Lífeyrissjóður verzlunarmanna hækkar lífeyrisréttindi um tíu prósent

Næst stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins hefur ákveðið að hækka líf­eyr­is­rétt­indi sjóðs­fé­laga sinna. Hækkunin er aft­ur­virk frá síð­ustu ára­mótum og þeir sem fá greiðslur úr sjóðnum munu fá ein­greiðslu í nóv­em­ber vegna upp­safn­aðs ávinn­ings.

Fjöldi Íslendinga greiðir í Lífeyrissjóð verzlunarmanna í hverjum mánuði.
Fjöldi Íslend­inga greiðir í Líf­eyr­is­sjóð verzlunarmanna í hverjum mán­uði. Mynd: Rakel Tómasdóttir

Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna hefur ákveðið að hækka áunnin líf­eyr­is­rétt­indi í sam­eign­ar­deild sjóðs­ins um tíu pró­sent, sem leiðir til sam­svar­andi hækk­unar líf­eyr­is­greiðslna. Hækkunin mið­ast við síð­ast­liðin ára­mót og er til­komin vegna góðrar ávöxt­unar eigna und­an­farin ár sem hefur styrkt trygg­inga­fræði­lega stöðu sjóðs­ins. Með­al­raun­á­vöxtun eigna síð­ustu 10 ára er 6,7 pró­sent, síð­ustu 20 ára 4,5 pró­sent og síð­ustu 30 ára 5,4 pró­sent.

Sjóð­ur­inn mun greiða í ein­greiðslu út upp­safn­aða hækkun á árinu og mun sú greiðsla ger­ast í nóv­em­ber. Hún nær til um tutt­ugu og eitt þús­und sjóð­fé­laga, nemur rúmum 1,6 millj­örðum króna eða að með­al­tali um 76 þús­und krónum fyrir hvern líf­eyr­is­þega.

Frá þessu er greint í til­kynn­ingu frá sjóðnum. Þar segir enn fremur að sjóðs­fé­lagar geti séð áhrif rétt­inda­hækk­un­ar­innar á sjóð­fé­laga­vef sínum. Sjóð­fé­lagar sem fá einnig greiðslur frá Trygg­inga­stofnun rík­is­ins eru hvattir til þess að huga að því hvort til­efni sé til að upp­færa tekju­á­ætlun hjá stofn­un­inni.

[adspot]Heild­ar­eignir líf­eyr­is­sjóð­anna standa nú í 6.410,5 millj­örðum króna og hafa aldrei verið meiri. Þeir hafa ávaxtað fé sitt sér­stak­lega vel frá því að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á og ýmis konar aðgerðir stjórn­valda og seðla­banka heims­ins ýttu eigna­verði upp.

Frá lokum ágúst­mán­aðar í fyrra hafa eignir sjóð­anna auk­ist um 910 millj­arða króna. Þar af hafa eignir þeirra inn­an­lands auk­ist um 504 millj­arða króna og þar vigtar hluta­fjár­eign lang­mest. Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eru saman langstærstu eig­endur þeirra félaga sem skráð eru á íslenskan hluta­bréfa­mark­að. Saman eiga þeir, beint og óbeint í gegnum hlut­deild­ar­skír­teini í sjóð­um, um helm­ing allra skráðra bréfa.

Erlendar eignir íslensku líf­eyr­is­sjóð­anna hafa líka bólgnað út á tímum kór­ónu­veirunn­ar. Virði þeirra er nú 2.257,6 millj­arðar króna og hefur auk­ist um 406,3 millj­arða króna milli ára. Nán­ast öll erlend eign líf­eyr­is­sjóða, alls 2.196 millj­arðar króna, er bundin í hluta­bréfum og hlut­deild­ar­skír­tein­um, og því kemur ekki á óvart að sá eign­ar­flokkur sé ábyrgur fyrir nær allri virð­is­aukn­ing­unni sem orðið hefur á erlendum eignum íslensku líf­eyr­is­sjóð­anna frá því í ágúst í fyrra, eða 94 pró­sent henn­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár