfs­greina­sam­bands Íslands og Samtaka atvinnu­lífs­ins á almennum vinnu­mark­aði, sem und­ir­rit­aður var 3. des­em­ber, var sam­þykktur með miklum meiri­hluta atkvæða hjá þeim 17 aðild­ar­fé­lögum SGS sem aðild eiga að samn­ingnum, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá SGS.

Atkvæða­greiðsla á meðal félags­manna hófst 9. des­em­ber og lauk í hádeg­inu í dag, en kjör­sóknin var 16,56 pró­sent, sem þýðir að rúm­lega 3.900 manns greiddu atkvæði um samn­ing­ana, en alls voru 23.711 manns á kjör­skrám.

[adspot]

Af þeim sem greiddu atkvæði sögðu alls 85,71 pró­sent já, en 11 pró­sent sögðu nei. Rúm 3 pró­sent tóku hins vegar ekki afstöðu til samn­ing­anna.

Yfir 80 prósent sögðu já í 15 félögum af 17

Í til­kynn­ingu frá SGS segir að nið­ur­stöð­urnar hafi verið afger­andi hjá öllum félögum, og að hjá 15 félögum hafi samn­ing­ur­inn verið sam­þykktur með yfir 80 pró­sentum atkvæða.

Samn­ing­ur­inn á milli SGS og SA telst því sam­þykktur hjá eft­ir­far­andi aðild­ar­fé­lögum Stars­fgreina­sam­bands­ins: AFLi Starfs­greina­fé­lagi, Öldunni stétt­ar­fé­lagi, Bárunni stétt­ar­fé­lagi, Drífanda stétt­ar­fé­lagi, Einingu-Iðju, Framsýn stétt­ar­fé­lagi, Stétt­ar­fé­lagi Vest­ur­lands, Stétt­ar­fé­lag­inu Samstöðu, Verka­lýðs­fé­lagi Akraness, Verka­lýðs- og sjó­manna­fé­lagi Bol­ung­ar­víkur, Verka­lýðs- og sjó­manna­fé­lagi Sand­gerðis, Verka­lýðs­fé­lagi Snæ­fell­inga, Verka­lýðs­fé­lagi Suð­ur­lands, Verka­lýðs­fé­lagi Vest­firð­inga, Verka­lýðs­fé­lagi Þórs­hafnar, Verka­lýðs- og sjó­manna­fé­lagi Kefla­víkur og nágrennis og Verka­lýðs­fé­lag­inu Hlíf.

Samningarnir gilda frá 1. nóvember

Sam­kvæmt samn­ingi SGS og SA hækka laun þeirra sem ekki taka laun eftir kaup­töxt­um, þ.e. eru á mán­að­ar­laun­um, um 33.000 kr. frá 1. nóv­em­ber. Des­em­ber- og orlofs­upp­bætur taka jafn­framt hækk­un­um. Des­em­ber­upp­bót á árinu 2023 verður 103.000 kr. og orlofs­upp­bót verður 56.000 kr. á orlofs­ár­inu sem hefst 1. maí 2023. Kjara­tengdir liðir samn­ings­ins hækka um 5% frá 1. nóv­em­ber og þá hækka bónusar og akkorð í fisk­vinnslu um 8 pró­sent sem mun skila fisk­vinnslu­fólki á bil­inu 6.000-34.000 kr. hækkun á mán­uði.

Einnig náð­ist sam­komu­lag um flýt­ingu hag­vaxt­ar­auka sem þýðir að hag­vaxt­ar­auk­anum sem átti að koma til greiðslu 1. maí 2023 verður flýtt og verður hann að fullu efndur með hækkun 1. nóv­em­ber. Það mun skila ávinn­ingi sem nemur 78.000 kr. eða tæpum 6.000 kr. á mán­uði og er hann með­tal­inn í áður­nefndum taxta- og mán­aða­launa­hækk­un­um. Jafn­framt var gert sam­komu­lag um að með þess­ari hækkun og flýt­ingu komi ekki til frekara end­ur­mats á hag­vaxt­ar­auka skv. kjara­samn­ingnum frá 2019.

Um er að ræða skamm­tíma­samn­ing, sem rennur út 31. jan­úar 2024.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár