Kristján Þórður gefur ekki kost á sér í forsetaembættið

Starf­andi for­seti ASÍ hyggst ekki gefa kost á sér til þess að leiða sam­bandið á þingi ASÍ í októ­ber. Hann ætlar að ein­beita sér að verk­efnum Raf­iðn­að­ar­sam­bands Íslands, þar sem hann gegnir for­mennsku.

Kristján Þórður Snæbjarnarson
Kristján Þórður Snæ­bjarn­ar­son Mynd: Bára Huld Beck

Kristján Þórður Snæ­bjarn­ar­son, sem verið hefur for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands frá því að Drífa Snædal sagði af sér emb­ætt­inu í byrjun ágúst­mán­aðar, ætlar ekki að gefa kost á sér til þess að leiða sam­bandið áfram. Frá þessu sagði hann í færslu á Facebook í morgun, en áður hafði hann sagt að hann væri að íhuga fram­boð til for­seta á þingi ASÍ, sem fram fer í októ­ber.

Kristján Þórður, sem er for­maður Raf­iðn­að­ar­sam­bands Íslands, ætlar þó áfram að gefa kost á sér til for­ystu í ASÍ, sem 1. vara­for­seti.

Í færslu sinni segir hann að það hafi reynst áhuga­vert verk­efni að starfa sem for­seti ASÍ und­an­far­inn tæpan mánuð.

„Það að stuðla að auknu sam­tali á milli ólíkra hópa innan ASÍ hefur verið mjög gef­andi og aug­ljóst að verka­lýðs­hreyf­ingin á spenn­andi tíma fyrir höndum. Ég hef átt mörg góð sam­töl við fólk víða í sam­fé­lag­inu um þetta verk­efni og fengið miklar hvatn­ingar fram á við. Ég hef því þurft að gera upp við mig hvað ég hygg­ist gera á næstu mán­uðum en sú ákvörðun er að sjálf­sögðu veru­lega flókin þar sem verk­efnin eru spenn­andi bæði það að starfa fyrir Raf­iðn­að­ar­sam­band Íslands sem og að vinna fyrir stærstu heild­ar­sam­tök launa­fólks á íslenskum vinnu­mark­aði,“ segir Kristján Þórður í færslu sinni.

Hann bætir því við að verk­efnin framundna hjá Raf­iðn­að­ar­sam­band­inu séu gríð­ar­lega stór og gef­andi, bæði gerð kjara­samn­inga auk ann­arra verk­efna í dag­legu starfi sam­bands­ins sem komi inn á hans borð.

[adspot]

„Ég hef því ákveðið að gefa ekki kost á mér í emb­ætti for­seta ASÍ að svo stöddu heldur ein­beita mér að verk­efnum RSÍ. Ég mun þó áfram gefa kost á mér til þátt­töku í for­ystu ASÍ sem 1. vara­for­seti enda mikil þörf á að tryggja að rödd iðn- og tækni­fólks heyr­ist innan heild­ar­sam­tak­anna,“ skrifar Kristján Þórður.

Með þess­ari ákvörðun bæt­ist Kristján Þórður í þann hóp verka­lýðs­for­ingja sem hafa úti­lokað að bjóða sig fram til for­seta­emb­ættis ASÍ.

Áður voru þau Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður Eflingar og Vil­hjálmur Birg­is­son for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins og Verka­lýðs­fé­lags Akraness búin að til­kynna opin­ber­lega að þau hygg­ist ekki bjóða sig fram til emb­ætt­is­ins.

Sá síð­ar­nefndi sagði við það tæki­færi að hann myndi styðja Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­mann VR til for­ystu í Alþýðu­sam­band­inu, en enn sem komið er hefur Ragnar Þór ekki stað­fest að hann ætli að gefa kost á sér í for­seta­emb­ættið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár