Agnieszka tekin við formennsku í Eflingu

Á stjórn­ar­fundi í Eflingu í dag var afsögn Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur sem for­manns þessa næst stærsta stétt­ar­fé­lags lands­ins afgreidd. Kosið verður um nýjan for­mann fyrir lok mars­mán­aðar á næsta ári.

Sólveig Anna Jónsdóttir og Agnieszka Ewa Ziólkowska.
Sólveig Anna Jóns­dóttir og Agnieszka Ewa Ziólkowska. Mynd: Samsett

Kjörinn vara­for­maður Eflingar, Agnieszka Ewa Ziólkowska, tók við emb­ætti for­manns stétt­ar­fé­lags­ins á stjórn­ar­fundi í dag. Á sama fundi var afsögn Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur úr emb­ætti for­manns Eflingar afgreidd.

Ólöf Helga Adolfs­dóttir, sem hefur verið mikið í fjöl­miðlum und­an­farið eftir að henni var sagt upp störfum sem hlaðmanni hjá Icelandair, tekur við sem vara­for­maður Eflingar. Næstu for­manns- og stjórn­ar­kosn­ingar munu fara fram fyrir lok mars á næsta ári.

Í til­kynn­ingu frá stjórn Eflingar segir að stjórn félags­ins leggi áherslu á að tryggja órofa starf­semi félag­ins. „Félags­ins bíður það mikla verk­efni und­ir­búa næstu kjara­samn­ings­við­ræður en samn­ingar eru lausir í lok næsta árs. Í þessu verk­efni mun Efling áfram vera sterkur málsvari verka­fólks. Stjórn Eflingar vill þakka Sólveigu Önnu Jóns­dóttur og Viðari Þor­steins­syni fyrir þeirra störf í þágu félags­ins á þeim tæp­lega fjórum árum sem þau hafa verið í for­ystu. Framlag þeirra í þágu lág­launa­fólks, kvenna og fólks af erlendum upp­runa á Íslandi verður seint full­þakkað.“

[adspot]Framundan sé að ein­beita sér að þeim verk­efnum sem stjórn beri að sinna. „ Formaður mun starfa með skrif­stof­unni að því að greiða úr þeim vanda­málum sem hafa komið upp í starf­semi félags­ins. Þrátt fyrir þann ágrein­ing sem ratað hefur í fjöl­miðla eru stjórn og starfs­fólk ein­huga í því að tryggja þjón­ustu við félags­menn Eflingar. Stjórn biður fjöl­miðla um að veita félag­inu frið til að sinna þessum verk­efnum og mun ekki veita nein fjöl­miðla­við­töl að sinni.“

Mikil dramatík síðustu daga

Gustað hefur um Eflingu síð­ustu daga og ásak­anir gengið á víxl milli fyrr­ver­andi stjórn­enda félags­ins ann­ars vegar og eins stjórn­ar­manns og nokk­urra núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­manna hins vegar.

For­saga máls­ins er sú að í júní sam­þykktu starfs­menn Efl­ingar ályktun sem hefur ekki verið birt opin­ber­lega. Í henni voru stjórn­endur stétt­ar­fé­lags­ins gagn­rýndir með ýmsum hætti fyrir fram­komu sína gagn­vart starfs­fólki. Trún­að­ar­menn starfs­manna und­ir­rit­uðu álykt­un­ina og hún var sett fram fyrir hönd starfs­manna.

Fyrir viku birti RÚV svo við­tal við Guð­mund Bald­urs­son, stjórn­ar­mann í Efl­ingu, þar sem hann greindi frá því að hann hefði ítrekað reynt að fá álykt­un­ina afhenta og að hann hefði áhyggjur af fram­komu stjórn­enda Efl­ingar gagn­vart starfs­fólki. Tal­aði hann meðal ann­ars um að starfs­fólk sem hefði hætt hjá Efl­ingu hefði talið sér „að ein­hverju leyti ógnað innan gæsalappa, af ógn­ar­stjórn.“

Vegna þessa ávarp­aði Sól­­veig Anna starfs­­menn á föst­u­­dags­morgun og bað þá um að draga til baka álykt­un­ina. Ef þeir myndu ekki gera það myndi hún segja af sér.

Þeir gerðu það ekki heldur sendu frá sér aðra ályktun þar sem kom fram að þeir töldu ósann­­gjarnt að stjórn­­endur veltu ábyrgð á inn­­an­hús­­málum yfir á sig.

Í kjöl­farið sagði Sól­veig Anna af sér og ásak­aði starfs­menn um að haga hrakið sig úr starfi. Viðar Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri Eflingar, sagði upp störfum í kjöl­farið en hann og Sólveig Anna hafa starfað náið saman.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár