Starfsævi Íslendinga sú lengsta í Evrópu

Þeir Íslend­ingar sem eru nú að stíga sín fyrstu skref á vinnu­mark­aði geta vænst þess að verja þar 44,6 árum. Starfsævin er tæpum níu árum styttri í löndum ESB en á Íslandi sam­kvæmt tölum Eurostat.

Þeir Íslend­ingar sem urðu 15 ára á síð­asta ári mega búast við því að starfsævi þeirra verði 44,6 ár. Hvergi í Evrópu er starfsævin jafn löng en hún er næst lengst í Hollandi, 42,5 ár að með­al­tali. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Eurostat, hag­stofu Evr­ópu­sam­bands­ins.

Á vef Eurostat segir að mæli­kvarð­inn sem er not­aður gefi til kynna hversu mörg ár 15 ára ung­menni geti vænst að verja á vinnu­mark­aði. Að með­al­tali er starfsævi karla lengri en starfsævi kvenna, hér á landi geta 15 ára piltar vænst þess að vera 46,4 ár á vinnu­mark­aði en 15 ára stúlkur geta gert ráð fyrir því að eiga 42,6 ára langa starfsævi. [adspot]

Með­al­lengd starfsæv­innar innan Evr­ópu­sam­bands­ins er tæpum níu árum styttri en hér á landi eða 36 ár. Hjá körlum er með­al­talið 38,2 ár en 33,7 ár hjá konum.

Starfsævin lengst nánast stöðugt frá upphafi aldarinnar

Í Evrópu er starfsævin styst í Rúmeníu, 31,3 ár. Þar á eftir kemur Ítalía en með­al­starfsævi þar í landi er 31,6 ár. Ítalskar konur geta gert ráð fyrir að vinna skemur en aðrir íbúar álf­unnar, sam­kvæmt Eurostat er með­al­starfsævi ítal­skra kvenna 26,9 ár. Karlar þar í landi verja aftur á móti 36 árum á vinnu­mark­aði að með­al­tali.

Lengd starfsæv­innar hefur vaxið nán­ast stöðugt frá því í upp­hafi ald­ar­innar. Árið 2001 var með­al­talið innan ESB 32 ár en það var komið upp í 35,9 ár árið 2019. Með­al­talið lækk­aði í fyrsta sinn árið 2020 vegna áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins og fór þá niður í 35,6 ár. Líkt og áður segir var með­al­talið fyrir síð­asta ár komið í 36 ár og það hefur því náð að hoppa upp fyrir með­al­talið eins og það var fyrir kór­ónu­veiru­far­aldur.

Konur vinna lengur en karlar í Litáen

Líkt og áður segir er starfsævi kvenna skemmri en starfsævi karla í Evrópu. Þetta kynja­bil hefur engu að síður minnkað á síð­ustu árum Munurinn árið 2021 mæld­ist 4,5 ár en bilið var sjö ár árið 2001. Kynja­bilið er mest á Ítalíu en starfsævi ítal­skra karla er rúmum níu árum lengri en ítal­skra kvenna.

Kynja­bilið er minnst í Eist­landi, þar sem það mælist 0,1 ár. Í einu landi Evrópu geta konur vænst þess að eiga lengri starfsævi en karlar, það er í Litáen þar sem konur verja að með­al­tali 1,3 árum lengur á vinnu­mark­aði en karlar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár