Sólveig Anna segir uppsögn Drífu tímabæra og að hún hafi myndað blokk með efri millistétt

Formaður Eflingar segir upp­runa, bak­land og stuðn­ings­hópa Drífu Snædal hafa verið í stofn­ana-póli­tík og í íhalds­armi verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar. Vinnu­brögð hennar hafi verið lokuð, and­lýð­ræð­is­leg og vakið gagn­rýni, langt út fyrir raðir VR og Eflingar.

Sólveig Anna Jónsdóttir.
Sólveig Anna Jóns­dóttir. Mynd: Bára Huld Beck

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, segir að það sé leitt að Drífa Snædal, frá­far­andi for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ), hafi notað tæki­færið „um leið og hún til­kynnti tíma­bæra afsögn sína, til að hnýta með ómál­efna­legum hætti í mig og stjórn Eflingar.“ Drífa viti sjálf að það sé langt um liðið síðan grafa fór undan trú­verð­ug­leika hennar og stuðn­ingi í bak­landi verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar. „Það hefur ekk­ert með innri mál Eflingar að gera, þó svo að Drífa hafi ákveðið að blanda sér í þau, hug­an­lega vegna þess að hún hélt að það yrði sér til fram­dráttar þegar hún sá sitt póli­tíska stunda­glas tæm­ast.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í færslu sem Sólveig Anna birti á Facebook í dag.

[adspot]Drífa til­kynnti um afsögn sína í morgun og sagði að átök innan sam­bands­ins hafi verið óbæri­leg. „Þegar við bæt­ast ákvarð­anir og áherslur ein­stakra stétt­ar­fé­laga sem fara þvert gegn minni sann­fær­ingu er ljóst að mér er ekki til set­unnar boðið.“ Þar vís­aði hún til Eflingar og VR, stærstu stétt­ar­fé­laga Íslands.

Segir Drífu hafa lokað sig inni í blokk með efri millistétt

Í færslu Sól­veigar Önnu segir hún Drífu hafa talað um blokka­myndun innan hreyf­ing­ar­innar. „Stað­reyndin er sú að Drífa kaus sjálf að loka sig inni í blokk með nán­asta sam­starfs­fólki for­vera síns, Gylfa Arn­björn­sonnar, og þeirri stétt sér­fræð­inga og efri milli­stétt­ar­fólks sem ræður ríkjum í stofn­unum rík­is­valds­ins á Íslandi og einnig á skrif­stofum Alþýðu­sam­bands­ins. Uppruni, bak­land og stuðn­ings­hópar Drífu voru í stofn­ana-póli­tík og í íhalds­armi verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar, hjá fólki eins og Halldóru Sveins­dóttur for­manni Bárunnar. Drífa gat aldrei stutt við það umbreyt­inga­verk­efni og end­ur­nýjun sem ég, Ragnar Þór Ing­ólfs­son og Vil­hjálmur Birg­is­son höfum leitt með stuðn­ingi mik­ils fjölda félags­fólks í okkar félögum um land allt. Það er stað­reynd.“

[links]Formaður Eflingar gerir einnig athuga­semd við full­yrð­ingu Drífu talar um að hún hafi aldrei vílað fyrir sér að „taka slag­inn" gagn­vart stjórn­völdum. „Því miður er það ekki rétt eins og fjöldi dæma sýnir. Drífa Snædal vildi semja við rík­is­stjórn­ina og SA um að hafa af verka- og lág­launa­fólki umsamdar launa­hækk­anir í kór­óna­veiru­krepp­unni. Og það hefði orðið raunin ef ekki hefði verið fyrir and­stöðu Eflingar. Drífa vildi heldur ekki "taka slag­inn" þegar Icelandair braut lög um stétt­ar­fé­lög og vinnu­deilur til að nauð­beygja flug­freyjur í miðri kjara­deilu - hún stöðv­aði máls­sókn fyrir Félags­dómi og und­ir­rit­aði þess í stað skammar­lega hvít­þvott­ar­yf­ir­lýs­ingu. Drífa tók heldur ekki slag­inn um við­ur­lög gegn launa­þjófn­aði, heldur reyndi í tvígang að bera á borð fyrir aðild­ar­fé­lög ASÍ hand­ó­nýta laga­setn­ingu þar sem staða fórn­ar­lamba launa­þjófn­aðar hefði orðið verri en hún er nú.“

Segir Drífu hafa samið við ríkisstjórnina í skjóli nætur

Þá segir Sólveig Anna að Drífa hafi samið, í skjóli nætur, við rík­is­stjórn­ina vorið 2019 um að neyða vinn­andi fólk inn í nýja útgáfu af Salek-sam­komu­lag­inu svo­kall­aða, sem þá hefði verið kallað Grænbók. „Einu gilti þótt að verka­fólk á Íslandi hafi marg­ít­rekað hafnað Salek-hug­mynda­fræð­inni. Ef ekki hefði verið fyrir and­stöðu Efl­ing­ar­fé­laga og breyt­inga­afl­anna innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar hefði Græn­bók­ar­vinn­nan haldið áfram, og við værum grafin enn dýpra en við erum nú þegar í fen sér­fræð­inga­veldis Þjóð­hags­ráðs - en það var einmitt síð­asta verk Drífu í fréttum í gær að taka upp hansk­ann fyrir Þjóð­hags­ráð.“

Hún segir vinnu­brögð Drífu hafa verið lokuð, and­lýð­ræð­is­leg og iðu­lega vakið undrun og gagn­rýni, langt út fyrir raðir VR og Eflingar. Í mál­efnum vinnu­mark­að­ar­ins hafi nán­ustu félagar Drífu verið for­menn BSRB og BHM. Hún hefði ekki haft áhuga á að hlusta á raddir for­ystu stærstu félag­anna innan vébanda ASÍ. „Alþýðu­sam­band­inu undir stjórn Drífu Snædal mistókst með öllu að laga áherslur og starf sam­bands­ins að þeim miklu breyt­ingum sem urðu í stærstu aðild­ar­fé­lögum sam­bands­ins á árunum 2017-2018 og standa ennþá yfir. Leið­togar eiga að hlusta á vilja þeirra sem þeir eiga umboð sitt undir. Það hefði Drífa Snædal getað gert á fyrri stigum en kaus að gera ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár