Vinnumenning og starfasamsetning mögulegar skýringar á langri starfsævi

Mikil atvinnu­þátt­taka ung­menna og meðal eldri ald­urs­hópa skýrir að ein­hverju leyti hversu löng starfsævi Íslend­inga er að sögn sviðs­stjóra hjá ASÍ. Starfsævi Íslend­inga er lengri en hjá öllum öðrum Evr­ópu­þjóðum.

Vöxtur ferðaþjónustunnar gæti hefur líklega aukið framboð á fjölbreyttum störfum sem hægt er að vinna í hlutastarfi að sögn Róberts Farestveit, sviðsstjóra á sviði stefnumótunar og greininga hjá ASÍ. Slík störf geti hentað ungu fólki vel.
Vöxtur ferða­þjón­ust­unnar gæti hefur lík­lega aukið fram­boð á fjöl­breyttum störfum sem hægt er að vinna í hluta­starfi að sögn Róberts Farest­veit, sviðs­stjóra á sviði stefnu­mót­unar og grein­inga hjá ASÍ. Slík störf geti hentað ungu fólki vel. Mynd: Samsett/Kjarninn

Sú vinnu­menn­ing sem ríkir á Íslandi og aukin fjöl­breytni í störfum eru á meðal þeirra þátta sem skýrt geta hversu löng starfsævin er hér á landi að sögn Róberts Farest­veit sviðs­stjóra á sviði stefnu­mót­unar og grein­inga hjá Alþýðu­sam­bandi Íslands. Starfsævi Íslend­inga er sú lengsta í Evrópu en Eurostat, hag­stofa Evr­ópu­sam­bands­ins, birti á dög­unum nýjar tölur þar sem lengd starfsæv­innar í Evrópu er borin saman. [links]

Tölfræði Eurostat greinir frá væntri lengd starfsævi 15 ára ung­menna, þeirra sem eru ef til vill að stíga sín fyrstu skref á vinnu­mark­aði. Samkvæmt Eurostat geta íslensk ung­menni vænst þess að verja 44,6 árum á vinnu­mark­aði. Að með­al­tali er starfsævi karla lengri en kvenna, hér á landi er með­al­tal karla 46,4 ár en 42,6 ár hjá konum. Í Evrópu er með­al­talið á heild­ina litið um 36 ár, hjá körlum í Evrópu er með­al­talið 38,2 ár en 33,7 ár meðal evr­ópskra kvenna.

Mikil atvinnuþátttaka á „báðum endum“

„Þetta er marglaga og ég held að það sé ekki nein ein­föld skýr­ing á þessu,“ segir Róbert í sam­tali við Kjarnann, spurður að því hvers vegna Íslend­ingar vinni svona mikið. „Í flestum mæli­kvörðum eru yfir­leitt not­aðar tvær skil­grein­ingar varð­andi aldur, það er frá 16 til 64 ára og frá 16 til 74 ára. Þegar við skoðum Ísland í breiða ald­urs­bil­inu, 16 til 74 ára, þá erum við með mjög mikla atvinnu­þátt­töku borið saman við flest önnur lönd. Það skýrist af atvinnu­þátt­töku á báðum endum.“ [adspot]

Atvinnu­þátt­taka er sem sagt mikil hjá ung­mennum og hjá þeim sem eldri eru. Þegar horft er til þrengra ald­urs­bils breyt­ist þessi sam­an­burður. „Ef við myndum skoða hóp­inn 25 til 64 ára þá erum við á svip­uðu bili og önnur lönd, mig minnir að Svíþjóð og fleiri lönd séu hærri þar,“ bendir Róbert á.

Spurður að því hvers vegna Íslend­ingar vinni svona mikið segir Róbert að ekki sé hægt að skýra það með ein­földum hætti, þetta megi að hluta til skýra með vinnu­kúlt­urnum hér á landi. Þar að auki tíðk­ist það meðal ung­menna að vinna tals­vert með námi en atvinnu­þátt­taka ung­menna hefur auk­ist síð­ast­lið­inn ára­tug.

Þá geti starfa­sam­setn­ingin haft ein­hver áhrif, til að mynda segir Róbert að sam­hliða vexti ferða­þjón­ust­unnar hafi fram­boð ef til vill auk­ist á fjöl­breytt­ari störfum sem hægt sé að vinna í hluta­starfi.

Vinnuþátttaka eldra fólks geti verið bæði jákvæð og neikvæð

Spurður út í það hvort löng starfsævi og mikil atvinnu­þátt­taka hafi ein­hver áhrif á félags­lega þætti segir Róbert áhrifin vera sýni­legri hjá eldri ald­urs­hópum og að þau geti verið blanda af jákvæðum og nei­kvæðum áhrifum. „Það geta verið jákvæðir hvatar sem ýta undir atvinnu hjá fólki sem vill vinna lengur því það gefur þeim ein­hvern til­gang. Svo erum við kannski að sjá fólk vinna lengur því þarf pen­ing vegna ein­hverja tekju­á­hrifa. Það væru þá kannski óheil­brigð­ari hvatar þar, því fólk í þeim hópi hefur kannski ekki nægi­leg rétt­indi úr líf­eyr­is­sjóðum.“

Áhrif langrar starfsævi á heilsu fer að mestu eftir eðli starfa að sögn Róberts. „Það fer algjör­lega eftir því við hvað þú starfar,“ segir hann og bendir á að nei­kvæð áhrif á heilsu séu mun algeng­ari hjá fólki sem vinnur slít­andi vinnu. „Þetta getur verið mjög bundið við hvaða atvinnu­grein og hvaða starf þú starfar við. Við sjáum það auð­vitað í örorku­byrði og fleira hjá fólki í slít­andi vinnu og í líf­eyr­is­sjóðum þar sem hátt hlut­fall er af slíkri vinnu. Það er auð­vitað ákveðið áhyggju­efni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár