Yfirlýsing formanns Eflingar um hærri framfærslukostnað í Reykjavík en á landsbyggðinni hefur farið fyrir brjóstið á fólki og meira að segja formenn verkalýðsfélaga hafa séð ástæðu til að stíga fram og mæla gegn þessari yfirlýsingu.
Það er tvennt vont við þessa stöðu. Í fyrsta lagi eru þetta óheppileg ummæli formanns Eflingar því henni mátti vera ljóst að skilja mætti ummæli hennar sem svo, að það ættu að vera hærri launataxtar að jafnaði í Reykjavík en annars staðar. Það er útilokað að nokkurn tíma tækist samstaða um það innan verkalýðshreyfingarinnar. Og verkalýðsfélag sem stefnir í átök þarf á samstöðu að halda.
Í öðru lagi er mjög óheppilegt að formenn annarra verkamannafélaga skuli stíga fram í deilu sem á fyrst og fremst að vera milli Eflingar og SA. Forysta Samtaka atvinnulífsins hefur því getað hallað sér aftur á bak og fylgst með formönnum verkamannafélaga takast á um réttmæti krafna Eflingar. Þeir hafa eflaust skemmt sér ágætlega á meðan.
Við ættum að styðja hvert það verkalýðsfélag láglaunafólks sem fer fram með launakröfur – jafnvel þó við höfum sjálf samið um annað og lægra. Þannig náði verkalýðshreyfingin árangri á fyrstu áratugum baráttunnar – sigrar unnust í mörgum smáorustum og launahækkun sem samið er um á einum stað – smitast fljótt út til annarra.
[adspot]Síðar lærðu launagreiðendur að skipuleggja sig og hafa unnið hörðum höndum að því að smala öllu launafólki í eina rétt. Því miður með aðstoð frá verkalýðshreyfingunni. Margumrætt Salek samkomulag snerist einmitt um að smala öllum í eina rétt og það sem samið væri fyrir einn – myndi svo gilda um alla.
Salek þýðir því og hefur alltaf þýtt að sjálfstæði hvers verkalýðsfélags er skert og samningsrétturinn færður í einhverja „sátt“ sem snýst um niðurstöðu úr excel skjali sem sýnir hvað er eftir til ráðstöfunar eftir m.a. arðgreiðslur og ofurlaun stjórnenda.
Verkalýðsbarátta á ekki að snúast um persónur og leikendur heldur félagsmennina sem fá laun skv. gerðum kjarasamningum. Hvort fólki líkar við formann Eflingar eða ekki, eða er sammála málflutningi hennar eða ekki – skiptir bara engu máli. Það eru komandi kjarasamningar Eflingar sem skipta máli og ekki bara fyrir félagsmenn Eflingar heldur alla félagsmenn í aðildarfélögum Starfsgreinasambandsins. Því nái Efling betri samningi en aðrir hafa gert er næsta víst að eitthvað af þeim hækkunum munu ganga út til annarra félaga í formi launaskriðs og annað mun nást í samningum eftir 12 mánuði.
Nú þegar ljóst er að það stefnir í verkfallsátök í Reykjavík er fullt tilefni til að blása til samstöðu innan Starfsgreinasambandsins og að aðildarfélög þess veiti Eflingu þann stuðning sem þarf.
Höfundur er starfsmaður AFLs Starfsgreinafélags.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




















































Athugasemdir