Viðar ráðinn fræðslu- og félagsmálastjóri Eflingar

Efling hefur ráðið til sín sex stjórn­endur og lyk­il­starfs­menn sem taka munu til starfa á næstu vikum, en áður hafði verið til­kynnt um ráðn­ingu fram­kvæmda­stjóra. Viðar Þor­steins­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Eflingar, hefur verið ráð­inn í nýja stöðu.

Sólveig Anna Jónsdóttir og Viðar Þorsteinsson munu að nýju starfa saman hjá Eflingu, en Viðar hefur verið ráðinn sem einn af lykilstjórnendum.
Sólveig Anna Jóns­dóttir og Viðar Þor­steins­son munu að nýju starfa saman hjá Eflingu, en Viðar hefur verið ráð­inn sem einn af lyk­il­stjórn­endum. Mynd: Facebook-síða Viðars

Stjórn Eflingar hefur til­kynnt um ráðn­ingu sex stjórn­enda og lyk­il­starfs­manna Eflingar sem taka til starfa á næstu vikum. Áður hafði verið greint frá ráðn­ingu fram­kvæmda­stjóra Eflingar, Perlu Aspar Ásgeirs­dóttur, en aðrir stjórn­endur sem til­kynnt var um ráðn­ingar á í kvöld eru allt karlar.

Í hópi stjórn­enda sem stjórn hefur nú sam­þykkt að ráða til starfa henni við hlið eru þeir Magnús Rínar Magn­ús­son sviðs­stjóri þjón­ustu, Ingólfur B. Jónsson sviðs­stjóri vinnu­rétt­inda og Viðar Þor­steins­son fræðslu- og félags­mála­stjóri. Einnig hefur verið gengið frá ráðn­ingu Sveins Ingva­sonar í stöðu for­stöðu­manns orlofs­húsa, en Sveinn hefur um ára­bil verið yfir­maður orlofs­húsa­mála Eflingar. Stefán Ólafsson hefur verið ráð­inn sér­fræð­ingur í vinnu­mark­aðs- og lífs­kjara­rann­sóknum og Ragnar Ólason tekur við starfi sér­fræð­ings í kjara­samn­ings­gerð, að því er segir í frétta­til­kynn­ingu frá Eflingu.

„Ráðn­ingar hafa gengið framar vonum. Rekstur skrif­stof­unnar er og verður í góðum höndum. Næsta skref er að ganga frá ráðn­ingum almennra starfs­manna, og vonir standa til að því verði lokið innan skamms,“ er haft eftir Sólveigu Önnu Jóns­dóttur for­manni Eflingar í til­kynn­ing­unni.

Þar kemur enn­fremur fram að allir ein­stak­lingar sem ráðnir voru hafi farið í gegnum við­töl og hæfn­is­mat hjá ráðn­ing­ar­stofu. Með þessum ráðn­ingum hafi stjórn­un­ar­stöður allra helstu sviða starf­sem­innar á skrif­stofu Eflingar verið mann­aðar.

Stjórn Eflingar tók ákvörðun um að segja öllu starfs­fólki og stjórn­endum skrif­stofu upp í byrjun apríl og aug­lýsti í kjöl­farið eftir fólki til starfa.

„Loka­frá­gangur stendur nú yfir á ráðn­ingum almennra starfs­manna en mikið af umsóknum barst í störf sem aug­lýst voru 16. apríl síð­ast­lið­inn,“ segir í til­kynn­ingu Eflingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár