Björg ráðin nýr framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins

Björg Bjarna­dóttir tekur við af Flosa Eiríks­syni sem fram­kvæmda­stjóri Starfs­greina­sam­bands­ins 1. októ­ber. Alls þrettán manns sótt­ust eftir stöð­unni.

Björg Bjarnadóttir tekur við starfi framkvæmdastjóra SGS 1. október.
Björg Bjarna­dóttir tekur við starfi fram­kvæmda­stjóra SGS 1. októ­ber. Mynd: Af vef SGS

Björg Bjarna­dóttir hefur verið ráðin nýr fram­kvæmda­stjóri Starfs­greina­sam­bands Íslands og mun hún hefja störf 1. októ­ber næst­kom­andi. Hún tekur við starf­inu af Flosa Eiríks­syni, sem lætur brátt af störfum. Alls bár­ust 13 umsóknir um starfið.

Í til­kynn­ingu á vef SGS segir að Björg hafi starfað sem skrif­stofu­stjóri hjá einu af aðild­ar­fé­lögum SGS í um 13 ár og þekki því inn­viði í starf­semi stétt­ar­fé­laga mjög vel.

Frá 2018 hefur hún starfað við kennslu í Fjöl­brauta­skóla Vest­ur­lands ásamt því að gegna stöðu for­stöðu­manns bóka­safns og sjá um skjala­vörslu fyrir skól­ann. Hún hefur einnig starfað sem VIRK-ráð­gjafi fyrir öll stétt­ar­fé­lögin á Akranesi og var einn af fyrstu ráð­gjöfum sjóðs­ins og tók þátt í þróun og upp­bygg­ingu þjón­ust­unnar frá upp­hafi.

Að auki hefur hún setið sem aðal- og vara­maður í stjórn Festu líf­eyr­is­sjóðs og átt einnig sæti í verð­lags­nefnd búvara á árunum 2015-2017. Þá hefur Björg sinnt hinum ýmsu félags- og sjálf­boða­liða­störfum, m.a. umsjón með viku­legu barna­starfi hjá Rauða kross­inum.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni frá SGS hefur Björg lokið meist­ara­námi í upp­lýs­inga­fræði (MIS-gráða), ásamt því að vera með við­bót­ar­diplóma í opin­berri stjórn­sýslu, kennslu­rétt­indi á meist­ara­stigi og starfs­rétt­indi sem grunn- og fram­halds­skóla­kenn­ari. Hún er auk þess með BA-próf í íslensku og stúd­ents­próf af félags­fræði­braut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár