Drífa Snædal segir af sér embætti forseta ASÍ

Forseti ASÍ segir að átök innan sam­bands­ins hafi verið óbæri­leg og dregið úr vinn­u­gleði og bar­áttu­anda. „Þegar við bæt­ast ákvarð­anir og áherslur ein­stakra stétt­ar­fé­laga sem fara þvert gegn minni sann­fær­ingu er ljóst að mér er ekki til set­unnar boðið.“

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

Drífa Snædal, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ), hefur ákveðið að segja af sér emb­ætti og öllum trún­að­ar­störfum sem hún hefur gegnt sem for­seti. Frá þessu greinir hún í færslu á Facebook.

Þar segir Drífa að fyrir ákvörðun sinni séu nokkrar ástæður. „Þing ASÍ er í byrjun októ­ber og ég þurfti að gera það upp við mig hvort ég gæfi áfram kost á mér. Þegar ég hugs­aði málið varð nið­ur­staða mín sú að ég treysti mér ekki til að starfa áfram yrði ég til þess kjörin og af því leiddi að það væri skyn­sam­legt í ljósi kjara­við­ræðna og und­ir­bún­ing þings­ins að hætta sem fyrst. Ég veit að ég nýt mik­ils stuðn­ings félaga og í sam­fé­lag­inu og fyrir það er ég þakk­lát. Það eru hins vegar sam­skipti við ýmsa kjörna full­trúa innan sam­bands­ins og sú blokka­myndun sem þar hefur átt sér stað sem gera mér það ókleift að starfa áfram sem for­seti ASÍ.“

Átök innan ASÍ óbærileg

Drífa segir í færsl­unni að hún hafi ekki vílað fyrir sér að taka slag­inn fyrir launa­fólk gagn­vart stjórn­völdum eða atvinnu­rek­endum enda sé það hluti af því að vera í verka­lýðs­bar­áttu. „Átök innan ASÍ hafa hins vegar verið óbæri­leg og dregið úr vinn­u­gleði og bar­áttu­anda. Þegar við bæt­ast ákvarð­anir og áherslur ein­stakra stétt­ar­fé­laga sem fara þvert gegn minni sann­fær­ingu er ljóst að mér er ekki til set­unnar boðið. Ég treysti mér ekki til að vinna með fólki sem ég á ekki sam­leið með í bar­átt­unni. Og ég hef sem for­seti verið í þeirri stöðu sem ég ætl­aði mér aldrei; að telja mig ekki eiga ann­ars kost en að gagn­rýna stjórn­ar­á­kvarð­anir og for­menn stærstu stétt­ar­fé­laga innan ASÍ.“

Gagnrýnir forystu Eflingar og VR

Hún nefnir sér­stak­lega ákvörðun stjórnar Eflingar, næst stærsta stétt­ar­fé­lags lands­ins, um að standa fyrir hóp­upp­sögn á skrif­stofu félags­ins sem Drífa sá sig knúna til að mót­mæla. „Ég þurfti einnig að bregð­ast við linnu­lausri, en óljósri gagn­rýni for­manns VR á mín störf. Dæmin eru fleiri og það sem fólk leyfir sér í sam­skiptum hvert við annað innan hreyf­ing­ar­innar er henni ekki til fram­dráttar og félögum ekki til hags­bóta.“

Að mati Drífu er verka­lýðs­hreyf­ingin ein merki­leg­asta mann­rétt­inda­hreyf­ing heims og hún segir hjarta sitt hafa slegið þar og muni gera það áfram. „Ég get hins vegar ekki sinnt störfum mínum lengur sem for­seti ASÍ. Þá er hrein­leg­ast að segja þetta gott. Og til að taka af allan vafa er þetta ekki hluti af ein­hverri stærri fléttu, ég ein­fald­lega hverf af þessum vett­vangi án þess að hyggja á end­ur­komu.“

Kannað hverjum sé best treystandi fyrir ASÍ

Ljóst er að und­ir­bún­ingur fyrir þing ASÍ í októ­ber er haf­inn og heim­ildir Kjarnans herma að byrjað hafi verið að kanna mót­fram­boð gegn Drífu fyrir nokkuð löngu síðan. Í síð­ustu viku sendi Gallup út könnun þar sem spurt var sér­stak­lega um hverjum svar­endur treystu best fyrir því að leiða ASÍ næstu tvö árin. Fyrir liggur að ein­hver hefur keypt þá spurn­ingu og látið spyrja hana í spurn­inga­vagni Gallup.

Val­kost­irnir sem boðið var upp á voru fimm: Drífa Snædal, Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins og Kristján Þórður Snæ­björns­son, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Raf­iðn­að­ar­sam­bands Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár