Samtök atvinnulífsins (SA) hafa ráðið Konráð S. Guðjónsson, fyrrverandi aðstoðarframkvæmdastjóra Viðskiptaráðs og núverandi aðalhagfræðing sjóðstýringarfyrirtækisins Stefnis, tímabundið í stöðu efnahagsráðgjafa í aðdraganda komandi kjarnasamningsgerðar. Hann mun jafnframt taka sæti í samninganefnd SA og hefja störf um komandi mánaðamót. Þegar hlutverki hans hjá SA er lokið mun Konráð snúa aftur til Stefnis, sem er í eigu Arion banka.
Frá þessu er greint í tilkynningu á heimasíðu SA í dag. Þar er haft eftir Halldóri Benjamín Þorbergssyni, framkvæmdastjóri SA, að það sé mikill styrkur að fá Konráð tímabundið til liðs við SA. „Við væntum mikils af honum og þekkjum vel til hans starfa í gegnum tíðina.“
[adspot]Konráð var sérfræðingur í greiningardeild Arion banka um þriggja ára skeið áður en hann var ráðinn hagfræðingur Viðskiptaráðs seint á árinu 2017. Hann tók við því starfi af Kristrúnu Frostadóttur, sem hafði ráðið sig sem aðalhagfræðing Kviku banka. Kristrún hóf stjórnmálaþátttöku í fyrra og er nú í framboði til formanns Samfylkingarinnar.
Sumarið 2020 var Konráð ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs og sinnti því starfi þar til seint á síðasta ári þegar hann réð sig til Stefnis. Hann er með meistaragráðu í hagfræði frá Warwick háskóla í Bretlandi og B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




















































Athugasemdir